Fréttablaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 22
L istin að grisja og endur-skipuleggja með jap-önsku KonMari-aðferð-inni er sögð vera lykill að nýju og betra lífi í sjónvarpsþáttum sem
hafa slegið í gegn á Netflix, Tidying
up with Marie Kondo. Í þáttunum
aðstoðar Marie Kondo fólk við
að koma reiðu á heimili sitt með
athyglisverðum aðferðum.
Marie Kondo hefur skrifað fjórar
bækur um skipulagningu og tiltekt
sem hafa selst í milljónatali víða um
heim. Vinsælust bóka hennar er: The
Life-Changing Magic of Tidying Up:
The Japanese Art of Declutt ering
and Organizing (2011). Bókin kom
út í íslenskri þýðingu á síðasta ári og
kallast á íslensku; Taktu til í lífi þínu.
Marie segist hafa haft áhuga
á því að hafa reiðu á hlutunum
í kringum sig frá barnæsku.
Hún segist hafa fengið vitrun á
unga aldri um að hún ætti að ein-
blína á að finna þá hluti sem hún
vildi nærri sér. Að greina þá hluti
sem veita henni ánægju og hafa þá í
heiðri á heimilinu.
Kon-Marie aðferðin
Marie segir aðferð sína við tiltekt,
KonMari, innblásna af sjintótrúnni.
Hugmyndafræðin að baki henni er í
raun einföld. Þegar heimilið er orðið
snyrtilegt, hlutirnir færri og skipu-
lagið betra þá segir hún að það rofi
til í huganum. Sjálfstraustið aukist
og færni til að leysa verkefni lífsins
verði betri.
Framkvæmdin er ekki flókin og
felst í því að fara í gegnum hvert her-
bergi og safna þar hlutum saman í
hrúgu. Og grisja. Halda aðeins þeim
Af hverju
eru allir
að laga til?
Hvað er málið með Marie Kondo? Er í alvör-
unni lífsbætandi list að laga til? Sóley Dröfn
Davíðsdóttir segir fólk ekki alltaf hafa tök á
því að hafa stöðugt hreint í kringum sig.
Marie Kondo hefur slegið í gegn með einföldum ráðum til fólks um tiltekt. MYND/NORDICPHOTOS
hlutum eftir sem kveikja á tilfinn-
ingum. „Sem veita þér ánægju og
vellíðan. Ef hlutur sannarlega kveikir
gleðitilfinningu þá muntu ekki vera
haldinn kvíða um hvort þú átt að
halda honum eða ekki, segir Marie.
Hún segir að fólk ætti ekki að halda í
hluti vegna þess að þeir gætu komið
að góðum notum síðar. Hlutur geti
verið góður, nothæfur og jafnvel fal-
legur. En ef hann kveikir ekki á til-
finningum þá er hann það í raun og
veru ekki. Þá segir Marie kominn
tíma til að þakka fyrir notin og
kveðja. „Segðu takk við hlutinn sem
þú ætlar að losa þig við,“ segir Marie.
Marie trúir því að snyrtimennska
geti leitt til alheimsfriðar. „Með því
að horfast í augu við hlutina þína,
horfist þú í augu við sjálfa þig,“
segir hún. „Það mun gera þig og alla
í kringum þig hamingjusama.“
ÞEGAR FÓLK ER ÞUNGLYNT
Á ÞAÐ OFT ERFITT MEÐ
AÐ HAFA SIG Í ÝMISLEGT,
SVO SEM ÞRIF OG LÍÐUR
SVO ENN VERR MEÐ SIG
EFTIR ÞVÍ SEM VERKEFNIN
HRANNAST UPP.
Sóley Davíðsdóttir
Litur ársins er
kóralbleikur
Á hverju
ári gefur lita-
ráðgjafar-
fyrirtækið PAN-
TONE út lit
ársins. Í ár er
það kóralbleik-
ur litur 16-1546
Living Cor-
al. Fallegur en
náttúrulegur
og hlýr litur.
Fáðu þér stæðilega plöntu í stofuna
Stórar og sterkar fíkusplöntur eru
sífellt vinsælli kostur á íslenskum
heimilum. Enda fallegar og bæta loft-
gæði til muna. Þær eru til í mörgum
tegundum og ein sú eftirsóttasta er
Ficus elastica eða gúmmítré. Sígrænt
tré sem getur orðið ansi hávaxið.
