Hlynur - 15.04.1982, Blaðsíða 4

Hlynur - 15.04.1982, Blaðsíða 4
Kjötsögin á kaffistofunni Þankar um vinnuvernd 0 Á þessu ári hefur orðiö vinnu- vernd verið áberandi, jafnvel hálf- gert tískuorð og er greinilega farið að fara í taugarnar á Vinnuveitenda- sambandi íslands. Þær raddir heyr- ast, að nú sé verið að búa til eitt báknið enn, sent er Vinnueftirlit rík- isins, og enn ein lögin sem aldrei sé farið eftir. þ. e. lögin um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöð- urn, sem reyndar tóku gildi 1. janúar 1981. Menn tala um pappírsflóð, endalausar kröfur á hendur atvinnu- rekendum, sem alltaf verða að borga brúsann, uppsteit á vinnustöðum, of ntikið vald öryggistrúnaðarmanna, jafnvel geðþóttalokanir út af smá- málum o. s. frv. Hefur þú kosið þinn öryggistrúnað- armann? • Að undanförnu hafa af hálfu LÍS verið haldnir fundir í nær öllunt fé- lögum samvinnustarfsmanna um- hverfis landið og á þessum fundurn hafa lögin um aðbúnað, hollustu- hætti og öryggi á vinnustöðum veriö kynnt. Þetta hefur verið gert vegna þess, að framkvæmd þessara iaga er visssulega mál hvers vinnandi manns, vinnustaðir samvinnufélaganna ættu að vera þarna til fyrirmyndar og hér er um að ræða mál, sem eðlilegt er að starfsmannafélögin gefi verulegan gaum. Hvernig er svo þessum málum háttað í samvinnufélögunum? Það er upp og ofan, eins og gengur. Víða finnast vinnustaðir, sem eru til fyrir- myndar varöandi allan aðbúnað starfsfólks, öryggi og snyrtimennsku og á það einkum við um nýrri vinnu- staði. Annars staðar er mikið verk að vinna. Undirritaður, sem sótti um 40 fundi. hafði því miður ekk næg tæki- færi að fara á vinnustaði en varð þó reynslunni ríkari. I fiskimjölsverk- smiðju var komið, þar sem starfs- maðurinn bar ekki við aö hafa eyrn- arhlífar. Þó var hávaðinn svo mikill, að ekki var hægt að halda uppi sam- ræðunt, nema með köllum. Annars staðar varð ekki komist í fiskmóttök- una, nema vel stígvélaður. Slt'k var moldardrullan og slorið fyrir framan, að ógleymdri lyktinni. Á þriðja staónum var boðið upp á gistingu á hótelherbergi, þar sem nánast allt var um og vinnusliti heim. í einni versl- uninni var svo aðstaðan til að fá sér kaffisopa við hliðina á kjötsöginni. Það var kannski grófasta dæmiö. Samkvæmt vinnuverndarlögunum á starfsfólk í öllum fyrirtækjum, þar sem vinna 10 eða fleiri, að kjósa sér sérstakan öryggistrúnaðarmann. Séu starfsmenn yfir 50, á að vera sérstök öryggisnefnd, skipuð tveimur frá starfsmönnum og tveim frá fyrirtæk- inu. Víðast hvar, þar sem fundað var, hafði enginn trúnaðarmaður veriö kjörinn, þótt lögin um það hefðu ver- ið í gildi 1. janúar 1981 og nú er spurt: Hefur þú, lesandi góður, sem væntanlega starfar á einhverjum hinna fjölmörgu vinnustaða sam- vinnufélaganna, tekiö þátt í kjöri þíns trúnaðarmanns? Starfsmannafélögin heppileg til aö standa fyrir kjöri örvggistrúnaðar- manna. • Nú er kannski spurning, hvers vegna verið sé að skrifa um þetta í Hlyn, ræöa vinnuverndarmál á fund- um í starfsmannafélögunum o. s. frv.? Er þetta ekki mál Vinnueftir- litsins, stéttarfélaganna og fyrirtækj- anna? Svarið má m. a. rekja til skoð- anakönnunar, sem LÍS stóö fyrir í maí 1979, um stöðu samvinnustarfs- manna í stéttarfélögunum og fleiri mál. 4 HLYNUR

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.