Hlynur - 15.04.1982, Side 5

Hlynur - 15.04.1982, Side 5
í þessari könnun var m. a. spurt hvaöa hluti starfsmannafélagið ætti að leggja mesta áherslu á í félags- starfinu og nokkur má nefnd. Þegar niðurstöður voru lagðar saman, kom í ljós, að 987 af þeim sem svöruöu eða 53.1% settu aðbúnað og sam- skipti á vinnustað í fyrsta, annað eða þriðja sæti. Annað mál hafði ekki meira vægi, næst komu fræðslumál og orlofsaðstaða. I sömu könnun var einnig spurt, hvort væri eðlilegra að starfsmannafélagið eöa stéttarfélag- ið hefði afskipti af aðbúnaði og fleiru tengdu vinnustaðnum. Niðurstaðan var sú, að 856 hölluðust að starfs- mannatelaginu, en 596 að stéttarfé- laginu. Aðrir höfðu ekki skoðun, töldu að bæði telögin ættu að sinna þessum málum eöa svöruðu ekki þessari spurningu. Miðaö viö undir- tektir og umræður unt þessi má á fundunum í starfsmannafélögunum, þá er enginn vafi að yfirgnæfandi fjöldi samvinnustarfsmanna í dag teldi það sjálfsagt mál, að starfs- mannafélögin stuðluðu að framgangi þessara laga, m. a. með því að standa fyrir kjöri öryggistrúnaðarmanna á vinnustöðum sámvinnutelaganna. Síðasta landsþing LIS, sem haldið var í september í fyrra, markaði svo ákveðna stefnu í þessum málum og Vinnumálasamband samvinnufélag- anna hefur frá fyrstu tíð stutt afskipti starfsmannafélaganna af vinnu- verndarmálum. En hvað segja menn hjá ASÍ og Vinnuefirlitinu? Hvað Vinnueftirlit- ið varðar, þá hefur tekist ágætt sam- starf við það um að kynna þessi mál á vinnustöðum samvinnufélaganna. Sarna má segja um vinnuverndar- nefnd ASÍ. Ákveðnir forystumenn innan ASÍ áttu hins vegar þátt í því, að strika út úr drögum að reglugerð um framkvæmd vinnuverndarlag- anna, að starfsmannafélög gætu á- samt trúnaðarmönnum stéttarfélag- anna komið í kring kjöri öryggistrún- aðarmanna. Þess í stað er talað um félagslega kjörna trúnaðarmanna, en hvað eru forsvarsmenn starfsmanna- félaga annað en félagslega kjörnir trúnaðarmenn? Kjarni málsins er sá, að starfs- mannafélögin eru víðast heppilegasti aðilinn til að annast fyrstu fram- kvæmd á grundvallarþætti þessara laga — að kjósa öryggistrúnaðar- menn, — nokkurs konar kjörstjórn líkt og þegar verið er að kjósa fulltrúa í stjórn samvinnufélaga eða fulltrúa félagsins í vinnustöðum. Víðast eru starfsmenn samvinnufélagsins í mörgum stéttarfélögum en samein- ast svo allir í starfsmannaféiaginu. Þar sem vinnustaðir eins samvinnu- félags eru margir og fjölþættir, er ennþá augljósara, að starfsmannafé- lagiö er heppilegasti aðilinn í sam- starfi við forsvarsmenn samvinnufé- lagsins, að koma þessum málurn í kring. Víða skapast mikið álitamál, hvað teljist sjálfstæðir vinnustaðir, hvernig er með útibú o. s. frv. Fjórða greinin í reglugerðinni gerir reyndar ráð fyrir sérsamkomulagi um kjör trúnaðarmanna, þegar þannig stend- ur á. Rétt er að undirstrika að við- komandi fyrirtæki á að skipa sérstak- an öryggisvörð á móti hverjum ör- yggistrúnaðarmanni sem starfsmenn kjósa. Þessir ntenn eiga svo í sam- vinnu að vinna að því, að lögum og reglum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi sé framfylgt. Hlutverk öryggistrúnaðarmanna, ör- yggisvarða og öryggisnefnda. "• Samkvæmt vinnuverndarlögunum er hlutverk öryggisvarða, öryggis- trúnaðarmanna og öryggisnefnda stórt. Reyndar er öllu vinnandi fólki lagöar þar skyldur á herðar og jafn- framt veittur mjög aukinn réttur til aö hafa áhrif á vinnuumhverfi sitt. Kannski stærsta sporið sem stigið hefur verið hér á landi í átt til at- vinnulýðræðis? Ofannefndir aðilar eiga að vinna að bættum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi, fara í reglulegar eftirlitsferðir um vinnu- staðina og fylgjast með vélum, tækj- utn og öryggisbúnaði, taka við öllum ábendingum og kvörtunum frá starfs- fólki og koma úrbótum í höfn, fylgj- ast með breytingum á vinnustöðum og vinnuaðstöðu og sjá til þess að starfsfólk sé þar með í ráðum, fá til- kynningar um öll slys og óhöpp og taka öll slík tilfelli fyrir, stöðva vinnu, ef starfsfólk er talið í hættu, fylgjast með að reglum um lágmarkshvíld og frídaga se fullnægt. færa sérstaka eftirlitsbók, sjá til þess að starfsfólk fái fræðslu og tilsögn um störf sín og svo má lengi telja. Samvinnan er lykilorðið. • Sú lenska hefur ríkt hér á landi, að vinnustaðurinn sé einhver annars flokks staður. Við gerum að jafnaði miklu meiri kröfur til okkar heimilis. Þó verjum við mörg hver engu minni tíma á vinnustaðnum, en á heimilinu. Góð heilsa og starfsþrek er dýrmæt- asta eign hvers manns. Góður að- búnaður, heilsufar og öryggi á vinnu- stöðum bætir ekki aðeins vellíðan starfsfólksins, heldur kemur fyrir- tækinu til góða í betri vinnu og meiri afköstum. Vonandi verður þessi nýja löggjöf um vinnuvernd til þess að koma á markvissu samstarfi og sam- vinnu starfsfólks og stjórnenda með öflugu aöhaldi frá Vinnueftirlitinu og stéttarfélögunum. Þessurn málum verður lítið þokað áleiðis með illind- um og árekstrum. Gott samstarf og samstaða inni á vinnustöðunum er það sem þarf. Hér eiga samvinnufé- lögin og starfsmenn þeirra að vísa veginn og það er þegar gert á margan hátt sem betur fer. Samvinnan er lyk- illinn. — Reynir Ingibjartsson. HLYNUR 5

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.