Hlynur - 15.06.1995, Page 26

Hlynur - 15.06.1995, Page 26
Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum: Almenn sölubúð þar sem fást flestar ferðavörur ásamt nauðsynja- og gjafavörum. Söluskáli opinn til kl. 23.30, býður upp á brauð, mjólk, pylsur, ís, öl, sælgæti, tóbak og ýmsar smávörur sem ferðalanga gæti vanhagað um. Essoþjónustustöð er selur bensín, olíur og ýmsar smávörur fýrir bifreiðina. Þvottaplan, tjaldstæði og snyrting. Borgarfirði eystra: Almenn sölubúð með allar nauðsynjavörur. Esso þjónustustöð. Seyðisfirði: Almenn sölubúð Hafnargötu 28 (Þórshamar). Þar fást allar nauðsynja- og ferðavörur. Reyðarfirði: Almenn sölubúð sem selur allar nauðsynja- og ferðavörur. Esso þjónustustöð. Bensín, olíur og ýmsar smávörur fýrir bifreiðina. 'Wfmomm tií'<^mfötur(anm Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum • Reyðarfirði • Borgarfirði eystra • Seyðisfirði Kvebskapur í krossgátum Krossgáta Hlyns nýtur mikilla vin- sælda, en höfundur hennar er Ragnar S. Gröndal sem samið hefur krossgátur um langt skeið fyrir blöð og tímarit. Hér fara á eftir lausnir á fjórum síðustu krossgátum Hlyns, en þær felast jafnan í vísum eins og kunnugt er, og eru allar samdar af Ragnari. Létt er að stíga lífsins spor, ljúf er gleðin sanna, þegar eilíft æskuvor er í hugum manna. Það fer enginn út í horn einmana og grætur, þar sem lítið kærleiskorn kann að festa rætur. Árum linnir, allt fer burt, ellin grynnir sporið, aldrei finnur einær jurt öðru sinni vorið. Meðan lygin frjáls og frí fer með stórum orðum, sannleikskornið situr í sínum föstu skorðum. • Hlynur

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.