Hlynur - 15.06.1995, Side 7
• Fjármálalegt afrek
Fyrir síðnstu kosningar birtist í Morgun-
blaðinu greinaflokkur um Sambandið
eftir Agnesi Bragadóttur blaðamann.
Var frásögn hennar sannleikanum sam-
kvæm að þínum dómi?
„Það eru ekki liðin full þrjú ár síð-
an Sambandið gerði sína stóru
eignasölusamninga við Landsbank-
ann. Ég er enn þeirrar skoðunar að
efni þessara samninga sé trúnaðar-
mál að öðru leyti en því sem fram
kemur í ársreikningum Sambands-
ins fyrir árin 1992 og 1993, en þá
reikninga má nánast líta á sem opin-
bert plagg. Að sinni vil ég því gæta
allrar hófsemi í að tjá mig um þessi
blaðaskrif. Landsbankamenn sýndu
mikla djörfung þegar þeir ákváðu að
taka á málefnum Sambandsins með
þeim hætti sem þeir gerðu. Ég get
verið leiðarahöfundi Morgunblaðs-
ins sammála þegar hann leggur út af
texta Agnesar og kemst að þeirri nið-
urstöðu að sennilega hafi það verið
meiriháttar fjármálalegt afrek,
hvernig rekstur Sambandsins var til
lykta leiddur og skuldir þess greidd-
ar upp.
• Öfgalaus umræba
Telur þú að linnulaus áróður andstœð-
inga samvinnumanna, sem ráða yfir öfl-
ugustu fjölmiðlum landsins, hafi átt
sinn þátt í erfiðleikum Sambandsins.
„Svarið er nei, en um leið vil ég
gera þá athugasemd að dagar hins
„linnulausa áróðurs" eru að mínum
dómi löngu liðnir og vonandi koma
þeir aldrei aftur. Skipulagsmál Sam-
bandsins, skuldaskil þess og málefni
hinna nýju hlutafélaga hafa eðlilega
verið mikið rædd af ýmsum fjöl-
miðlum, og þegar ég lít yfir þessi
síðustu fimm ár, þá finnst mér að
þessi umræða hafi yfirleitt verið
öfgalaus og málefnaleg."
• Félagslegur vettvang-
ur
Að lokutn: Er samvinnuhugsjónin enn í
fidlu gildi og telurðu að einhvers konar
samband kaupfélaganna tnuni rísa upp
aftur?
„Samvinnuhugsjónin er enn í
fullu gildi, en eins og allt annað,
sem á sér bústað í hugskoti manns-
ins, verður hún að laga sig að breytt-
um kringumstæðum. Starfsemi Sam-
bandsins hefur löngum verið tví-
þætt, félagsleg og viðskiptaleg. Nú
má segja að viðskiptalegi þátturinn
sé „af oss rakinn" svo vitnað sé í
gamalt kvæði en eftir situr félagslegi
þátturinn. Sambandið er því enn,
eins og það hefur alltaf verið, lands-
samband kaupfélaganna. Fimm
manna nefnd, kosin samkvæmt til-
lögu á síðasta aðalfundi Sambands-
ins, er nú að athuga framtíðarmálin
og ég býst við að hún leggi fram til-
lögur sínar fyrir lok þessa árs. Ég veit
að margir eiga erfitt með að hugsa
sér Sambandið án þeirra viðskipta-
legu umsvifa sem löngum voru meg-
inþátturinn í starfsemi þess. Ég
minni hins vegar á að landssamtök
hér á landi skipta tugum. Fæst þeirra
hafa þó annan eins bakhjarl og
kaupfélögin sem velta um 30 millj-
örðum króna á ári. Ég vil því gefa
mér að þau hafi fullkomið bolmagn
til þess að viðhalda þeim félagslega
vettvangi sem Sambandið er."
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga
Verslum með allar nauðsynjavörur
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga
Sfmi 475 1500
Hlynur • z7