Hlynur - 15.02.1975, Side 11

Hlynur - 15.02.1975, Side 11
102. Loks dró ritari LÍS, Jóhanna G. Erlingsson númer 603 og Þar kom ,upp hlutur Kaupfélags Skag- firðinga, sem gerði stjórnarmenn félagsins að áskrifendum, en vinn- ingurinn var og er dvöl á Bifröst í orlofshúsi Sf. Sambandsins. Þar með var happadráttur Hlyns á enda, Hlynur óskar vinnings- höfum góðra vinningsnota og ekki v®ri iakara ef þeir minntust hans, begar þeir munduðu myndavél- ar eða penna á ferðum sínum á sumrj komanda. Deild samvinnu- starfsmanna í V.R. 15 ára Þrír fyrrverandi ritstjórar fletta gömlum Hlyni. Frá vinstri: Kári Jónas- son fréttamaOur, Baldvin Þ. Kristjánsson félagsmálafulltrúi Samvinnu- trygginga og örlygur Hálfdánarson bókaútgefandi. Þann 20. febrúar s.l. var haldinn aðalfundur Deildar samvinnustarfs manna í V.R. Var fundurinn í Hamragörðum. Reikningar deild- arinnar báru með sér, að hagur- inn væri góður. Alls greiddu 557 árstillag að upphæð kr. 2 093.800 en samkvæmt samningi deildar- innar og V.R., þá greiðist hluti af innheimtum félagsgjöldum til V-R. i s.ióð sem nefnist Félagssjóð- ur Deildar Samvinnustarfsmanna i V.R. Þessi sjóður hefur svo lánað eftir mætti til orlofshúsabygginga starfsmannafélaga samvinnufélag- anna i Reykjavík og er því þess- um félögum ágætur bakhjarl. Á fundi þessum var Geir Magn- ússon, Fjármáladeild Sambands- ins endurkjörinn formaður, en hann hefur gegnt formannsstarfi undanfarin tvö ár. Þorsteinn Bjarnason, Samvinnutryggingum var endurkjörinn gjaldkeri og auk hans var kosinn Sigurður Þ. Guð- mundsson, Samvinnutryggingum í stað Hreins Bergsveinssonar, Sam- vinnutryggingum, sem gekk úr stjórn deildarinnar. Fyrir í stjórn sátu þau Björk Thomsen, Skýrslu- vélum Sambandsins og Teitur Jensson, Olíufélaginu sem er rit- ari. 1 varastjórn voru kosin þau Bragi Lárusson, Samvinnutrygg- ingum og Bryndís Elíasdóttir, Innflutningsdeild Sambandsins. Endurskoðendur eru þeir Jón Guð- mundsson, Samvinnutryggingum, Óskar Jónsson bókhaldi Sambands- ins og til vara, Kristján Steinsson, Samvinnutryggingum. í stjórn félagssjóðsins eru þeir Geir Magnússon sem er formaður, Þorsteinn Bjarnason og Sigurgeir Þorkelsson, Olíufélaginu. Á s.l. ári sátu tveir samvinnustarfsmenn i stjórn V.R., þeir Bragi Lárusson og Hreinn Bergsveinsson. Þá situr stjórn deildarinnar ávallt í trúnað- armannaráði V.R. Þetta leiðir hug- ann að iþví, að nú eru rúmlega 15 ár síðan deildin var stofnuð. Stofn- fundur var haldinn þann 20. sept- ember 1959 en þá hafði farið fram allsherjaratkvæðagreiðsla meðal atkvæðabærra félaga í Starfs- mannafélagi Sambandsins um inn- göngu í V.R. og stofnun sérdeild- ar innan V.R. 53,6% greiddu at- kvæði og voru 130 með en 30 á móti inngöngu i V.R. 1 fyrstu stjórninni sátu þeir Óskar Sæm- undsson sem var formaður, Sveinn H. Valdimarsson, Markús Stefáns- son, örlygur Hálfdánarson og Rík- harð Sigurbaldason. Fyrsta starfsár deildarinnar var félagsgjaldið kr. 180 hjá körlum en 100 kr. hjá konum. Nú er Það kr. 4200 og jafnt fyrir bæði kyn. Núverandi stjórn launþegadeildarinnar. Sitjandi frá vinstri: Teitur, Þor- steinn, Geir, Bryndís og Björk. Standandi frá vinstri: SigurOur og Bragi. HLYNUR 11

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.