Fréttablaðið - 21.08.2019, Side 29
6 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RFYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
FranklinCovey er alþjóðlegt fyrirtæki sem er leiðandi á sviði þjálfunar, ráðgjafar og
rannsókna á árangri einstaklinga,
liðsheilda og vinnustaða.
Námskeið, vinnustofur og
matstæki FranklinCovey hafa
hentað firna vel við að bæta
frammistöðu vinnustaða á
Íslandi sem og meðal fyrirtækja,
opinberra stofnana og skóla í f leiri
en 150 löndum.
„FranklinCovey hefur þjónað
árangri íslenskra vinnustaða í
meira en sjö ár,“ segir Guðrún
Högnadóttir, framkvæmdastjóri
og eigandi FranklinCovey á
Íslandi. „Við erum helst þekkt
fyrir lausnir okkar eins og 7
venjur til árangurs, innleiðingu
stefnu með 4DX og vinnu okkar á
sviði trausts og framleiðni – auk
stjórnendaþjálfunar á öllum
stigum reksturs.
Fyrirtækið ver árlega
stórum hluta af tekjum sínum í
rannsóknir og þróun og í nýlegri
rannsókn komu í ljós mjög
breyttar þarfir hvað varðar vöxt
og velferð vinnustaða um allan
heim,“ segir Guðrún. „Niðurstaðan
er í fyrsta lagi að stjórnendur hafi
ólíkar, fjölbreyttar þarfir eftir
stöðu, starfsaldri og verkefnum og
þeir læra með mismunandi hætti.
Í öðru lagi kom í ljós að það er
þörf fyrir mjög blandaða nálgun
við þjálfun, sem speglar stefnu
og sérstöðu hvers vinnustaðar
og í þriðja lagi er vaxandi áhersla
á árangur þjálfunar, en á sama
tíma eru aðföng mjög takmörkuð,
sérstaklega hvað varðar tíma og
fjármagn.
Þannig höfum við snúið
vörn í sókn og bjóðum nú
viðskiptavinum áskrift að öllu
okkar efni í gegnum gátt sem
heitir All Access Pass (AAP),“ segir
Guðrún. „Þar geta vinnustaðir
sérsniðið alla þjálfun með
blandaðri nálgun, meðal annars
í örnámskeiðum á netinu og
lengra námi – með sveigjanlegum,
áhrifaríkum og hagkvæmum
hætti. Við þjálfum líka innri
þjálfara um AAP og bjóðum
upp á svokallaðan ráðgjafa
við fingurgómana, sem veitir
stjórnendum hagnýt ráð í gegnum
svokallaða Jhana-gátt, en „jhana“
þýðir viska á sanskrít.
Allt þetta starf byggir á mjög
einföldum en göfugum tilgangi
FranklinCovey, sem er að virkja
framúrskarandi frammistöðu
fólks og vinnustaða um allan
heim,“ segir Guðrún að lokum.
Vöxtur og velferð starfsfólks
Persónuleg forysta og frumkvæði í daglegum verkum byggir á meðvitaðri ákvörðun – en ekki
stöðu, tilviljun eða aðstæðum. Leiðtogahæfileika má læra og þarf stöðugt að rækta.
Guðrún segir að FranklinCovey hafi einfaldan en göfugan tilgang, að virkja
framúrskarandi frammistöðu fólks um allan heim. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Það standast fáir gott kaffi og heimabakað meðlæti.Það er spennandi að safna saman í vinnusjóð fyrir helgarferð til útlanda. Gott nudd á sárar herðar er kærkomið á vinnustað.
Við erum þekkt
fyrir lausnir eins
og 7 venjur til árangurs
og innleiðingu stefnu
með 4DX.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Það léttir vinnumóralinn og þjappar fólki saman að geta att kappi hvert við annað yfir fótboltaspili. Því er sniðugt
að bjóða upp á skemmtileg úrræði og spil til að létta lund og hvíla hugann þegar hlé gefst frá annríki vinnudagsins.
Starfsfólk fyrirtækja er gjarnan ósamstæður hópur fólks sem þó eyðir löngum
tíma saman og tengist böndum
sem stundum verða að ævarandi
vináttu en í það minnsta nota-
legum kunningsskap og samfylgd í
gegnum vinnuvikuna og stundum
lífið sjálft. Hér gefast hugmyndir
um hvernig hægt er að efla vinnu-
andann og gera hvern vinnudag að
tilhlökkunarefni.
l Leiðin að hjarta mannsins er
í gegnum magann. Því er fátt
notalegra en heimabakað
bakkelsi og ilmandi kaffibolli
á nýjum vinnudegi. Þú getur
verið viss um að vinnufélagarnir
gleðjast yfir velgjörðum þínum
á gráum hvunndagsmorgni,
til dæmis ljúffengri súkkulaði-
múffu og rjúkandi kaffi.
l Það er nauðsynlegt að standa
reglulega upp frá vinnunni og
fríska upp á hugann með því
hreyfa sig úr stað og spjalla við
vinnufélagana. Þá er gott að leika
sér aðeins; hlaða batteríin yfir
stuttri skák, slönguspili, skrafli
með hléum eða spennandi
fótboltaspili.
l Vingjarnlegir vinnufélagar
gera alla daga betri. Bros og
hjálpsemi, tillitssemi og hrós
gera kraftaverk og er vitaskuld
allt ókeypis og einfalt að gefa.
l Hvíldarhorn eru kærkomin
þegar álag er mikið og endur-
nærandi að geta kúplað sig út úr
asanum í fáeinar mínútur til að
skýra hugsun og ná fram slökun
og vellíðan.
l Kyrrseta hefur slæm áhrif á
heilsuna og er vöðvabólga
gjarnan fylgifiskur þess að sitja
lengi við. Því er vel þegið að
bjóða upp á heimsóknir nuddara
á vinnustaðinn til að liðka lúnar
axlir, bak og handleggi.
l Það eykur samkennd og til-
hlökkun að stefna að einhverju
saman. Til dæmis er hægt að
setja endurvinnanlegar plast-
flöskur starfsfólksins í endur-
vinnslu og safna fyrir utanlands-
ferð eða helgarreisu til hópeflis.
l Stuttir göngutúrar í hádeginu
eða samfundir utan vinnutíma
þjappa vinnufélögum saman. Nú
er aldeilis árstíminn til að fara
saman á sveppa- og berjamó, og
svo hægt að halda metnaðarfulla
sultukeppni í vinnunni, með
tilheyrandi smakki og ljúfum
stundum.
l Óvæntur glaðningur á skrif-
borð starfsmanna eykur ánægju
þeirra. Hann getur verið í formi
bíómiða og bílastæðismiða,
líkamsræktarkorts eða boðs á
veitingastað, eða hvers sem er.
Hamingjan er mikils virði
Mannauður er með því verðmætasta sem fyrirtæki eiga. Ánægðir starfsmenn eru gulls ígildi og
kunn staðreynd að það sem gleður starfsfólk í vinnunni og fyllir það vellíðan á vinnustað skilar
sér í enn betri afköstum, meiri starfsánægju og meiri tryggð við vinnuveitendur.