Hlynur - 15.06.1995, Qupperneq 18
• Skógræktarmeim hálf-
gerbir sérvitringar
- Og almenningur á svœðinu, t.d.
íbúar í þéttbýliskjömum eins og á Eg-
ilsstöðum, sýna þeir skógrcektinni
áhuga og velvilja?
Yfirhöfuð líta menn mjög jákvætt
á þetta og eru stoltir yfir þessu verk-
efni. Mér finnst þetta hafa snúist við
með tímanum. Fyrir kannski 20
árum síðan var litið á skógræktar-
menn sem hálfgerða sérvitringa, en
þetta voru afar duglegir menn og
bjuggu yfir miklum hugsjónaeldi.
Ég held að þeir sem telja þetta
heimskulegt eða vitlaust í dag séu
jafnsjaldgæfir og þessir brautryðj-
endur voru þá.
• Þung andspyrna á sub-
vesturhorninu
- Nú hefur þetta varla verið sam-
felldur dans á rósum, þið hljótið að
hafa mœtt einhverjum erfiðleikum.
Hverjir hafa þeir verið helstir?
Erfiðast var að koma þessu af stað
og sérstaklega að vinna verkefninu
fylgi á suövesturhorninu. Það var
geysilega erfið og mikil vinna því
við fundum þunga andspyrnu. Fyrir
mitt leyti sem framkvæmdastjóri
Fféraðsskóga, þá fannst mér það
langtímafrekast og erfiðast. Fram-
kvæmdin sjálf hefur gengið nokkuð
átakalaust. Afföll af gróðursetning-
um eru um 22%, það sem sagt drep-
ast 22% af plöntunum sem við gróð-
ursetjum. Miðað við Skandinavíu
telst það mjög gott. í Svíþjóð eru
25% afföll talin eðlileg og okkar af-
föll eru innan þeirra marka svo við
megum vera mjög ánægðir með ár-
angurinn.
• Við reynum ab bregb-
ast vib erfibleikum í
skógrækt
- Þið hafið ekki lent í sjúkdómum
eða slaemu árferði?
Jú, það er alltaf ákveðnir hlutir
sem vinna gegn okkur. Skordýr geta
reynst hinir mestu skaðvaldar, ann-
ars vegar þau sem ráðast á rótakerfið
og hins vegar skordýr sem ráðast á
græna hluta plöntunnar og geta
skemmt hana mjög eða drepið
hana. Hreindýr ráðast á plöntur sem
hafa náð eins til tveggja metra hæð.
Það kemur fyrir að búpeningur
sleppur inná friðuð svæði og bítur
ofan af plöntum. Gæsir fara í
ákveðnar tegundir og skemma þær
og síðan er það blessað veðurfarið,
kal í plöntum og þurrkar. Þetta eru
allt saman hlutir sem við getum bú-
ist við og vitum að geta átt sér stað
og við reynum aö bregðast við þeim
með ráðum sem við þekkjum.
• Skógrækt skilar þjób-
arbúinu arbi
- En á þessum samdráttartímum og
tali um niðurskurð útgjalda hjá hinu
oþinbera, eruð þið ekki hrœddir um að
fjárveitingar til Héraðsskóga verði
skomar niður í sparnaðarskyni?
Ég myndi ekki líta á það sem sparnað
að hætta þessu. Alls ekki. Ég lít á
þetta verkefni sem sparnað. Þetta
kemur til með að skila beinum nytj-
um. Það tel ég jafneðlilegt og að vega-
gerð borgar sig. Mér finnst skógrækt
jafnsjálfsögð og vegagerð. Það eru
lagðir vegir og það er ræktaður skóg-
ur. Ég lít ekki á nytjaskógrækt sem til-
raun eða þróun. Við erum að skapa
ákveðið hráefni sem kemur til með
að skila mönnum hér atvinnu og
þjóðarbúinu arði. Það er enginn efi í
mínum huga, mér finnst þetta bara
eölileg ályktun út frá þeirri reynslu
sem fengin er. Hér hefur atvinna
dregist saman í sveitunum út af sam-
drætti í sauðfjárrækt en þetta hefur
verið mjög öflugt sauðfjárræktar-
svæði. Skógrækt er afar mannaflafrek
sem þýðir að ef menn vilja skapa
ákveðin verkefni til að sporna við at-
vinnuleysi þá nýtast peningar sem
eru settir í skógrækt afar vel. Það er
enn einn jákvæður þáttur nytjaskóg-
ræktar.
• Vib erum tilbúnir ab
abstoba
- Hefurðu orðið var við áhuga fyrir
svipuðu verkefni og Héraðsskógum hjá
bœndum annarsstaðar að af landinu?
Hefur verið leitað til ykkar?
Þeir hafa leitað til okkar og við
höfum heyrt í og haft ágæt sam-
skipti við bændur í Eyjafirði og
sömuleiðis á Suðurlandi. Ég held
samt að það sé ekki rétta leiðin að
við skiptum okkur af þeirra málum.
Þetta er eitthvað sem þeir verða að
koma sér saman um og frumkvæðið
verður að koma frá bændum sjálf-
um. Við erum aftur á móti reiðu-
búnir til að aðstoða þá. En við erum
ekki tilbúnir til og ég held að það sé
ekki rétt að við eigum frumkvæðið.
Það verður að koma frá heima-
mönnum. Annars held ég að það
borgi sig ekki að vera að þessu.
* Skotland á margt sam-
eiginlegt meb okkur í
skógrækt
- Hvert hafa Héraðsskógar getað leit-
að aðstoðar, ekki er mikilli nytjaskóg-
rcektarreynslu fyrir að fara hér heima?
Við erum í mjög góðu samstarfi
við Skógrækt ríkisins. Þeir hafa
reynst okkur ákaflega vel og aðstoð-
að okkur við áætlanagerð og eru
alltaf reiðubúnir með faglega að-
stoð. Við höfum líka verið og erum í
ágætum samskiptum við öll Norður-
löndin og erum aðeins að byrja að
kynnast Skotum. Þeir hafa meðal
annars heimsótt okkur til að skoða
aðstæður og hvernig við stöndum
að nytjaskógrækt. Við höfum einnig
heimsótt skoska skógræktarmenn
og við getum ákaflega mikið lært af
þeim, jafnvel meira en af Norður-
landabúum því það er margt nokk-
uð skylt með okkur og Skotum í
skógrækt. Skandinavar hófu mark-
vissa skógrækt uppúr síðustu alda-
mótum en Skotar voru að byrja fyrir
svona 40 árum síðan sem er mun
nær okkur í tíma. Þeir eru líka geysi-
lega miklir sauðfjárræktendur og svo
er Skotland á eyju en Norðurlöndin
á meginlandi.
'D® • Hlynur