Hlynur - 15.04.1982, Blaðsíða 25

Hlynur - 15.04.1982, Blaðsíða 25
Stýrimaður kennir ungum háseta á kompásinn. Kári Halldórsson umgengst pottana með öryggi, enda ekki í fyrsta skipti, se, hann kemur í eldhús. Kári Halldórsson var bryti og veitti ómælt kaffi og kakó, ásamt einhverj- um býsnum af brauði, áleggi, pylsum og Holtakexi. Sjóveiki varð ekki vart, en sú saga gekk, að einhverjir hefðu reynt að örva fiskirí með lítt meltri fæðu. Fá- einir lögðust í koju, að eigin sögn til að njóta hreyfingar skipsins, sem minntu þá á móðurhendur, sem hrærðu vöggur þeirra í frumbernsku. Það var ánægður hópur sem steig á land aö áliðnum degi, og ekki lét Þórður Magnússon sitt eftir liggja, heldur þakkaði fyrir sig með brag sem hér birtist: Illa er okkur við allan skell en aðgerðarlaust er Litlafell. Við gera hugðumst því Grettistak og gjarnan fara út á skak. Hugmyndinni var hrint af stað hljótt er um hvernig fórum að. Kári V. skyldi kafteinninn og kúga aðra undir vilja sinn. Starfsmannafélagið stóð að því að stefna öllum á fiskirí. Kata fékk um sig karskan flokk og Kára H. fyrir aðalkokk.. A Iaugardegi var lagt í hann það lukka er fyrir sérhvern mann. Fimmtíu komu í ferðina á flaggskrýddu góðu skútuna. (En fregnin barst út á fiskaslóð það forðaði sér hvert ýsukóð, og tegundir flestar týndust burt sem trúlega höföu um Fellið spurt.) Út var nú Iagt á ysta mar alla leið út í Forirnar. Ekki var mikinn afla að fá Ördeyðubanka kalla má. Á Álbankanum var aftur reynt ákafi fólks fórt ekki leynt. Flæktust sumir í færunum en flestir stóðu á löppunum. Einn var heppinn og hann dró alvörufisk úr þessum sjó. Þeir sögðu það væri sandkoli svona álíka og frímerki. Þá hljómaði úr brúnni hárri raust: „Hankið upp færin tafarlaust". Meinlegt fiskleysið magnað var en marhnútarnir til háðungar. Keyrt var svo inn í Kollafjörð Kólga óx nú á himni og jörð. Við Kjalarnesið komið var rok þá kunngerð voru oss ferðalok. Og svona lítur aflinn út, þegar grannt er skoðaö.

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.