Fréttablaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 107
SAMSTARFSVERKEFNI
Í BORGARLEIKHÚSINU
Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni
sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við
borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna (SL).
Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykja-
víkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta
tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu
til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir
skulu hafa endurgjaldslaus afnot af húsnæði en greiða útlagðan
kostnað L.R. vegna vinnu þeirra í Borgarleikhúsinu.“
Samkvæmt ofangreindu er hér með auglýst eftir
umsóknum leikhópa vegna leikársins 2019/2020.
Með umsókn skal senda greinargerð um verkefnið þar sem því
er skilmerkilega lýst, greint frá aðstandendum þess, framkvæm-
daaðilum, listrænum stjórnendum og þátttakendum öllum.
Jafnframt ætti vönduð fjárhagsáætlun að fylgja með.
Umsóknir berist leikhússtjóra Borgarleikhússins,
Listabraut 3, 103 Reykjavík eigi síðar en kl. 16.00
fimmtudaginn 1. febrúar 2019.
Einnig er hægt að senda umsóknir með tölvupósti,
merktum „Samstarf“ á borgarleikhus@borgarleikhus.is
Sýning Rósu Gísladóttur, Medium of Matter, verður opnuð í BERG Contemporary við Klapparstíg í dag, laugardaginn 19. janúar. Þar sýnir Rósa nýja skúlptúra.
„Ég nota hefðbundin efni: við, gifs og
gler. Venjulega eru skúlptúrar mínir
mjög massífir, en núna sýni ég mjög
opna skúlptúra,“ segir listakonan.
Áhrif frá Tatlin
Verk á sýningunni eru undir áhrifum
frá frægum turni rússneska lista
mannsins Vladímírs Tatlin, sem hann
byrjaði að vinna að árið 1919. Turn
inn var þó aldrei reistur, en módel af
honum eru til á nokkrum stöðum í
heiminum. „Þessi turn átti að vera
hærri en Eiffelturninn, byggður úr
járni og stáli. Formið var kranalaga
og spírall í kring og glervistarverur
áttu að vera inni í turninum. Þetta
var gríðarlega áhugaverður turn,“
segir Rósa. „Ég gerði fyrstu tilraun
mína af turni vegna samkeppni sem
ég tók þátt í árið 2011. Á tímabili var
fyrir utan gluggann hjá mér í Kópa
voginum röð af byggingarkrönum
sem stóðu hreyfingarlausir eins og
Efnið er mér hugleikið og formið sömuleiðis
„Mér finnst svo gaman að handleika efni og vil geta þreifað á öllu sem ég bý til,“ segir Rósa. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þessir skúlptúrar eru eiginlega ekki form, heldur negatíf mót af formum.“
á vinnustofunni komu þær fram og
vildu verða að veruleika. Þess vegna
kom nafnið eins og ósjálfrátt upp í
huga minn: „What should never be,“
sem er raunar tilvitnun í lag með Led
Zeppelin,“ segir Rósa.
Höfum verið hömlulaus
Rósa lauk námi frá Myndlista og
handíðaskóla Íslands árið 1981,
útskrifaðist frá Listaakademíunni í
München árið 1986 og er með meist
aragráðu í myndlist frá Manchester
Metropolitan University og gráðu
í kennslufræðum frá Listaháskóla
Íslands. Rósa hefur haldið fjölmargar
sýningar hérlendis og hefur sýnt víða
erlendis; meðal annars hélt hún stóra
einkasýningu í Mercati di Traiano í
miðborg Rómar sumarið 2012. Hún
hefur á ferli sínum nær eingöngu
unnið með skúlptúra.