Blaðstilkurinn er ávalur og blöðin inn-
rúlluð þegar þau eru ung og umlukt
rauðleitu hlífðarblaði. Stórar gúmmí-
plöntur eru ekki oft til í íslenskum
blómaverslunum en eru væntanlegar
í blómabúðina Fjórar árstíðir.
Súr saga í heimalestri
Sláðu tvær flugur í
einu höggi. Sjúklega
súr saga: Íslandssaga
frá öndvegissúlum
til Internetsins er
skemmtileg aflestrar
fyrir skólakrakka sem
þurfa að lesa upphátt
heima fyrir foreldrana.
Fjölskyldan getur
rifjað upp sögukunn-
áttuna í leiðinni.
Ekki auðvelt fyrir alla að
hafa hreint á heimilinu
Sóley Dröfn Davíðsdóttir, sál-
fræðingur og forstjóri Kvíðameð-
ferðarstöðvarinnar, segir að fólki
líði klárlega verr sé allt í óreiðu. Það
sé hins vegar ekki einfalt mál fyrir
alla að taka til.
„Ég myndi segja að fólki líði klár-
lega verr ef allt er í óreiðu, en þegar
fólk er þunglynt á það til dæmis oft
erfitt með að hafa sig í ýmislegt svo
sem þrif og líður svo enn verr með
sig eftir því sem verkefnin hrannast
upp og enn erfiðara verður að hafa
sig í það sem þarf að gera, eftir
því sem óreiðan er meiri. Þannig
myndast auðveldlega vítahringur,“
segir Sóley og bætir því við að fólk
verði oft rosalega ánægt með sig
ef það nær að taka til og hafa fínt í
kringum sig.
„Svo á fólk með ADHD oft mjög
erfitt með að taka til, óreiðan bara
færist til og menn eru svona á „on“
og „off“ í tiltekt, taka sig til og reyna
að skipuleggja allt, slaka svo á og
allt fer á annan endann mjög fljótt.
Þeir sem ganga vel um hafa vanið
sig á ákveðna hluti, svo sem að
ganga alltaf jafnóðum frá eftir sig
og grípa alltaf eitthvað með sér í
hvert sinn sem þeir t.d. fara fram í
eldhús. Gott er að innræta börnum
þetta svo þau tileinki sér góða vana
í þessum efnum,“ segir Sóley.
„Óreiða tekur orku frá fólki í þeim
skilningi að fólk fer endurtekið að
leiða hugann að dótinu og draslinu
sem er úti um allt. Því er talað um
að fólki nái meiri hugarró ef minna
af dóti er í kringum það,“ segir
Sóley og eins og Marie mælir hún
með því að fólk hafi færri en fleiri
hluti í kringum sig og þá sem höfða
til fólks.
„Óreiða tekur orku,“ segir Sóley.
Sóley er í ítarlegra viðtali um
tiltekt og vellíðan á Plússíðu
Fréttablaðsins.
Fréttablaðið +Plús er eingöngu
í Fréttablaðs-appinu eða í
PDF-útgáfu blaðsins sem er
aðgengileg á frettabladid.is.
+PLÚS
Ráð frá Marie
Grisjaðu fyrst – skipuleggðu svo
Marie ráðleggur fólki eindregið
að ljúka við að grisja áður en
hlutunum er fundinn staður á
heimilinu.
Taktu til á þínu svæði
Hver og einn fjölskyldumeðlimur
ætti að hafa sitt eigið afmarkaða
svæði sem hann ber ábyrgð á að
halda hreinu og skipulögðu.
Leyfðu krökkunum að vera með
Marie segir mikilvægt að for-
eldrar leyfi börnum að ákveða
sjálf hvaða hlutir veita þeim gleði
og hvaða hlutir geri það ekki.
Byrjaðu á fötunum
Byrjaðu á því að safna hverri
einustu flík sem þú átt og setja
þær saman í hrúgu. Haltu hverri
flík upp og veldu þær úr sem
veita þér gleði. Spurðu þig: Verð
ég glöð að eiga þessa flík þegar
veður er rétt til að nota hana?
Greindu á milli
Gerðu greinarmun á milli Verð að
eiga og Gott að eiga. Tökum sem
dæmi einna dýrustu flíkurnar í
fataskápnum. Hafir þú aðeins
notað þær í örfá skipti, þá er
mögulega ástæðan sú að þær
veiti þér ekki jafn mikla ánægju
og þú hélst og því kannski
kominn tími til að finna þeim
nýja eigendur sem kunna betur
að meta þær.
1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN