Hlynur - 15.02.1975, Qupperneq 22
RagnheiOur Gunnarsdóttir.
Nemur stjórnmál
í Árósum
í Samvinnuskólanum hafa frá
fyrstu tíð sem í flestum öðrum
skólum setið saman nemendur af
báðum kynjum, numið sömu bæk-
ur og tekið sömu próf Síðan bafa
leiðir skilið. Kvenkynsneminn úr
Samvinnuskólanum hefur gjarnan
titlast skrifstofustúlka og verslun-
armær, þegar sá sterki hefur ekki
látið sér neitt minna lynda en
„stjóranafnbót“. Það hefur jafn-
vel þótt gott að titlast ritari og
tilvinnandi að prófast til jafns við
karlpeninginn eða jafnvel betur
til að öðlast þann titil.
Nú má sjá breytingarmerki á
þessu eins og flestu sem lítur að
jafnstöðu karla og kvenna. Nýlega
hefur fyrsta konan lokið fram-
haldsnámi Samvinnuskólans, en
það nám hefur staðið nemendum
til boða ár hvert í nær einn og
hálfan áratug. Áður hefur kona
spurst fyrir um þetta nám en þá
verið bent á vankanta sína og
sinna kynsystra til að takast á
hendur mikil ábyrgðarstörf hjá
samvinnuhreyfingunni. S.l. haust
hófu tvær konur með Samvinnu-
skólapróf nám við Verslunarskól-
ann 1 Kaupmannahöfn og á s.l.
ári munu tveir nemendur aðrir af
kvenkyni hafa ráðist í háskóla-
nám, önnur við Kaupmannahafn-
arháskóla og hin í Kanada.
Þann 1. febrúar s.l. innritaðist
svo Ragnheiður Gunnarsdóttir í
háskolann í Árósum í Danmörku,
en hún útskrifaðist frá Samvinnu-
skólanum 1973. Ragn'heiður sem er
frá Ásum I Skaftártungu í Vestur-
Skaftafellssýslu kom heim um s.l.
jól og var þá tekin tali.
— Hvað kom þér á sporið?
— Eftir að ég útskrifaðist úr
Samvinnuskólanum þá vann ég í
Véladeild Sambandsins í eitt ár við
faktúrugötun. Ekki leist mér á að
gera það að ævistarfi, svo ég tal-
aði við Sigurð Markússon fram-
kvæmdastjóra Fræðsludeildar Sam
bandsins, (nú framkvæmdastjóra
Sjávarafurðadeildar, innsk. Hlyns)
og spurðist fyrir um náms- og
starfsmöguleika erlendis. Hann
benti mér m.a. á vinnu í kaupfé-
lagi í Danmörku og síðan nám-
skeið á eftir í verslunarfræðum á
vegum danska samvinnusambands-
ins, FDB. Ég sótti um þetta og fór
svo til Árósa og vann þar í kaup-
félagi sem „kassedame" í % ár.
Þegar ég fór að kynna mér þetta
námskeið, sem mér stóð til boða
og haldið var í Andelskolen í Midd-
elfart á Fjóni, þá virtist náms-
efni vera samsvarandi eða tak-
markaðra en í Samvinnuskólanum,
t.d. ekkert bókhald eða vélritun.
Ég sá mér því engan hag að því
að fara á það. Þá komst ég í sam-
band við Matthildi Hermannsdótt-
ur, sem útskrifaðist úr Samvinnu-
skólanum á undan mér en hennar
maður var við nám í Árósum. Hún
benti mér á möguleikann að sækja
um beint í Árósarháskóla eða við
Handelshöjskolen þar. Við athug-
un var ekki mögulegt að komast
í verslunarháskólann að þessu
sinni sökum fjölda nemenda, en
að öðrum kosti var ekkert til fyr-
irstöðu að taka mitt Samvinnu-
skólapróf gilt. Ég sótti Því um í
Árósarháskóla og þann 15. nóvem-
ber s.l. fékk ég bréf um það að ég
fengi inngöngu þar til að læra
stjórnmálafræði.
— Er þá Samvinnuskólaprófið
metið til jafns við stúdentspróf ?
— Já að vissu leyti. Ég sótti um
undanþágu frá stúdentsprófi, en
Samvinnuskólaprófið er lagt til
jafns við Höjere Handelseksamen
i Danmörku og á þeim grundvelli
hafa t.d. Samvinnuskólanemendur
fengið inngöngu í Verslunarhá-
skólann í Kaupmannahöfn. Ég
held, að það sé ekkert því til fyrir-
stöðu að innritast í flestar deildir
Árósarháskóla, nema hvað lækna-
deildin er alveg lokuð.
— Hvað er þetta langt nám?
— Fyrri hluti er lágmark 3 ár
og þá er námið sameiginlegt með
þjóðfélagsfræði. Síðari hlutinn er
líka um þrjú ár, þannig að ég lyki
háskólaprófi eftir sex ár.
R.I.
Föstudagskvöldiö 21. mars s. I.
sýndu nemendur í Bifröst gaman-
leikinn Imyndunarveikina eftir
Moliere í Kópavogsbíó. Þaö eitt aö
taka sig upp ofan úr BorgarfirÖi
til aö sýna íbúum höfuöborgar-
svceöisins leikrit er lofsvert fram-
tak og þá ekki síöur þegar leikur
sá er áhorfendur sáu á sviöi Kópa-
vogsbíós var í röö betri sýninga á-
hugaleikflokka. Þessir ungu leik-
endur sem ceft hafa á skömmum
tíma í tómstundum frá erfiöu námi
sýndu okkur svart á hvítu hvaö
unnt er aö gera ef áhugi og vilji
er fyrir hendi. Þá settu frum-
samin lög skólastjórans, Hauks
Ingibergssonar sinn skemmtilega
svip á verkiö. Áhorfendur skemmtu
sér hiö besta og aö lokum var
leikendum þakkaö meö miklu lófa-
taki. ÞaÖ eitt fannst á skorta aö
fyrrverandi samvinnuskólanemar
voru furöu fáliöaöir á áhorfenda-
bekkjunum og heföu þeir mátt
sýna þessari kveðju frá Bifröst
meiri áhuga. Viö þökkum nem-
endum samvinnuskólans kœrlega
fyrir skemmtilega kvöldstund. A
myndinni eru t hlutverkum sínum
frá vinstri: Vilhelmína Þorvaröar-
dóttir, Kristín Karlsdóttir, Krist-
ján Eysteinsson og Finnur Ing-
ólfsson.
22 HLYNUR