Hlynur - 15.02.1975, Blaðsíða 14

Hlynur - 15.02.1975, Blaðsíða 14
NSS heimsækir Bifröst Kynnisferð NSS að Bifröst var farin 1. mars s.l. Þátttakendur voru 23. Eflaust hafa sumir haldið af stað með aðrar tilfinningar en oft áður, hví í stað velþekktra kunningja í hópi kennara eru nú komin ný andlit. Ekki voru þó viðtökurnar síðri en áður, og strax auðfundið að Bifrastarandinn var enn hinn sami. Á laugardagskvöldið var að venju kvöldvaka NSS en sú kvöld vaka hefur fyrir löngu getið sér sérstakts orðs og hefur Pálmi Gíslason átt þar drýgstan þátt, i rúmlega áratug. Hefur stundum verið haft á orði, að þó komu- menn tapi í öllum iþróttum, vinni þeir þá altént kvöldvökuna. Dans var svo stiginn fram eftir nóttu við undirleik ágætrar hljómsveit- ar á staðnum. Á sunnudaginn fór fram keppni í ýmsum greinum íþrótta og töp- uðu NSS menn þeim öllum, nema þeim tókst að vinna blakkeppni við kennara, en það hefðu nemendur aldrei þorað. Eins vannst skák- keppnin. en keppt var á 12 borð- um. Fulltrúi NSS i ritnefnd Hlyns tefldi á tólfta borði. og hló hann ógurlega þegar í Ijós kom, að and- stæðingur hans var bráðfalleg stúlka. Er það í fyrsta skipti, sem stúlka keppir í tafli fyrir hönd Bifrastar. En glottið þurkaðist smám saman af andliti mannsins og mátti hann telja sig heppinn að ná vinningi. — Að lokum urðu komumenn sammála um, að jafn- tefli hefði orðið í leikunum þar sem NSS tapaði fyrir nemendum en vann kennara. Rétt fyrir brottför brugðum við okkur upp á herbergi 206 og rædd- um við formann skólafélagsins, Ómar Óskarsson frá Hvolsvelli, þar sem hann slappaði af eftir íþrótta- keppnina. — Hvernig gengur félagslifið? — Það er nú í svipuðum skorð- um og áður. Allir klúbbarnir starfa á fullu, skólablaðið Vefar- inn kemur út með sama sniði og Þefarinn kemur út eftir þörfum. Þó er óhætt að fullyrða, að íþrótt- irnar eru með mestum blóma. — Já, þið hafið gert það gott þar. — Það er óhætt að segja það, því við unnum landskeppni fram- haldsskólanna í blaki. Kepptum til úrslita við liö Iþróttakennaraskól- ans og lið Menntaskólans á Laug- arvatni. Biðum nú aðeins eftir að fá verðlaunagripinn, sem er far- andsskjöldur mjög veglegur. Nú, annað iþróttalíf hefur líka verið i blóma og við höfum endurnýjað megnið af íþróttatækjum og fengið ný, enda klúbburinn fengið mest fjármagn í sinn hlut eða níutíu þúsund. — Hvaðan koma þeir peningar? — Það eru skólafélagsgjöldin, sem i vetur eru kr. 2.700. Þeim er svo skipt á milli klúbbanna sam- kvæmt fjárhagsáætlun. Næstur er leiklistarklúbbur með fjörutíu þúsund. — Leiklistin er í miklum blóma hjá ykkur. — Jú, fyrir áramótin sýndum við „Nakinn maður og annar í kjólfötum" eftir Dario Fó, bæði hér og í Borgarnesi Þar sem met- aðsókn var. Nú er verið að æfa „Imyndunarveikina" eftir Moliere. Leikararnir Sigurður Karlsson og Halla Guðmundsdóttir hafa stýrt þessum leikritum. — Nokkur nýmæli í starfinu? — Það er þá helst. að nú er Þetta U0 NSS sigraOi kennara Bifrastar í blaki. Aftari röð frá vinstri: Magnús Friðgeirsson, Hafsteinn Jáhannesson, Gunnar ölafsson, Guð- steinn Einarsson og Sigmar E. Arnórsson. Fremri röð frá vinstri: Heiðar Halldórsson, Tómas Jónsson og Guðjón Sigurðsson. 14 HLYNUR

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.