Hlynur - 15.06.1995, Page 23

Hlynur - 15.06.1995, Page 23
l'llyrvur -cymnvir' ís eus <a ■ ram eiðs u Kjötumboðið hf. Þann 7. mars sl. afhenti umhverf- isráðherra, Ossur Skarphéðins- son, þremur fyrirtækjum umhverf- isverðlaun og er Kjötumboðið eitt þeirra, hin eru Gámaþjónustan og Umbúðamiðstöðin. Þessi þrjú fyrirtæki eru fyrst fyrirtækja til að hljóta viðurkenningu ráðuneytis- ins en stefnt er að því að viður- kenning sem þessi verði árlegur viðburður. Umhverfisráðherra sagði við afhendinguna að Kjöt- umboðið hefði tekið upp sérstaka umhverfisstefnu innan síns fyrir- tækis þar sem öll starfsemin er kortlögð og verkefni síðan skil- greind og markmiðið að draga sem mest úr allri mengun frá fyrir- tækinu. Það er ánægjulegt fyrir starfsfólk Kjötumboðsins að fá viðurkenningu á því starfi sem unnið hefur verið í fyrirtækinu að undanförnu með því að Kjötum- boðið er eitt af þremur fyrirtækj- um sem fengu heiðursskjal fyrir að skara fram úr. Nýjungar frá Kjötumboðinu: Fullmeyrnað ungnautakjöt Ný vörulína Kjötumboðið setti núna í mars á markaðinn nýja vörulinu með full- meyrnuðu nautakjöti sem er nýj- ung í framsetningu á nautakjöti. Hér eru sérhannaðar umbúðir og miðar fyrir fullmeyrnað nautakjöt. Þetta er til mikils hagræðis fyrir neytendur þar sem á merkimiðan- um koma fram upplýsingar um meyrnun. Nokkuð hefur skort á að neytendur væru upplýstir um meðferð á nautakjöti ekki síst meyrnunarferil þess. Hér er bætt úr því með því að sýna grafískt meyrnunarferilinn. A miðanum kemur fram meyrnun kjötsins mið- að við daga frá slátrun. Ný vörulína í dilkakjöti Kjötumboðið hefur sett á markað ferskt dilkakjöt í lofttæmdum um- búðum undir vörumerkinu 'Alltaf ferskt'. Núna utan sláturtíðar er frosið kjöt þítt upp og pakkað. Þegar nýslátrað er á markaðinum verður því pakkað kældu. Þessi aðferð lengir geymsluþol ferskrar vöru samanborið við filmupakkað (pre pack) kjöt sem er til hagræð- is fyrir verslunina og neytendur. Fullmeyrnað dilkakjöt kemur i framhaldi af fullmeyrnuðu ung- nautakjöti sem kom á markað í mars. Meyrt, mjúkt og gott Ásamt því að geymsluþol lengist heldur kjötið áfram að meyrna og batna í umbúðunum og nær um 80% meyrnun eftir 4 daga. Kjötið er tilbúið í ofninn, grillið eða pönnuna, meyrt og gott. Vörumerkió fær nýjan svip Vörumerkið Goði hefur fengið nýjan svip. Helstu breytingar eru þær, að bakgrunnur er rauður í stað þess að vera hvítur og stafir hvítir i stað svartra. Nýtt slagorð „alltaf aóður" fylgir með nýju út- liti. Kjötútflutningur til Banda- ríkjanna Kjötumboðið hf. hefur undanfarn- ar vikur unnið að útflutningi á stykkjuðu lambakjöti til Bandaríkj- anna i samráði við Bændasam- tökin sem hafa stutt þessa mark- aðsvinnu með styrk til kynningar- átaka i verslunum í New York. Eftir heimsókn fulltrúa Kjötum- boðsins, Bændasamtakanna og fulltrúa frá Rannsóknastofnun landbúnaðarins til New York í mars sl. hefur verið unnið að undirbúningi og eru fyrstu send- ingar komnar á markaðinn í New York. Kjötið er markaðsett sem náttúruvæn afurð og undir- strikaður eins og svo oft áður hreinleiki kjötsins og mengunar- laust umhverfi ísl. náttúru. Fram kemur í kynningarbæklingi að á Islandi eru ekki notaðir hormónar við kjötframleiðslu og engar lyfja- leifar finnast í kjötinu. Hingað til hefur kjötið komið frá sláturhúsi Kf. Þingeyinga á Húsavík en það hús er viðurkennt á Bandaríkja- markaði ásamt sláturhúsum KVH Hvammstanga, KASK Hornafirði og SS Selfossi. Hlynur •

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.