Fréttablaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 35
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Þótt flestir tengi kajakróður við sumartímann hér á landi er alls ekki síðra að róa kajak
yfir vetrartímann. Það þarf bara að
huga að öðrum búnaði og öryggis-
þáttum, hegða sér skynsamlega
eins og alltaf og bera virðingu fyrir
náttúruöflunum, segir Eymundur
Ingimundarson, sem byrjaði að
stunda íþróttina aftur nær fimm-
tugur að aldri. „Það er fátt yndis-
legra en að líða hljóðlaust eftir
spegilsléttum sjónum með hvít
fjöllin á aðra höndina og horfa á
himin og haf renna saman í eitt á
hina, sjá forvitna seli stinga upp
kollinum annað slagið og stöku
kollu stinga sér í djúpið og hverfa
um stund. Þannig getur sviðs-
myndin verið bara við það að róa
út í Lundey hér við Reykjavík á
köldum og stilltum vetrardegi.“
Hann segir sjóinn við Ísland vera
eiginlega alltaf kaldan svo allt árið
sé róið í þurrgöllum og til dæmis
þunnum ullarnærfötum. „Yfir
vetrartímann þykknar millilagið
og góður flísfatnaður hentar þá vel.
Búnaðurinn er meira og minna sá
sami og að sumarlagi, þó bætast
til dæmis við rauð blikkandi ljós,
eitt á bátinn og annað á björgunar-
vestið, áralúffur og góð húfa. Einn
liður í undirbúningi fyrir róður
er að kíkja á veðurspána, flóða-
töfluna og jafnvel ölduspá, en þessi
þáttur verður mikilvægari að vetri
til eins og gefur að skilja, alveg á
sama hátt og veðurspáin fyrir þann
sem stundar fjallgöngur að vetri
til. Í þessu sporti, eins og sennilega
flestum, hafa árstíðirnar hver sinn
sjarma og erfitt að gera þar upp á
milli, en kajakróður að vetri til er
síður en svo minna heillandi en á
öðrum árstímum.“
Veturinn hefur sinn sjarma
Það er fátt betra en að líða hljóðlaust eftir spegilsléttum sjónum á kajak með hvít fjöllin á aðra
hönd og horfa á himin og haf renna saman í eitt á hina. Kajakróður á líka vel við íslenska veturinn.
Fyrsta reynsla Eymundar af kajak var
þegar faðir hans fleytti honum á báru-
járnskajak um eins árs aldurinn.
Hér er Eymundur róandi norðan við
Geldinganes á góðum vetrardegi.
Í öldugangi úti í Wales (Angelsey) í frægri röst sem kallast Penrhyn Mawr.
„Í þessu sporti, eins og sennilega flestum, hafa árstíðirnar hver sinn sjarma og erfitt að gera þar upp á milli, en kajakróður að vetri til er síður en svo minna
heillandi en á öðrum árstímum,“ segir Eymundur Ingimundarson, sem hellti sér út í kajaksportið tæplega fimmtugur að aldri. MYND/STEFÁN
Ræðst af veðri og vindum
Eymundur er búsettur á höfuð-
borgarsvæðinu og yfir veturinn
róa hann og félagar hans mest á
höfuðborgarsvæðinu í nágrenni
Reykjavíkur, helst á Sundunum en
það svæði er að hans sögn mjög
fjölbreytt, bæði hvað varðar sjólag
og leiðir. „Við hringum gjarnan
eyjarnar, Þerney, Lundey, Viðey og
Akurey og svo er alltaf spennandi
að róa fyrir Gróttu og Álftanesið,
þar er alltaf eitthvað að gerast í
sjónum, en það ræðst af veðri og
vindum hvaða leið er valin hverju
sinni.“
Ekki er mikið um skipulagðar
kajakferðir yfir vetrartímann en
klúbbfélagar Eymundar taka sig
stundum saman og fara í dags-
ferðir, til dæmis inn í Hvalfjörð eða
með fram Vatnsleysuströndinni.
„Fyrstu skipulögðu ferðir ársins eru
gjarnan í lok mars eða byrjun apríl
og þá er rykið dustað af tjöldunum
og róið út í einhverja af eyjunum
hér á Sundunum við Reykjavík og
gist þar eina nótt.“
Byrjaði á Seyðisfirði
Eymundur ólst upp á Seyðis-
firði þar sem hann og vinir hans
smíðuðu sér kajaka úr bárujárns-
plötum. „Árarnar voru gjarnan
útbúnar úr kústskafti og á það
negldir einhvers konar spaðar úr
krossviði. Á þessum fleytum reri
maður mest á Lóninu, þar sem
Fjarðará rennur í gegnum bæinn,
og einu sinni man ég eftir að hafa
róið út á miðjan fjörð og minnstu
munaði að illa færi. Þessi reynsla
átti örugglega sinn þátt í því að
alltaf blundaði í manni löngun til
að stunda þetta sport en það var
ekki fyrr en um 35 árum seinna,
næstum fimmtugur, sem ég lét
verða af því. Konan mín, Erna
Jónsdóttir, fór einnig að stunda
þetta fljótlega á eftir mér og er
orðin ansi glúrin. Við höfum til
dæmis farið saman í kajakúti legur,
róið milli fjarða á Austfjörðum og
víðar.“
Ef einhverja langar að prófa
kajak yfir vetrartímann er hægt
að mæta í félagsróðra á laugar-
dagsmorgnum kl. 9.30 við aðstöðu
Kayakklúbbsins við Geldinganes
í Reykjavík. „Klúbburinn lánar
báta, árar og nauðsynleg hlífðar-
föt, en alltaf er best að klæðast
ull innst, svo flís eða öðru álíka
utan yfir og grípa með sér góða
húfu og kannski gamla íþróttaskó
sem mega fara í sjóinn. Strangri
öryggisstefnu er fylgt og reyndir
ræðarar sjá um róðrarstjórn en
þessir félagsróðrar eru sniðnir fyrir
byrjendur.“
Ylströndin Nauthólsvík
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Mánudagar – Föstudagar
11-14 og 17-20
Laugardagar
11-16
Lengri
afgreiðslutími
á ylströnd
Verið velkomin í Nauthólsvík
4 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RVETRARSPORT OG FERÐIR