Hlynur - 15.02.1975, Qupperneq 10
Baldvin Þ. Kristjánsson leitar vandlega aO vinningsnúmeri.
Happadráttur
HLYNS
Númerunum hafði verið vand-
lega hrært raman í ruslafötunni
í setustofu Hamragarða, þegar
Baldvin Þ. seildist niður undir-
botninn og dró fyrsta vinnin.ginn
í áskrifendahappdrætti Hlyns.
Vinningurinn var „hringkaupin"
svokölluðu. Númerið var 496 og
það benti til Þess að einhverá vest-
urlandinu hefði hreppt þann stóra.
Sá reyndist vera Starfsmannafé-
lag Kaupfélags Hvammsfjarðar.
Þann 25 febrúar s.l. voru sem
sagt komnir saman í Hamragörð-
um nokkrir gamlir ritstýrarar og
velunnarar Hlyns ásamt ritstjórn
hans og framkvæmdastjórn LlS.
Þar ber fyrstan að nefna kempuna
Baldvin Þ. Kristjánsson, félags-
málafulltrúa Samvinnutrygginga,
sem var i fyrstu ritnefnd Hlyns á
10 HLYNUR
árunum 1952—53 og átti veruleg-
an þátt í fæðingu hans, en þá var
Hlynur gefin út af Starfsmanna—
félagi Sambandsins. Þá Jón Rafn
Guðmundsson, framkvæmdastjóra
Andvöku og Endurtryggingafélags
Samvinnutrygginga, sem á fyrstu
árunum annaðist fjármál og út-
breiðslu Hlyns, Örlyg Hálfdánar-
son, bókaúlgefanda, sem endur-
vakti Hlyn haustið 1955 og rit-
stýrði til 1961 og Kára Jónasson,
fréttamann, sem tók við af Örlygi
og var við stjórnvöl í 2—3 ár eða
þar til Dagur Þorleifsson, blaða-
maður tók við. Dagur gat ekki
komið því við að vera í þessum
félagsskap sökum anna á frétta-
vakt og auk þess vantaði í hópinn
þá Pál H. Jónsson, fyrrum rit-
stjóra Samvinnunnar og kennara á
Laugum og Eystein Sigurðsson,
starfsmann Fræðsludeildar Sam-
bandsins, sem dvalið hefur í leyfi
í London við nám og rannsóknir,
en Eysteinn var ritstjóri Hlyns
lengur en nokkur annar.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu, þá hefur verið vel set-
inn stjórnpallurinn frá fyrstu tíð
og því að duga eða drepast fyrir
núverandi Hlynsstjóra að standa
í stykkinu.
Þetta var um viðstadda. Þá eru
það vinningarnir. Hringkaupin,
sem svo eru nefnd eru þannig að
vinningshafi, sem ferðast hring-
inn í kringum landið fær að taka
út í samvinnufélögunum fyrir á-
kveðna upphæð hjá félagi og í
heildina fyrir ekki lægri upphæð
en 50 þúsund krónur, og nú verða
þeir í starfsmannafélaginu í Búð-
ardal að koma sér saman um hver
njóta skal vinningsins. Það er ann-
ars skemmt:leg tilviljun, að starfs-
mannafélagið þar fékk þennan
vinning. Það var annað af tveimur
starfsmannafélögum, sem gert var
að áskrifendum, og félagið hefur
verið með þeim líflegri m.a. ný-
lega fengið húsnæði til félags-
starfsemi og samkomuhalds,
Næst var Miðjarðarhafsferð-
in dregin og nú var það örlygur,
sem leitaði fyrir sér. Upp kom
númer 544 og sá heppni, Sigmar
Jónsson á Blönduósi. Sigmar er í
stjórn starfsmannafélagsins þar
og góður íélagsmálamaður, enda
fengið sitt veganesti úr Samvinnu-
skólanum eins og fleiri góðir fé-
lagsmálapuðarar. Þá var það vika
í öðru orlofshúsi FSSA eða Félags
Starfsmanna Samvinnutrygginga
og Andvöku. Jón Rafn dró númer
243 og nú var komið að Reykja-
vik. Einar Jósteinsson, verkstjóri
hjá Sambandinu á Grandavegi átti
þetta númer. Einar má teljast
fyrsti áskrifandi Hlyns núna, því
hann skiiaði fyrstur áskriftarlista
til ritstjórnar og var efstur á list-
anum. Einar er í fulltrúaráði
Starfsmannafélags Sambandsins
og væntanlega verður honum
launað með notalegri dvöl á Bif-
röst í sumar.
Kári Jónasson sá næst til þess
að bekkjarbróðir hans úr Sam-
vinnuskólanum, Helgi Ingi Sig-
urðsson í Samvinnubankanum og
stjórnarmaður í starfsmannafélagi
þeirra fengi viku í einu af orlofs-
húsum Starfsmannafélags Sam-
bandsins á Bifröst. Númerið var