Fréttablaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 6
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Verð áður 3599 kr. kg
- 35%
Folaldakjöt
af nýslátruðu
2339 kr.kg
Folalda Piparsteik innralæri
VIÐSKIPTI 365 hf. og aðrir smærri
hluthafar í Högum hyggjast setja
fram tillögu fyrir aðalfund félags-
ins um að kosningar til stjórnar
fari fram með margfeldiskosningu
ef fleiri eru í framboði en koma til
með að skipa stjórnina. Stjórnarkjör
fór fram í Högum í gær. Jón Ásgeir
Jóhannesson, fjárfestir og stofnandi
Bónuss, var meðal frambjóðenda en
náði ekki kjöri. Aðalfundur Haga fer
fram í júní, og verður þá gengið til
stjórnarkjörs á ný.
Margfeldiskosning er þegar kosið
er beint milli einstaklinga, og er sú
aðferð almennt talin minnka bilið
milli stórra og smárra hluthafa,
þannig að meiri líkur séu á að full-
trúar þeirra sem minna eiga komist
að. Komið hefur fram í fjölmiðlum
að 365 hafi verið meðal þeirra hlut-
hafa sem kröfðust margfeldiskosn-
ingar fyrir stjórnarkjörið í gær. Kröf-
unni var vísað frá þar sem einungis
9,95% hluthafa hefðu sent inn gilda
kröfu, en 10% þarf til að knýja fram
slíka kosningu.
„Með tilkomu tilnefningarnefnda
er alveg ljóst að þeir sem ekki hljóta
náð fyrir þeirra augum eiga á bratt-
ann að sækja. Stofnanafjárfestar eru
gjarnir á að kjósa í samræmi við til-
lögur nefndanna, og reynslan sýnir
að þær byggja mat sitt að stærstu
leyti á samráði við allra stærstu
hluthafana. Ég tel því algerlega
nauðsynlegt að vernda minni hlut-
hafa, og margfeldiskosning er lýð-
ræðislegasta kosningakerfið sem
hlutafélagalögin bjóða upp á,“ segir
Jón Ásgeir.
Aðspurður hvort minni hluthafar
í Högum hyggist freista þess að boða
til annars hluthafafundar sagði Jón
Ásgeir að slíkt sé ekki á dagskrá hjá
honum, að minnsta kosti. „Það er
stutt í næsta fund í júní. Við bíðum
þangað til, enda tel ég farsælast að
stjórnendur og stjórn hafi frið þang-
að til til þess að sinna rekstrinum.
Ég óska þeim alls hins besta í sínum
störfum.“ olof@frettabladid.is
Vilja margfeldiskosningu í Högum í júní
Smærri hluthafar í Högum ætla að setja fram tillögu um margfeldiskosningu til stjórnar Haga á aðalfundi félagsins sem fer fram í júní. Í
slíkri kosningu er kosið beint milli einstaklinga. Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir náði ekki kjöri til stjórnar Haga á hluthafafundi í gær.
Margfeldiskosning
er lýðræðis-
legasta kosninga-
kerfið sem
hlutafélagalögin
bjóða upp á.
Jón Ásgeir Jóhannes-
son, fjárfestir og
stofnandi Bónuss
9,95%
hluthafa vildu margfeldis-
kosningu í gær.10% þarf til.
Aðalfundur Haga fer fram í júní og verður þá gengið til stjórnarkjörs á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BRETLAND Donald Tusk, forseti leið-
togaráðs ESB, og Theresa May, for-
sætisráðherra Bretlands, ræddust
í gær við í síma um næstu skref í
Brexit-málinu. Tusk greindi frá sím-
talinu á Twitter en sagði ekki nánar
frá því hvað þeim fór í milli. May
fundaði að auki með nokkrum ráð-
herrum í gær og ræddi við Angelu
Merkel Þýskalandskanslara og
Mark Rutte, forsætisráðherra Hol-
lands, í gærkvöld. Hún býst við því
að eiga í frekari viðræðum við evr-
ópska leiðtoga um helgina.
Erfið pattstaða er nú uppi í
Brexit-málinu eftir að breska
þingið hafnaði samningi May-
stjórnarinnar við ESB á afgerandi
hátt. May á að kynna næstu skref
ríkisstjórnarinnar á mánudaginn en
samkvæmt Rutte er erfitt að sjá fyrir
sér breytingar á samningnum sem
nú þegar hefur verið teiknaður upp.
„Ég sagði henni að ég sæi ekki
fyrir mér hvernig ætti að breyta
nokkru. Hún býst fastlega við því að
Bretar gangi úr Evrópusambandinu
þann 29. mars,“ sagði Rutte í gær.
Sú dagsetning er settur útgöngu-
dagur og þótt stjórnarandstaðan í
Bretlandi vilji að henni sé frestað
af ótta við samningslausa útgöngu
er May ekki á sömu skoðun. Hefur
sagt að ríkisstjórninni beri skylda
til þess að verða við þeirri kröfu
sem breska þjóðin setti fram í
þjóðar atkvæðagreiðslunni árið
2016. – þea
Theresa May ræðir við ESB-leiðtoga
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands. NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNSÝSLA „Mér finnst þessi
úttekt góð og vönduð af hálfu Ríkis-
endurskoðunar. Það sem maður
tekur út úr þessari skýrslu er að hún
staðfestir það sem Fiskistofa hefur
ítrekað bent á,“ segir Eyþór Björns-
son fiskistofustjóri um stjórn-
sýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á
stofnuninni sem kynnt var í gær.
Niðurstaðan er að þröngur kostur
gerir Fiskistofu illmögulegt að sinna
eftirlitshlutverki sínu.
Eyþór segir að þau atriði sem
Fiskistofa hafi ítrekað bent á séu
að koma þurfi til endurskoðunar
á regluverkinu til þess að styrkja
stofnunina í hlutverki sínu.
„Þá þarf að horfa til tækninýj-
unga sem getur verið skilvirk og
hagkvæm leið til að styrkja eftirlit
og það þarf að athuga hvort stofn-
unin sé fullnægjandi mönnuð til að
takast á við þessi viðfangsefni.“
Mannekla og niðurskurður skín í
gegn í skýrslunni því á meðan alvar-
legar athugasemdir eru gerðar við
frammistöðu og burði stofnunar-
innar til að takast á við verkefni
sín og framfylgja lögum um stjórn
fiskveiða má einnig lesa um að
starfsmönnum hefur fækkað um 29
prósent frá árinu 2008. Verkefnum
hefur hins vegar fjölgað.
Aðspurður hvort þarna séu
úrbætur sem Fiskistofa hafi tök
á að fara í strax eða hvort til þurfi
lagabreytingar og fjármögnun
segir Eyþór að vinna hafi staðið
yfir í ýmsum þáttum sem þar eru
tilgreindir, meira að segja meðan
skýrslan var í vinnslu.
„Við erum alltaf að reyna að bæta
okkur, varðandi samstarf um vigt-
un og hafnarvog, einnig að skoða
samstarf við Landhelgisgæsluna,
vinna með ráðuneytinu að reglum
um vigtun. Við erum að vinna í
mörgum þessum þáttum sem þarna
eru nefndir.“ – smj
Fiskistofuskýrslan staðfestir það sem
stofnunin hefur sjálf ítrekað bent á
Eyþór Björnsson,
fiskistofustjóri.
1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð