Fréttablaðið - 21.08.2019, Síða 23
Á meðan fyrsta lag strákanna, LSMLÍ (Lífið sem mig langar í) fjallar um fullkomið fjöl-
skyldulíf þá fjallar Honný um
fullkomnu ástina og í rauninni
fjalla bæði lögin um falskar vonir.
„Honný er um ógeðslega fullkomna
ástarsögu. Hún er geðveikt klisju-
kennd,“ segir Fannar sem samdi
lagið og textann. „Textinn er um
einstakling sem er að tala um eitt-
hvað sem hann vill að verði. Hann
er að lofa einhverju allan tímann í
laginu.“ Meðal annars lofar hann að
brosa allan daginn, kaupa blóm-
vönd og skópar á konudaginn og að
hneppa sparidressið á vinkonuna
eða vininn sem lagið fjallar um.
„Hann er tilbúinn að gera þetta
fyrir manneskjuna sem hann
elskar, þótt það sé ekkert endilega
allt fast í hendi. Svona er að vera
ógeðslega ástfanginn.“
Krúttlegt og einlægt
Fannar segir að lagið hafi komið til
þegar hann var að fikta á hljóm-
borð í herberginu sínu. „Ég var að
gera einhverjar tilraunir með að
læra á píanó.“ Fannar segist þó vera
lélegur á flest hljóðfæri. „Ég get
samt samið á þau. Ég fékk einhverja
laglínu í hausinn sem ég lagði niður.
Ég fann strax taktinn í textanum og
leyfði honum að verða að algjörri
klisju. Mig langaði að gera lag sem
væri bara ótrúlega krúttlegt og
einlægt.“
Lagið fór flóknar leiðir í fram-
leiðslunni. Til að byrja með hleyptu
Fannar og Jökull alls konar áhrifum
á fyrstu útgáfuna sem varð til þess
að lagið varð að hálfgerðri klessu
að sögn Fannars. „Þá vorum við
að reyna að byggja ofan á fyrstu
hljómborðsupptökuna frá mér.
Síðan hentum við henni í ruslið og
fengum Magnús Jóhann Ragnars-
son til að gera það sem hann gerir
best, að spila á píanó yfir viðlagið
af öllu hjarta. Hann rokkaði lagið
fyrir okkur.“ Hipsumhaps stefnir á
að gefa út plötu í haust. Þeir félagar
hafa unnið að henni síðastliðið
ár en strákarnir hafa verið góðir
vinir frá árinu 2013 þegar Fannar
var flokkstjóri Jökuls í unglinga-
vinnunni.
Fannar segist vera með víðan
tónlistarsmekk þar sem flestir
tónlistarflokkar komast fyrir,
nema kannski dubstep. Þegar hann
kynntist Jökli fyrst leist honum
ekkert á tónlistarsmekk hans
sem einkenndist einmitt mikið
af dubstep-lögum. „Það er fyndið
að sjá smekkinn hjá þessum gaur
þroskast. Eftir að dubstep-tíma-
bilinu lauk fór Jökull að sökkva sér í
trappsenuna og vann mikið meðal
annars með Flóna á milli þess að
koma víða við í tónlistarsmíð og
tónleikahaldi í félagslífinu í Verzló.
Jökull bjó til takta fyrir fyrstu
plötuna hans Flóna og kom mikið
að vinnunni við síðustu plötu hans.
Fiktari af guðsnáð
Það er að verða æ algengara að ein-
staklingar sem hafa ástríðu fyrir
lagasmíð geti klárað fullunnin lög
heima í tölvu án þess að þurfa á
menntun eða miklu fjármagni að
halda. Fannar kallar Jökul fiktara
af guðsnáð. „Þegar hann kemst í
eitthvað sem hann hefur áhuga á þá
hellir hann sér út í það. Ég vissi áður
en við Jökull fórum að gera eitthvað
saman að hann væri fær í þessu
apparati Ableton. Hann hafði aldrei
reynt áður að taka upp indírokk,
eitthvað sem mig langaði að gera.“
Mörg lögin og textarnir sem
verða á plötunni eru samin af
Fannari en hafa fengið að sitja í
geymslunni síðustu ár. „Ég á mikið
af lögum og textum sem ég er búinn
að vera að skrifa síðustu ár en
aldrei gert neitt við.“ Sjálfur syngur
Fannar flest lögin en báðir radda.
