Hlynur - 15.04.1982, Blaðsíða 35
• Síðastliðið haust var í verksmiðj-
unum á Akureyri efnt til leiklistar-
námskeiðs. Þar leiðbeindi Theodór
Júlíusson, leikari. Arangurinn af
starfi hans varð þvílíkur, að sett var á
svið revía, sem kölluð var Verk-
smiðjuhús Q. Höfundar voru þau
Margrét Emilsdóttir og Birgir Mar-
inósson og lög og söngtextar eftir
Birgi. Revían fjállar um bónda, sem
flyst í menninguna á Akureyri, fer að
vinna þar í verksmiðju (hvað ann-
að?), og svo er tekið fyrir, hvernig
ekki á að stjórna (og ég sem hélt að
verksmiðjunum á Akureyri væri svo
vel stjórnað).
Revían hefur nú verið sýnd sjö
sinnum fyrir fullu húsi eða um 200
manns í hvert skipti og undirtektir
frábærar. Þegar þetta er skrifað, er
ekki vitað, hvort sýningar geta orðið
fleiri eða hvort við hér fyrir sunnan
eigum þess kost að sjá verkið, en
vissulega væri það þess virði.
Meðfylgjandi myndir sendu þeir
norðanmenn okkur.
Fundur í Æðsta-ráði. F. v.: Jóhann Sigurðs-
son, Árný Runólfsdóttir, Sigurður Einars-
son, Birgir Marinósson og Júlíus Thoraren-
sen.
Söngur ræstingakonunnar. Steinunn Ein-
arsdóttir.
Heima hjá Steina. F. v.: Anna Bergþórsdótt
ir, María Jóhannsdóttir, Helga Hilmarsdótt-
ir og Fríða Aðalsteinsdóttir. Sitjandi: Krist-
rún Geirsdóttir, Margrét Emilsdóttir og Sal-
vör Jósepsdóttir.
HLYNUR 35