Fréttablaðið - 21.08.2019, Page 31

Fréttablaðið - 21.08.2019, Page 31
Eitt af því helsta sem nefnt er í grein- inni er það að skipta um starf en það virðist auðveldara að semja um hærra kaup á nýjum vinnustað. Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is NILFISK LÉTTIR STÖRFIN P ip a r\T B W A Nilfisk fæst í Rekstrarlandi, Vatnagörðum 10 og hjá útibúum Olís um land allt. Pantanir í síma 515 1100 og pontun@olis.is Nilfisk gólfþvottavélar og háþrýstidælur hafa það í sér að taka til og þrífa og fást í mörgum stærðum og útfærslum. Nilfisk græjurnar hafa verið notaðar hérlendis í stórum og smáum fyrirtækum í áratugi, þekktar fyrir endingu og gæði. Aldur, staður og stund Samkvæmt frétt BBC hækka laun mest á þrítugsaldrinum og er það talið stafa af því að starfsfólk byrji á lágu kaupi og afli sér f ljótt þekk- ingar og reynslu sem eykur verð- mæti viðkomandi starfskrafts. Síðan hægist á launahækkunum á fertugs- og fimmtugsaldrinum, þar sem laun hækka eingöngu um 1-2% á ári, og lækka þau svo enn fremur eftir því sem fólk nálgast eftirlaunaaldurinn. Í greininni er líka bent á að hingað til hafi hver kynslóð þénað meira en sú á undan og að þannig þéni þeir sem eru fæddir snemma á áttunda ára- tugnum um það bil 16% meira á 28. aldursári en þeir sem eru fæddir seint á sjötta áratugnum. Að skipta um starf Eitt af því helsta sem nefnt er í greininni er það að skipta um starf en það virðist auðveldara að semja um hærra kaup á nýjum vinnu- stað. Þannig hækkuðu laun þeirra sem héldu áfram að starfa hjá sama fyrirtæki um 0,6% árið 2018, eftir verðbólgu. En launin hjá þeim sem skiptu um starf hækkuðu meira en sjöfalt samanborið við hinn hópinn, eða um það bil 4,5%. Þá séu til leiðir til þess að auka launavöxt eins og að leggja stund á háskólanám. Þó að það geti tafið fyrir starfsreynslu þá leiðir það oftar en ekki til launahækkana út þrítugsaldurinn. Að flytjast búferlum Annað sem nefnt er í greininni er það að flytjast búferlum en árið 2016 fylgdi því 9% launahækkun að skipta um starf og flytja. Fólk í Bretlandi hefur þannig gjarnan flutt til borga á borð við London, Edinborg eða Manchester þar sem úr meiru er að velja og hærra kaup í boði. Þrátt fyrir þessa staðreynd er minna um að yngra fólk flytji vegna starfstækifæra. Greinarhöf- undur telur hugsanlegar skýringar á því til dæmis vera þær að nú sé minna atvinnuleysi og að launa- hækkanir standi hreinlega ekki undir húsnæðiskostnaði. Þá kemur fram að leiga hafi hækkað um meira en 90% á þeim svæðum þar sem laun eru hæst en um 70% á þeim svæðum þar sem laun eru lægst. Eftir situr að ungt fólk í dag er oftar en ekki mun minna hreyfanlegt en þau eldri. Kyn spilar inn í Þá getur kyn líka haft umtals- verð áhrif á launahækkanir. Greinarhöfundur bendir á að ein skýringin liggi hugsanlega í því að algengara sé að konur séu í hluta- starfi sem sé stundum verr borgað á klukkutíma en full vinna. Fram kemur að árið 2018 hafi meira en helmingur breskra mæðra verið í hlutastarfi samanborið við einn af hverjum tíu karlmönnum. Þá er bilið einna mest þegar starfs- fólk er á sextugsaldri en þá eru konur þó ennþá líklegri til þess að vera í hlutastarfi en ástæðurnar fyrir því orðnar aðrar. Þannig sinni fjórðungur eldri kvenna á vinnumarkaði ólaunaðri vinnu, til dæmis við það að sinna foreldrum sínum eða barnabörnum, saman- borið við áttunda hvern karl á vinnumarkaði. Annað sem nefnt var sem hugsanlegur áhrifaþáttur var ein- faldlega það hversu mikið fólk fær í kaup til að byrja með en á undan- förnum tveimur áratugum hafa laun hlutfallslega hækkað mest hjá þeim allra lægst launuðu og þeim allra hæst launuðu. Síðasta atriðið sem talið er upp í grein BBC er svo hreinlega það hversu afkasta- mikill starfskraftur hver og einn er en það er skýrt samhengi á milli vinnuframlags og þess sem vinnu- veitandi er tilbúinn að greiða fyrir. Áhrifaþættir að baki launahækkunum BBC birti á dögunum greiningu á því hvaða áhrifa­ þættir væru þýðingarmestir þegar kæmi að því að fá launahækkun í Bretlandi. Sumt kemur á óvart en annað ekki og það væri óneitanlega fróðlegt að sjá hvernig sambærileg greining kæmi út hérlendis. Það eru ýmsir þættir sem hafa áhrif á launahækkanir. 8 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RFYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.