Fréttablaðið - 21.08.2019, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 21.08.2019, Qupperneq 33
Te & Kaffi hefur boðið Íslend-ingum upp á gæðakaffi frá árinu 1984, eða í 35 ár. Á þessu tímabili hefur fyrirtækið vaxið og dafnað vel, opnað fjölmörg kaffi- hús og orðið þekktasta vörumerki í kaffi á íslenskum smásölumarkaði. Te & Kaffi státar líka af full- komnustu kaffibrennslu landsins og hefur það markmið að bjóða Íslendingum áfram upp á dýrindis kaffisopa í miklum gæðum,“ segir Gunnar Ingi Svansson, verkefnis- stjóri hjá Innnesi. „Ástæðan fyrir samstarfi Innness og Te & Kaffi er að samræma kosti þessara tveggja flottu fyrirtækja og geta boðið fleiri aðilum á íslensk- um markaði upp á vinsælasta kaffið á Íslandi, sem er framleitt á Íslandi og þjónustað þessa aðila eins og okkur hjá Innnesi er einum lagið,“ upplýsir Gunnar Ingi. „Með tilkomu vörumerkis Te & Kaffi til Innness gefst kostur á fjöl- breyttari lausnum, hvort sem það á við kaffivélar eða vörur. Eitt af því er að bjóða fyrirtækjum að fá kaffi- bar til sín fyrir einstaka viðburði eða lengri tíma. Þá mætum við og setjum upp glæsilegan kaffibar á hjólum og útvegum þjálfaðan kaffibarþjón frá Te & Kaffi sem býður upp á flesta þá kaffidrykki sem hægt er að fá á kaffihúsum Te & Kaffi. Þessi þjónusta hefur vakið mikla lukku hjá viðskiptavinum okkar og margir líta á það sem ákveðin fríðindi fyrir starfsfólk að geta boðið upp á hana,“ segir Gunn- ar Ingi. Heildarlausnir í kaffi Innnes var stofnað árið 1987 og hefur verið leiðandi á íslenskum matvælamarkaði síðan. Mörg af þekktustu vörumerkjum Innness eru landsmönnum kunn. „Kaffiþjónusta Innness hefur verið leiðandi á undanförnum árum og er þekkt fyrir góða og skjóta þjónustu ásamt því að bjóða upp á frábærar heildar- lausnir í kaffi og tengdum vörum fyrir fyrirtæki,“ segir Gunnar Ingi, en hjá deildinni starfar yfir 20 manna hópur og 10 manns starfa á þjónustuverkstæðinu sem hefur að leiðarljósi að þjónusta viðskipta- vini eins vel og kostur er. Þjónustufulltrúar Innness heim- sækja viðskiptavini samkvæmt samningi og afgreiða vörur sam- dægurs beint úr sínum bíl, en kaffi- þjónustan hefur fimm bíla fulla af vörum á sínum snærum. „Ef vöru vantar skyndilega ná þjónustufulltrúar okkar að bregðast hratt við og afgreiða innan skamms til viðskiptavina. Í þjónustusamningi er kveðið á um viðhald búnaðar og eftirlit og við sjáum um þrif vélbúnaðar með reglubundnum hætti. Með reglubundnum þrifum er farið yfir vélbúnaðinn af fagfólki og séð til þess að hann sé í toppstandi. Hreinsun búnaðar fer fram á 6 til 8 vikna fresti, en hægt er að semja um aukna tíðni þrifa ef notkun er meiri,“ upplýsir Gunnar Ingi. Nýja vefverslunin vinsæl Vefverslun Innness er nýleg leið fyrir viðskiptavini til að skoða vörulista Innness, gera pöntun og hafa sölusögu sína á hreinu. „Þannig er hægt að sjá hvað er í boði, hvað var pantað síðast og leita að upplýsingum um allar vörur sem Innnes býður upp á. Þessi lausn verður sífellt vinsælli enda er við- mótið afar einfalt og skemmtilegt. Ég hvet því sem flesta til að kíkja á verslun.innnes.is og sjá hvað við höfum upp á að bjóða,“ segir Gunn- ar Ingi sem einnig býður áhugasöm fyrirtæki velkomin í sýningarað- stöðu kaffiaðstöðu Innness í Fossa- leyni 21. „Þar er hægt að fræðast betur um vélbúnaðinn sem í boði er ásamt því að sjá hvaða vörur við bjóðum upp á. Hægt er að sjá hvernig vélarnar virka og fá að bragða á ljúffengum kaffisopa. Með því að koma í heimsókn getum við skoðað lausnir fyrir hvern og einn og tekið spjall yfir góðum kaffibolla,“ segir Gunnar Ingi. Ef áhugi er fyrir hendi á að fá nánari upplýsingar eða kíkja í heimsókn má senda póst á Gunn- ar Inga á netfangið gis@innnes. Te & Kaffi er hjá Innnesi! Nýverið var gerður samstarfssamningur milli Innness og Te & Kaffi sem felur í sér að þjónusta á kaffi- og vélbúnaði Te & Kaffi á fyrirtækja- og veitingamarkaði verður í höndum Innness. Gunnar Ingi Svansson er verkefnisstjóri hjá Innnesi. Hann býður áhugasömum fyrirtækjum í heimsókn og dýrindis kaffisopa í glæsilegum sýningarsal og kaffiaðstöðu Innness í Fossaleyni 21. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Með tilkomu Te & Kaffi til Innness er hægt að útbúa kaffibari í fyrirtækjum. Kaffiþjónusta Innness mætir ströngustu kröfum fyrirtækja þegar kemur að ljúffengum og nýlöguðum kaffisopa. Við mætum á staðinn og setjum upp glæsilegan kaffibar á hjólum og útvegum þjálfaðan kaffibarþjón frá Te & Kaffi til að útbúa ljúfa kaffidrykki. 10 KYNNINGARBLAÐ 2 1 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RFYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.