Hlynur - 15.02.1975, Page 19

Hlynur - 15.02.1975, Page 19
SigurOur Markússon GuCjón B. ölafsson Geir Magnússon Hjörtur Eiríksson Axel Gíslason Breytingar hjá SÍS Nýlega hafa orðið Eillmiklar breytingar hjá Sambandinu á störfum framkvsemdastjóra. Othar Hansson lét af starfi sem fram- kvaemdastjóri hjá Iceland Produ- cts Inc. í Bandarikjunum, sem er sameignarfyrirtæki Sambandsins °g frystihúsa, sem selja afurðir sínar á vegum Sjávarafurðadeildar Sambandsins. Othar hefur verið íramkvæmdastjóri Iceland Produ- cts s. 1. sjö ár. Guójón B. Olafsson tók við yfir- stjórn Iceland Products sem full- trúi stjórnar félagsins með bú- setu í Harrisburg. Guðjón er út- skrifaður úr Samvinnuskólanum og starfaði í Hagdeild Sambands- ins 1954—1955. Hann var starfs- maður á skrifstofu Sambandsins í New York á árunum 1956 og ’57 °g í Útflutningsdeild og síðar Sjáv- arafurðadeild Sambandsins i Reykjavik frá 1958 til 1964. Hann var framkvæmdastjóri skrifstofu Sambandsins i London frá 1964 til 1968 og hefur verið fram- kvæmdastjóri Sjávarafurðadeild- ar frá 1968. Geir Magnússon tók við fram- kvæmdastjórastörfum hjá Iceland Products Inc. Hann hefur verið framkvæmdastjóri Icelandic Im- ports Inc. í New York siðast liðið ár, en starfaði þar áður um 14 ára skeið hjá Coldwater Seafoods Corp, sem er dótturfyrirtæki Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna i Bandaríkjunum. Síðustu árin var hann einn af aðstoðarfram- kvæmdastjórum þess fyrirtækis. Við framkvæmdastjórn í Sjávar- afurðadeild tók Sigurður Markús- son. Sigurður lauk námi frá Versl- unarskóla Islands og starfaði i ýmsum deildum Sambandsins og hjá Olíufélaginu hf. frá 1951 til 1959. Frá 1959 til 1967 var hann framkvæmdastjóri á skrifstofum Sambandsins í Leith, London og Hamborg. Hann var framkvæmda- stjóri Véladeildar frá 1967 til 1969, er hann gerðist framkvæmdastj. Skipulagsdeildar, sem breytt var 1973 í Skipulags- og fræðsludeild. Þá hefur Hjörtur Eiríksson tek- ið við sem framkvæmdastjóri Iðn- aðardeildar Sambandsins af Harry Frederiksen, sem lést 2. febr. s. 1. Hjörtur mun hafa búsetu á Akur- eyri, en það er í fyrsta skipti, sem framkvæmdastjóri í einni af deildum Sambandsins hefur bú- setu utan Reykjavíkur. Axel Gíslason hefur svo verið ráðinn framkvæmdastjóri Skipu- lags- og fræðsludeiidar í stað Sig- urðar Markússonar. Hjörtur Eiríksson er fæddur 11. nóvember 1928. Hann stundaði nám í Verslunarskóla Islands og lauk þaðan prófi 1947, og fram- haldsnám -hjá Polytechinc í Lon- don 1947—1949. 1 ársbyrjun 1950 réðst hann til starfa hjá Iðnaðar- deild S.l &. i Reykjavík og starf- aði þar, uns hann fluttist til Ak- ureyrar árið 1952. Þar starfaði hann í öllum deildum Gefjunar í 2 ár. Á vegum Sambandsins fór hann Þá til Þýskalands og stund- aði þar nám i ullarfræði í 3 ár við Fachhochule í Aachen. Hann ihóf störf að nýju hjá Gefjun í ársbyrjun 1957 og starfaði þar sem sérfræðingur í ullariðnaði, þar til hann tók við framkvæmdastjórn verksmiðjunnar í janúar 1972, en því starfi hefir hann gengt síðan. Axel Gíslason er fæddur 1. júlí 1945. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1965, lauk fyrrihlutaprófi í verkfræði frá Háskóla Islands 1968 og loka- prófi í verkfræði frá Polyteknisk Læreanstalt í Kaupmannahöfn 1971. Starfaði sem ráðgefandi verkfræðingur hjá verkfræðifyrir- tækinu Chr. Ostenfeld W. Jans- son í Kaupmannahöfn 1971—1972. Hann var aðstoðarframkvæmda- stjóri hjá Iðnaðardeild Sambands- ins 1972—1974 og frá september 1974 aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Iceland Products, Inc. í Banda- ríkjunum. lögin vegna skömmtunarseðlanna. Nú er þetta breytt og félagið verð- ur að standa sig í samkeppninni við nágrenni Reykjavíkur, sem vissulega skapar ýmsa erfiðleika. Hins vegar nýtur það mikillar ferðamannaverslunar og þá um leið framsýni þeirra, sem ákváðu félaginu framtíðarstað hér á Brú- arlandi. Það :má bæta því hér við (innskots Hlyns), að ekki ósjaldan hefur rekstur þessa félags skilað betri arði en hinir stóru nágrann- ar í samvinnuversluninni, og Þar :með afsannað þá kenningu, að fé- lög þurfi að vera stór til að þau beri sig. Hér með var slegið botni I þetta samtal, sem ekki átti að verða annað en nöldur og eftirgangsemi, en endaði með mörgum fróðleiks- kornum um hið kvennholla kaup- félag, sem auk þess fyllir brátt 25 ára sögu. Því má bæta hér við, að samkvæmt upplýsingum Guð- mundar Tryggvasonar var félagið' stofnað þann 15. október og það sagðist hann muna glöggt því að daginn eftir 'hefði hann eignast son. B.7. HLYNUR 19

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.