Hlynur - 15.06.1995, Blaðsíða 9

Hlynur - 15.06.1995, Blaðsíða 9
Kaupfélagi Þingeyinga ekki að flytja inn nægan vetrarforða haustið 1886. Matarskortur var því yfirvof- andi hjá kaupfélagsmönnum á kom- andi vetri. Skemmur selstöðuversl- unarinnar voru hins vegar fullar af vörubirgðum. Þaðan þurftu kaupfé- lagsmenn þó ekki að vænta neinnar hjálpar. Verslunin hafði lagt á þá al- gert viðskiptabann - nema með því skilyrði að þeir sneru baki við félagi sínu og skuldbundu sig til að versla eingöngu við selstöðuverslunina í framtíðinni. Félagsmenn höfðu þegar fengið reynslu fyrir því að kaupfélagsversl- unin var hagstæðari en viðskipti við kaupmenn. Menn voru orðnir bjart- sýnir. Þeir sáu í hillingum hvers vænta mætti í framtíðinni, þegar fé- lagi þeirra yxi fiskur um hrygg. Neyddust þeir aftur á móti nú til að ganga selstöðuversluninni á hönd, táknaði það skipbrot þeirra manna sem glæstastar vonir höfðu bundið við kaupfélagið um bættan efnahag og aukna menningu. Þannig stóðu sakir; og nú voru góð ráð dýr. • Sigling afo vetrarlagi? í nóvembermánuði árið 1886 hittust þeir Snorri Oddsson í Geitafelli og Benedikt Jónsson á Auðnum, og fundi þeirra hefur sá síðarnefndi lýst í bréfi til Kristjáns Jónasarsonar: „Þá sagði Snorri: „Hvað á nú að gera í vetur? Nú knýr neyðin vafa- laust marga til þess að ganga að verslunarókjörum hjá Guðjohnsen. Hann hefur hótað að ganga nú mill- um bols og höfuðs á Kaupfélag- inu . . ." Ég hugsaði ekkert út í mál- ið en fleipraði strax: „Panta nú þeg- ar vörur og fá þær upp í vetur!" - Við þögðum um stund og þá fór ég að hugsa um hvað ég hafði sagt. Var þá þetta nokkurt fjarmæli? . . . Voru ekki vetrarferðir skipa norður fyrir land einmitt það sem þurfti að koma á og sýna öllum heiminum að þær væru mögulegar? . . . Svo fórum við heim, skrifuðumst á um þetta og staðréðum að drífa þetta í gegn hvað sem það kostaði . . . Loks fórum við Snorri á stað upp í Gautlönd og ekki burtu þaðan fyrr en búið var að skrifa öllum fulltrúum og skora á þá að taka málið til umræðu og safna pöntun fyrir jól." Bréf var skrifað Jóni Vídalín 4. jan- úar 1887 og hann beðinn að flytja málið við Louis Zöllner, stórkaup- mann í Newcastle, en hann reyndist kaupfélaginu góður umboðsmaður og viðskiptavinur bæði fyrr og síðar. Vörupöntun var send með bréfinu og jafnframt var Zöllner beðinn að útvega skip til vöruflutninganna. í bréfinu er komist svo að orði: „Oss dylst eigi að það geti orðið nokkru kostnaðarmeira að fá vör- urnar svona snemma (á góu eða ein- mánuði), en félagið vill mikið til vinna að þetta geti orðið, því að það er hið eina ráð til að losa hvern ein- stakan félagsmann úr verslunará- nauð kaupmanna og gera félagið sjálfstætt." Þessi ummæli eru til vitnis um, hve hér var mikið í húfi og hvílíkt stórræði og nýmæli var um að ræða. Það var óþekkt að kalla í siglinga- og verslunarsögu Norðurlands á þess- um árum að þangað væri skipi siglt frá útlöndum að vetrarlagi. • Vonirnar rætast Zöllner brást fljótt og vel við mála- leitan Kaupfélags Þingeyinga. Hann útvegaði vörurnar og leigði skip til fararinnar. Það var gufuskipið Miaca, eign Ottós Wathne útgerðarmanns á Seyðisfirði, en skipstjóri var bróðir hans, Tönnes Wathne. Tönnes Wathne sagði síðar að honum hefði verið vel ljóst að þetta SKILAR ÞU UMBÚÐUm Á RÉTTAN STAÐ? Umbúðir á eftirfarandi lista eru í umsjá Endurvinnslunnar hf.: Áldósir 33 cl og 50 cl Einnota plastdósir 33 cl Einnota plastflöskur 50 cl - 2 lítra Einnota glerflöskur fyrir öl og gosdrykki Bjórflöskur Áfengisflöskur Á allar ofangreindar umbúðir er lagt 7 kr. skilagjald sem er endurgreitt við móttöku i Endurvinnslunni hf. eða hjá umboðsaðilum um allt land. EKBttBmtlSUHHF Nýlt úr noludu! Hlynur • ©

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.