Fréttablaðið - 21.08.2019, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 21.08.2019, Qupperneq 52
Hvað? Hvenær? Hvar? Miðvikudagur hvar@frettabladid.is 21. ÁGÚST 2019 Myndlist Hvað? Leiðsögn um glugga Gerðar Helgadóttur Hvenær? 12.15-13.00 Hvar? Kópavogskirkja/Gerðarsafn Séra Sigurður Arnarson sóknar­ prestur segir frá steindum gluggum Gerðar Helgadóttur í Kópavogs­ kirkju. Hann veitir meðal annars innsýn í nýjar framkvæmdir en nokkrir gluggar voru sendir til við­ gerða til Oidtmann­bræðra í Þýska­ landi, á glerverkstæði sem Gerður vann á í lifanda lífi. Aðgangur er ókeypis og viðburðargestir fá einnig frítt inn á Gerðarsafn á eftir. Þar má meðal annars sjá verk Gerðar. Fræðsla Hvað? Jarðgerð í heimilisgörðum Hvenær? 20.00 Hvar? Grasagarðurinn í Reykjavík Farið verður yfir helstu atriði varðandi jarð­ og moltugerð og gagnsemi ánamaðka auk þess sem fjallað verður um sýringu matarleifa með Bokashi­aðferðinni. Svavar Skúli Jónsson garðyrkju­ fræðingur og Hjörtur Þorbjörns­ son, forstöðumaður Grasagarðsins, sjá um fræðsluna sem hefst við aðalinngang garðsins. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir! Tónlist Hvað? Hádegistónleikar Hvenær? 12.00 Hvar? Hallgrímskirkja Schola cantorum flytur dagskrá sem spannar vítt litróf, frá mið­ öldum á Íslandi til vorra daga, með viðkomu í íslenskum tvísöng, auk þess sem nokkrar þekktar perlur evrópskra tónbókmennta verða teknar til kostanna. Miðaverð er 2.700 krónur og það er posi á staðnum. Miðasala fer fram á midi. is og í kirkjunni, klukkutíma fyrir tónleika. Hvað? Bossa nova-stíllinn Hvenær? 21.00 Hvar? Mengi, Óðinsgötu 21 Óskar Guðjónsson og brasilíski gítar leikarinn og söngvarinn Ife Tol entino heiðra João Gilberto, guð­ föður bossa nova, með því að flytja nokkur þekktustu bossa nova­lögin. Óskar Guðjónsson og Ife Tolentino flytja bossa nova-tónlist í Mengi. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir Arnar Magnússon Sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins Sími: 550-5652 / arnarm@frettabladid.is NÝSKÖPUN Á ÍSLANDI Laugardaginn 31. ágúst mun Fréttablaðið g fa út sérblaðið Nýsköpun á Íslandi. Bl ðið er unnið að hluta í samstarfi við Rannís og Tækniþróunarsjóð. Í blaðinu gefst nýsköpunar fyrirtækjum færi á að kynna sína starfsemi og vöruþróun. Um leið er blaðið öflugur auglýsingamiðill fyrir fyrirtæki og stofnanir sem bjóða nýsköpunarfyrirtækjum upp á ýmiskonar vörur eða þjónustu. Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind Ódýr blekhylki og tónerar! TÓNLIST Kórtónleikar Rock Creek Singers og Hinsegin kórinn sungu blandaða dagskrá. Stjórnendur: Dr. Thea Kano og Helga Margrét Marzellíusardóttir Norðurljós í Hörpu Miðvikudaginn 14. ágúst Orðið negrasálmur, sem ég ólst upp við, þykir ekki við hæfi lengur. Skemmst er að minnast þess þegar kurr varð vegna tónleika sem haldnir voru í Akureyrarkirkju fyrir fimm árum. Á plakatinu var talað um negrasálma og mynd var af afr­ ískum þræl í hlekkjum. Það mæltist ekki vel fyrir. Þannig tónlist var þó í öndvegi á tónleikum Hinsegin kórsins í Norðurljósum í Hörpu á miðvikudagskvöldið. Stjórnandi kórsins, Helga Margrét Marzellí­ usardóttir, sagði í ávarpi á undan einum sálminum að finna yrði nýtt orð um þessa tónlist og stakk upp á amerískum þrælasöngvum. Um er að ræða trúarlega söngva sem þrælarnir í Bandaríkjunum sömdu, yfirleitt til að stytta sér stundir við vinnuna á plant­ ekrunum. Þetta er áleitin tónlist með grípandi viðlögum og magn­ aðri undiröldu; ótal slík lög eru til. Þau fjalla um mikilvægi kristinna gilda, en inn í þau f léttast frásagnir af erfiðri vist þrælanna. Tengd réttindabaráttu samkynhneigðra Þrælasöngvarnir voru með þeim skemmtilegustu á dagskránni, bæði hjá Hinsegin kórnum, sem er blandaður og taldi rúmlega fjöru­ tíu manns, og einnig gestakórnum. Hann heitir Rock Creek Singers og samanstóð af 18 samkynhneigðum karlmönnum. Söngur karlanna var hástemmdur, tær og vandaður, í góðu innra jafnvægi og með fal­ legan heildarhljóm. Inn á milli laganna kynntu kórmeðlimir, eða stjórnandinn, dr. Thea Kano, efnisskrána. Þau blönduðu gjarnan sögum úr eigin lífi við kynning­ una, og oftar en ekki tengdist hún réttindabaráttu samkynhneigðra. Það var hjartnæmt; söngurinn var ekki bara einhver söngur, heldur ákall um bætt samskipti og minni fordóma, frelsi til að lifa lífi sínu eftir eigin geðþótta. Eins og áður sagði voru þræla­ söngvarnir áberandi hjá Rock Creek Singers, en þarna voru líka þekkt dægurlög og meira að segja Hærra, minn Guð, til þín í nokkuð poppaðri útsetningu með glæsi­ legum hápunktum sem komu einkar vel út. Kórinn vill stækka Hinsegin kórinn söng einnig ágætlega. Heildarhljómurinn var hreinn og tilkomumikill; helst mátti finna að fremur veikri alt­ rödd, sem sennilega skortir bara f leiri söngvara. Enda er það yfir­ lýst markmið kórsins að stækka upp í 300 manns! Í það heila var söngurinn samt prýðilegur, fullur af lífi og einlægum tilfinningum; sönggleðin var svo sannarlega smitandi. Efnisskráin var f jölbreytt en þó innan dægurlagageirans, og væri of langt mál að telja hana alla upp hér. Hún var öll skemmtileg og tengdist málefnum samkyn­ hneigðra á einn eða annan hátt. Með íslenska kórnum lék Hall­ dór Smárason á píanó. Það var miður að hann var aldrei kynntur, ekki einu sinni í lok tónleikanna eins og gjarnan tíðkast. Hann fór á kostum, leikur hans var nákvæm­ ur og kröftugur, afar fjölbreyttur með skemmtilegum djassinn­ skotum þegar við átti. Var það ekki síst píanóleikaranum að þakka hve tónleikarnir tókust vel. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Sérlega líflegir og skemmtilegir tónleikar með frábærri tónlist. Samkynhneigðir kórar sungu frá hjarta Hinsegin kórinn söng prýðilega, segir gagnrýnandi Fréttablaðsins, Jónas Sen, í dómi sínum. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19M I Ð V I K U D A G U R 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.