Fannar segir að þeir leyfi rásafjöld-
anum að leika lausum hala en bæði
hann og Jökull bregða sér í alls kyns
líki í röddunum.
Innblástur héðan og þaðan
Fannar fullyrðir að lögin á plötunni
verði öll einstök. „Hipsumhaps
kemur af danska orðatiltækinu
„hip som hap“ sem er notað þegar
hlutir ráðast af tilviljunum. Það er
það sem við erum að gera. Við erum
undir miklum áhrifum frá stílum
og stefnum héðan og þaðan,“ segir
hann. Strákarnir neita að einskorða
sig við ákveðna tónlistarstefnu sem
breytist lag frá lagi. „Við eltumst við
einhverja tilfinningu í hverju lagi
og leyfum textanum að draga lagið
áfram.“
Hipsumhaps sækir innblástur
úr áhugaverðum áttum eins og til
dæmis frá hljómsveitinni Miike
Snow og indípopp tríóinu The
XX. Miike Snow samanstendur af
tveimur sprenglærðum popptakta-
smiðum frá Svíþjóð og lagasmiði frá
Ameríku. „Ég held að þetta byrji allt
hjá okkur báðum í þessu klassíska,
Bítlunum, Rolling Stones, Lou Reed
og David Bowie. Við erum með svo
fáránlega víðan tónlistarsmekk.
Áhugaverð íslensk textasmíð
er það sem veitir okkur mikinn
innblástur.“ Sem dæmi nefnir
Fannar hljómsveitina Sálina hans
Jóns míns, Mugison og Prins Póló.
„Ástarlög og eitthvað sem nær
á djúpar tilfinningar finnst mér
rosalega fallegt.“ Strákarnir þora
að sýna einlægni í textunum sínum
og leggja mikið upp úr því að nota
íslenska tungumálið á fallegan hátt.
„Ég fór að hugsa um þetta um
daginn. Eitt af því sem okkur langar
að gera er að semja tónlist sem
maður hlustar á einn með sjálfum
sér. Ég hlusta allt öðruvísi á tónlist
þegar ég er einn en þegar ég er í hóp.
Lagið Honný er svoleiðis lag, maður
hlustar á það í einrúmi og hugsar
um ástina. Það verða fleiri þannig
lög á plötunni, lög sem eru virkilega
berskjölduð.“
Fannar og Jökull stefna á að
halda íburðarmikla tónleika á
sem flestum stöðum. „Við ætlum
að fylgja þessari sögu eftir sem við
erum að reyna að segja með tón-
listinni,“ segir Fannar. Hann vonar
að Hipsumhaps muni hafa áhrif á
tónlistarsenuna á Íslandi. Miðað
við athyglina sem hljómsveitin
hefur fengið á hveitibrauðsdögum
sínum þá virðist hún eiga mögu-
leika á því. „Maður veit aldrei hvaða
áhrif maður getur haft á hinum
endanum.“
Svona er að vera
ástfanginn
Álftanesbúarnir Fannar Ingi Friðþjófsson og Jökull
Breki Arnarson í dúettinum Hipsumhaps gáfu út sitt
annað lag í fyrradag, það er lagið Honný.
Hipsumhaps var
að gefa út nýtt
lag. Strákarnir
stefna á plötu og
tónleikahald en
þeir heita Fannar
Ingi Friðþjófsson
og Jökull Breki
Arnarson.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
FALLEGAR
HAUSTVÖRUR
frá
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Skoðið Laxdal.is
Frábærar
buxur á
kr. 16.900
Peysa
kr. 8.900
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R