Fréttablaðið - 21.08.2019, Side 27

Fréttablaðið - 21.08.2019, Side 27
Opin og sveigjanleg vinnu-rými henta ekki öllum. Þeir sem eiga erfitt með að sætta sig við að starfa í opnu rými og tengjast ekki breytingum á vinnustað ættu að hugleiða að fá sér aðra vinnu. Nútíma skrif- stofur eru gjarnan með „f ljótandi“ skrif borðum. Það þýðir að enginn getur gengið að borði sínu vísu heldur sest hann við næsta lausa borð. Norskur sérfræðingur, Mai Skogland, segir að starfsmenn verði að endurskoða gamlar venjur og hugsunarhátt. Á nútíma skrifstofu er ekkert fast sæti. „Sá sem getur ekki vanist því að hafa ekki eigin skrif borð mun eiga erf- itt með að sættast við vinnuna,“ bendir hún á. Sumir segja að meiri af köst séu hjá starfsmönnum sem vinna í opnum rýmum. Erfitt sé að leika sér í tölvunni í návist við aðra sem eru á fullu í vinnu. Mai Skogland hefur bakgrunn sem innanhússarkitekt og ráð- gjafi. Hún lauk nýlega doktorsrit- gerð við Arkitektúr- og hönnunar- deild NTNU. Ritgerðin fjallar um hvernig vinnustaðahugtök eru notuð til að skapa breytingar á skipulagi og koma með nýjar lausnir sem meðal annars byggja á að starfsmenn velji rými eftir þörfum. Hún segir að skipulags- breytingar á vinnusvæði geti kallað fram miklar tilfinningar hjá starfsfólki. Það getur verið mjög krefjandi að endurskipuleggja vinnu- svæðið. Endurskipulagið verður að henta starfseminni og skapa góðan vinnutengdan árangur. Góð samskipti við starfsmenn skipta sköpum þegar endurskipu- leggja þarf vinnurýmið. Leggja þarf áherslu á að starfsmenn þjálfi sig í því að nota nýju skrif- stofuna og að breytingin fari fram áreynslulaust. Í niðurstöðu rannsókna hjá Skogland kemur fram að þeim sem nýta tækifærin sem skapast á skrifstofunni tekst betur að aðlagast nýju skrifstofulands- lagi. „Með því að hafa „fljótandi“ starfsaðstöðu þurfa starfsmenn að hreinsa borðið sitt daglega og þar af leiðandi verður vinnustöðin mun hreinlegri en ella. Í rauninni skiptir ekki mestu máli hvar við sitjum heldur að við séum á réttum stað fyrir viðkomandi starf.“ Margir telja að sveigjanlegt skrifstofuumhverfi henti aðeins ákveðnum starfshópum og verk- efnum. Rannsóknir Mai sýna hið gagnstæða. Mai gerði rannsókn í nokkrum fyrirtækjum í Noregi sem eru með „f ljótandi“ vinnu- umhverfi, meðal annars í banka, á lögfræðistofu og f leiri stórum fyrirtækjum. Þeir sem eru orðnir vanir þessu vinnuumhverfi vilja ekki snúa aftur í fastar vinnu- stöðvar, þeir meta frelsið meira. Mai segir að margt bendi til þess að ástæðan fyrir því að sífellt f leiri séu að skipta yfir í opið landslag sé að það henti betur nútíma vinnuverkefnum og vinnudegi sem er oft með mikinn hreyfanleika. „Við vinnum í teymum, höldum fundi og erum að mismiklu leyti sjálfráða með aukna stjórn á okkar eigin vinnuaðstæðum. Fartölvur eru algengari en skrif borðstölvur og allir eru með farsíma. Breytingin verður þó að endurspegla vinnu- staðinn og þá er sveigjanleiki mjög mikilvægur,“ segir hún. „Störf í framtíðinni eiga eftir að breytast stöðugt.“ Opið rými getur aukið afköst Þótt nokkur andstaða sé gegn opnum vinnurýmum og færanlegum vinnustöðvum sýna nýlegar rannsóknir að nútíma skrifstofulausnir hafi jákvæð áhrif á atvinnulífið. Í opnum sveigjanlegum vinnurýmum geta starfsmenn ekki haft persónu- lega muni. Hreinsa þarf borðið daglega þegar vinnu er lokið. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Einblíndu á það sem skiptir máli Láttu fagfólk færa bókhaldið á meðan þú sinnir öðru Fáðu okkur hjá KPMG til að færa bókhaldið því í nútímarekstri getur útvistun sérhæfðra verkefna bæði sparað tíma og peninga. Við tökum einnig að okkur að reikna út laun þinna starfsmanna, því launavinnsla er oft viðkvæmur og flókinn þáttur í rekstrinum. Kynntu þér málið á kpmg.is eða hafðu samband við Birnu Rannversdóttur í síma 545 6082. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RFYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.