„Mér finnst svo gaman að hand
leika efni og vil geta þreifað á öllu
sem ég bý til. Mér er ekki sama með
hvaða efni ég vinn. Efnið er mér hug
leikið og formið sömuleiðis,“ segir
hún. „Á tímum Tatlins voru menn
að færa sig frá hefðbundnum efnum
yfir í stál, gler og járn sem var svo
áberandi á 20. öldinni. Nú er það að
breytast, við erum orðin meðvitaðri
um umhverfismálin og gerum okkur
grein fyrir að við höfum verið að eyða
svo miklu af umhverfinu. Við erum
búin að vera hömlulaus. Nú erum
við byrjuð að íhuga hvernig við getum
undið ofan af þessu og erum farin að
nota efni sem eru forgengileg og nær
náttúrunni.“
VIÐ ERUM ORÐIN
MEÐVITAÐRI UM
UMHVERFISMÁLIN OG GERUM
OKKUR GREIN FYRIR AÐ VIÐ
HÖFUM VERIÐ AÐ EYÐA SVO
MIKLU AF UMHVERFINU.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
Rósa Gísladóttir
sýnir skúlptúra
í BERG Contemp
orary. Segir leik
og hreyfingu vera
í verkunum.
skúlptúrar, eftir að framkvæmdum
hafði verið hætt eftir hrun. Á þess
ari sýningu er turn og ég vef spýtum
í kringum hann og annar turn er við
hliðina, eiginlega fallinn, og liggur
þarna á gólfinu. Það er leikur í þessum
skúlptúrum og hreyfing.“
Á meðal annarra verka á sýning
unni eru veggmyndir úr hvítu gifsi.
„Þessir skúlptúrar eru eiginlega ekki
form, heldur negatíf mót af formum.
Þetta hefðu getað verið einhvers
konar nytjahlutir úr tæknigeiranum
eða lágmyndir frá Pompeii, hluti af
stærra mynstri, samhverfir hlutir en
samt tvívíðir. Upphaflegar teikn
ingar af þessum formum gerði ég
fyrir allmörgum árum en eftir tiltekt
Sýningin Þetta vilja börnin sjá!
verður opnuð í sautjánda sinn í
Borgarbókasafninu, menningarhúsi
Gerðubergi á morgun, sunnudag,
klukkan 14. Þar eru myndlýsingar í
íslenskum barnabókum sem komu
út á árinu 2018 og sýningin birtir
glöggt þá fjölbreytni og fagmennsku
sem er að finna í íslenskri barna
bókaútgáfu.
Að þessu sinni taka nítján mynd
höfundar þátt. Einn þeirra er
Bergrún Íris Sævarsdóttir sem oft
hefur sýnt áður, enda er hún mikil
virk og myndskreytir bækur fyrir
marga en í þetta sinn kveðst hún
einungis vera með myndir úr eigin
bókum á sýningunni. „Þær eru úr
nýjustu bókunum mínum, Nætur
dýrin og Langelstur í leynifélaginu
sem er framhald af bók sem kom út í
fyrra og hét Langelstur í bekknum,“
útskýrir hún.
Bergrún Íris er ekki búin að sjá
hvernig myndirnar taka sig út á
veggnum í Gerðubergi. „En ég hef
oft tekið þátt áður og hef alltaf
verið himinlifandi með uppsetn
inguna. Svo er líka svo skemmtilegt
að sýningin fer hringinn í kringum
landið.“ Það passar. Í Gerðu
bergi stendur hún til 31. mars en fer
þá á flakk og fyrsti viðkomustaður
verður Amtsbókasafnið á Akureyri.
gun
Alltaf verið himinlifandi með uppsetninguna
Myndhöfundar:
Anna Lísa Björnsdóttir, Arnór
Kárason, Bergrún Íris Sævars-
dóttir, Elsa Nielsen, Freydís Krist-
jánsdóttir, Hafsteinn Hafsteins-
son, Heiða Rafnsdóttir, Heiða
Björk Norðfjörð, Ingi Jensson,
Kristín Ragna Gunnarsdóttir,
Laufey Jónsdóttir, Linda Ólafs-
dóttir, Martine Jaspers-Versluijs,
Rán Flygenring, Ryoko Tamura,
Sigmundur B. Þorgeirsson, Sigrún
Eldjárn, Svafa Björg Einarsdóttir
og Þórarinn Már Baldursson.
Bergrún Íris er með myndir úr tveimur nýjustu bókum sínum á sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R46 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING