Fréttablaðið - 21.08.2019, Síða 7
UTANRÍKISMÁL Loftslagsmálin voru
efst á baugi hjá forsætisráðherrum
Norðurlandanna og Angelu Merk
el Þýskalandskanslara á blaða
mannafundi sem fór fram í Viðey
í gær vegna sumarfundar norrænu
leiðtoganna. Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra sagði leiðtogana
hafa rætt um að Norðurlönd yrðu
sjálf bærasta svæði heims. „Þetta
þýðir að við erum að viðurkenna
loftslagskrísuna en einbeita okkur
að aðgerðum. Þetta var afar góður
fundur,“ sagði Katrín.
Antti Rinne, forsætisráðherra
Finnlands, sagði við Fréttablaðið
eftir fundinn að hann væri vonbetri
nú en áður um að það tækist að
fyrirbyggja loftslagshamfarir. „Ég
er afar vongóður þegar kemur að
Norðurlöndunum. Ákvarðanirnar
sem við höfum tekið í dag snúast
um að Norðurlöndin muni leggja
meira af mörkum,“ sagði Rinne.
Hann teldi nauðsyn að Evrópa tæki
forystu í loftslagsmálum. „Ég vona
að við getum náð því markmiði að
halda hlýnun undir 1,5 gráðum. Ég
er aðeins vonbetri í dag en í gær.“
Mette Frederiksen, forsætisráð
herra Dana, sagði að mikilvægasta
ákvörðun fundarins hefði verið um
nána samstöðu og samstarf Norður
landanna og Þýskalands. „Ég vil
einnig að það komi skýrt fram að
við ætlum að grípa til aðgerða gegn
loftslagsbreytingum. Það er ekki
nóg að tala bara um þær eða funda.
Við þurfum að sýna fólki, sérstak
lega börnum, að við erum að axla
ábyrgð,“ sagði Frederiksen.
Hin norska Erna Solberg tók
undir þetta. „Við sem leiðtogar þurf
um að horfa fram á veginn og finna
lausnir á þessum vandamálum. Ég
held að við Norðurlandaþjóðirnar
séum afar færar í því,“ sagði Solberg.
Stefan Löfven, sænski forsætis
ráðherrann, sagði Norðurlöndin
vilja standa saman á væntanlegri
loftslagsráðstefnu, sem fer fram í
New York í Bandaríkjunum í sept
ember, og koma sínum skilaboðum
á framfæri. „Að það þurfi að beita
praktískum lausnum.“
Þýskalandskanslari tók fram að
Þjóðverjar hefðu ekki verið nógu
meðvitaðir um mikilvægi Norður
slóða og Evrópusambandið ekki
heldur. Það myndi breytast í náinni
framtíð enda gæti bráðnun hafíss á
svæðinu haft alvarlegar afleiðingar.
For sæt isráðher ra r Norðu r
landanna auk leiðtoga Grænlands
og Álandseyja funduðu fyrr um dag
inn með fulltrúum norrænna stór
fyrirtækja um loftslagsmál. Var þar
undirrituð yfirlýsing um jafnrétti
kynjanna, sjálf bærni og loftslags
breytingar. thorgnyr@frettabladid.is
Kveðst vonbetri eftir
fund ráðherranna
Aðgerða er þörf í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Þetta sögðu forsætis-
ráðherrar Norðurlandanna auk Þýskalandskanslara á blaðamannafundi í
Viðey í gær. Forsætisráðherra Finna sagðist bjartsýnni í gær en fyrir fundinn.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Angela Merkel Þýskalandskanslari í Viðey í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ekki bara loftslagsmál
Þótt mest hafi farið fyrir lofts-
lagsmálum á blaðamannafund-
inum ræddu leiðtogarnir einnig
önnur mál er einn blaðamaður
frá hverju landi fékk að bera upp
spurningu.
Solberg svaraði spurningu um
fyrri orð sín um að Svíar þyrftu að
vinna nánar með Norðmönnum
gegn upprisu öfgaafla á Norður-
löndum. Endurtók hún þá þau
skilaboð að þörf væri á nánari
samvinnu. „Við höfum rætt þetta
í dag. Við þurfum að finna leiðir
til þess að vinna saman. Að lög-
reglan vinni saman. Hægri-öfga-
öfl eru orðin sterkari en áður.
Við höfum unnið vel saman gegn
öfgaíslam en þurfum að standa
okkur betur.“
Finninn Rinne ansaði spurn-
ingu um heimsókn Vladímírs
Pútín Rússlandsforseta og tog-
streitu á milli Rússa og granna
þeirra. „Við höfum komið því
skýrt á framfæri að atburðirnir
í Úkraínu, sem eru vegna Rússa,
eru ranglæti.“
ÍTALÍA Giuseppe Conte, forsætisráð
herra Ítalíu, tilkynnti um afsögn
sína í gær. Sakaði hann Matteo Salv
ini, leiðtoga Norðurbandalagsins,
um að setja hagsmuni sína og flokks
síns ofar hagsmunum landsins.
Fjórtán mánuðir eru frá því að
Norðurbandalagið og Fimm stjörnu
hreyfingin mynduðu ríkisstjórn
sem Conte veitti forystu sem óháður
aðili. Samstarfið í stjórninni hefur
verið stirt um hríð og hótaði Conte
meðal annars afsögn í byrjun júní
vegna samstarfserfiðleika.
Salvini sagði fyrir tæpum tveimur
vikum að stjórnin væri óstarfhæf
og að hann vildi kosningar. Conte
sakar Salvini hins vegar um að hafa
verið að leita að tækifæri til stjórn
arslita og kosninga allt frá Evrópu
þingskosningunum í maí þar sem
Norðurbandalaginu gekk mjög vel.
Ekki hafa verið haldnar haust
kosningar á Ítalíu frá lokum síðari
heimsstyrjaldar en á þessum árs
tíma er unnið að fjárlagagerð næsta
árs. Sá möguleiki er í stöðunni að
Fimm stjörnu hreyfingin leiti til
Lýðræðisf lokksins um stjórnar
samstarf. Verði ekki af því er búist
við því að Sergio Mattarella, forseti
Ítalíu, slíti þingi og boði til kosninga
í október eða nóvember. – sar
Stjórnarkrísa á Ítalíu eftir afsögn Conte
Conte í ræðustól en Salvini lætur sér fátt um finnast. NORDICPHOTOS/GETTY
2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
* Birt með fyrirvara um mynd og textabrengl.
Nýtt bílaplan
á Krókhálsi 9
benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 10-14
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
KIA SORENTO LUXURY
Nýskráður: 2015 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 83.000 km.
Verð: 4.290.000 kr.
Rað.nr. 112716
MMC PAJERO
Nýskráður: 2016 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 80.000 km.
Verð: 5.490.000 kr.
RENAULT CAPTUR INTENS
Nýskráður: 2017 / Bensín
Sjálfskiptur / Ekinn: 13.000 km.
Verð: 2.890.000 kr.
OPEL MOKKA
Nýskráður: 2015 / Dísel
Beinskiptur / Ekinn: 144.000 km.
Verð: 1.990.000 kr.
Tilboð: 1.490.000 kr.
SSANGYONG TIVOLI HLX
Nýskráður: 2017 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 46.000 km.
Verð: 3.190.000 kr.
CHEVROLET ORLANDO
Nýskráður: 2015 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 38.000 km.
Verð: 3.290.000 kr.
Tilboð: 2.790.000 kr.
NISSAN X-TRAIL ACENTA PLUS
Nýskráður: 2017 / Dísel
Beinskiptur / Ekinn: 106.000 km.
Verð: 3.190.000 kr.
Rað.nr. 740389Rað.nr. 445780
Rað.nr.740316
Rað.nr. 445767 Rað.nr. 340241
Rað.nr. 445715
Enn betra úrval
frábær kjör!
-5
00
.0
00
-5
00
.0
00
4X
4
4X
4
4X
4
SSANGYONG KORANDO
Nýskráður: 2011 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 84.000 km.
Verð: 1.790.000 kr.
Tilboð: 1.490.000 kr.
Rað.nr. 720064 -3
00
.0
00