Fréttablaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 45
Ertu rafvirki
og langar að breyta til?
OR er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður fólks
með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að
vera í fremstu röð hvað snertir öryggi, jafnrétti,
vinnu og einkalíf.
Við leitum að manneskju í teymi iðnmenntaðs starfsfólks á
Þjónustuvakt Orku náttúrunnar, Veitna og Gagnaveitu Reykjavíkur.
Þetta er fjölbreytt starf í tæknilegu starfsumhverfi fyrir fólk sem hugsar í
lausnum og nýtur sín í samskiptum.
Verkefni og kunnátta:
Unnið er á vöktum allan sólarhringinn, alla daga ársins, og verkefnin eru
mjög fjölbreytt svo sem að svara erindum viðskiptavina og vakta kerfi.
Viðskiptavinir okkar eru allskonar en eiga það sameiginlegt að njóta lífsgæða
sem fólgin eru í heitu og köldu vatni, rafmagni, fráveitu og ljósleiðara.
Við erum rafbílaeigendum innan handar allan sólarhringinn og hjálpum
viðskiptavinum Orku Náttúrunnar að nota Hlöður fyrirtækisins.
Þú þarft að hafa sveinspróf í rafvirkjun, vera tölvulæs og hafa áhuga á að
tileinka þér nýja tækni til að ná tökum á þessu starfi, auk þess að búa yfir
heilmikilli þjónustulund.
Við hvetjum konur og karla til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Ásdís Eir Símonardóttir mannauðsráðgjafi
í netfanginu starf@or.is. Þú sækir um á ráðningavef OR, starf.or.is,
þar sem nánari upplýsingar um starfið er að finna.
Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2019
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Verkfræðingafélag Íslands leitar að fulltrúa
á skrifstofu í fullt starf
Starfslýsing
• Móttaka, símsvörun og þjónusta við félagsmenn
á sviði kjaramála
• Ráðgjöf til félagsmanna um ýmis kjara-
og réttindamál
• Úthringingar og aðstoð við bókara félagsins
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• Þekking á kjaramálum kostur
• Almenn tölvukunnátta
• Rík þjónustulund og gott viðmót
• Mjög góð samskiptahæfni
• Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
• Frumkvæði og hæfni til að vinna undir álagi
Nánari upplýsingar veitir:
Áslaug Kristinsdóttir, aslaug@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar 2019.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Verkfræðingafélag Íslands – félag verkfræðinga og tæknifræðinga vinnur að faglegum og kjaralegum hagsmunum
félagsmanna sinna. Félagið er stærsta fag- og kjarafélag tæknimenntaðra á Íslandi með um 4.200 félagsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi félagsins eru á www.vfi.is og á Facebook.
Virðing og jafnrétti / Fagleg ábyrgð og ráðvendni / Samfélagsleg ábyrgð og sjálfbærni
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R