Fréttablaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 40
Ég lýsi fram- kvæmdum í borginni oft sem einum stórum athygl- isbresti. Það er byrjað á of mörgu í einu. Svavar Örn Svavarsson, hárgreiðslumaður Svavar Örn Svavarsson er hárgreiðslumaður og á og rekur hárgreiðslustofuna Senter á Tryggvagötu. Senter hefur verið starfrækt í 14 ár, en Svavar hefur starfað á stofum í miðborg frá aldamótum. Hann segist fagna þeirri gagnrýni sem fram hefur komið undanfarið á framkvæmdir á Hverfisgötu. „Á öllum mínum árum hafa allar framkvæmdir og lokanir á götum komið mér í opna skjöldu. Ég lýsi framkvæmdum í borginni oft sem einum stórum athyglisbresti. Það er byrjað á of mörgu í einu, fáir að vinna í hverju verki á hverjum tíma og framkvæmdirnar taka alltof langan tíma. Síðan 2000 hafa framkvæmdir elt mig frá Skólavörðustíg og niður á Tryggvagötu og ég held að ég geti fullyrt að fullt aðgengi hafi ekki verið að mínum stofum nema í örfá ár af þessum nítján. Mér finnst dásam- legt að reka fyrirtæki í borginni, en mín heitasta ósk er sú að borgin færist ekki of mikið í fang í einu, einbeiti sér að einu verkefni í einu og skilji ekki eftir mannlausar holur úti um alla miðborg,“ segir Svavar. Hafnartorgið dásamlegt Hann segir þó dásamlegt að sjá Hafnartorgið rísa og að miðborgin sé sífellt að verða betri. „En vandinn er ekki síst sá að það er illa staðið að upplýsingaflæði og lausnum, til dæmis hvað varðar bílastæði og aðgengi, á meðan á fram- kvæmdum stendur. Ég er himinlifandi með bílakjallarann sem nú hefur verið opnaður undir Hafnartorgi og skil ekki af hverju borgin auglýsir ekki þennan fjölda bílastæða sem nú er aðgengilegur öllum. Það á að auglýsa þetta í öllum blöðum! Það eru f leiri stæði í miðborginni en í f lestum öðrum borgarhlutum. Þessu og því sem hefur heppnast vel í uppbyggingunni þarf að koma betur á framfæri. Það er verkefni borgarinnar.“ Samráðsleysi við borgina hefur Svavar fundið á eigin skinni. „Ég get nefnt sem dæmi þegar á einni nóttu var komið rútustæði fyrir ferðamenn fyrir utan stofuna hjá mér,“ útskýrir Svavar, en stofan er á Tryggvagötu. „Ég hringdi margoft í borgina og stakk upp á að slíkt stæði yrði sett upp hinum megin við götuna, fyrir framan eignir borgarinnar í götunni. Ég óskaði eftir því að mengunar- mælingar væru framkvæmdar, því rúturnar gengu látlaust í lausagangi meðan beðið var eftir ferðamönnum, við gátum ekki opnað glugga á stofunni. Ónæðið af þessu var gríðar- legt, því það var engin aðstaða fyrir ferðamennina sem biðu eftir rútunum, hvorki salerni né skjól fyrir vindi og veðrum. Þetta var framkvæmt í hugsunarleysi. Ekkert var að gert fyrr en framkvæmdir hófust af krafti við Hafnar- torg og aðgengi að götunni var orðið það slæmt að rúturnar komust hreinlega ekki um götuna.“ Svavar segir vanta upp á að borgin skilji að fyrirtækjaeig- endur eigi f lestir allt sitt undir sínum rekstri. „Allt mitt lífs- viðurværi er undir þessum hundrað fermetrum á Tryggva- götu komið. Við fyrirtækjaeigendur á framkvæmdasvæðum segi ég: „Hugur minn er hjá ykkur. Vonandi þraukið þið því miðborgin er jú dásamleg. Staða mín í dag er sú að mig vantar frekar fólk í vinnu en öfugt, en ég hef upplifað erfiða tíma í rekstrinum, ekki síst vegna uppgrafinna gatna sem koma okkur sem rekum fyrirtækin í opna skjöldu.“ Mannlausar holur um alla borg Björn Árnason er einn eigenda öldurhússins Skúla Craft Bar við Fógetatorg. „Fyrir tveimur árum komu starfsmenn borgarinnar til okkar og sögðu að þau ætluðu að breyta Fógetagarðinum í matar- vagnatorg. Við vorum hvött til að taka þátt í því. Við keyptum matarvagn og vorum glöð með að fá aðra vagna á torgið til að gæða það meira lífi og draga fleira fólk að. Þau sem keyptu af hinum vögnunum gátu svo setið inni á Skúla ef það var vont veður eða um vetur án þess að vera skyldug að versla við okkur. Í fyrra veitti borgin okkur styrk til að kaupa bekki svo fleiri gætu setið úti, hvort sem þau væru að kaupa af okkar vagni eða annarra,“ segir Björn. Síðasta vetur var eigendum hins vegar tilkynnt að leyfið fyrir vagninum yrði ekki framlengt og það myndi renna út um miðjan maí. „Engar útskýringar voru gefnar. Eftir mikla pressu um að fá svör fengum við loksins að heyra núna fyrir um viku síðan að þetta væri vegna framkvæmda við torgið og að Minjavernd væri búin að friða það. Við sitjum uppi með matarvagn sem nýtist okkur ekki. Aðgengi að staðnum hefur verið takmarkað verulega en sund sem er á milli hússins sem Skúli er í og gamla Landssímahússins er lokað, þrátt fyrir að okkur væri sagt annað í upphafi. Raunin varð önnur og veggur reistur í kringum framkvæmdasvæðið,“ útskýrir Björn og kvartar yfir samskipta- leysinu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að ná tali af forsvars- mönnum. „Okkur finnst fáránlegt að borgin geti hvatt fólk út í rekstur, veitt styrki í tengslum við hann og svo allt í einu bannað reksturinn án þess að gefa ástæðu fyrir. Með matarvögnunum myndaðist góð stemning á torgi sem var nánast líflaust fyrir utan þá gesti sem heimsækja barinn okkur og Te & Kaffi. Fjölskyldufólk, ferðamenn og aðrir komu og nutu veitinga þar.“ Sitja uppi með dýran matarvagn en ekkert leyfi Okkur finnst fáránlegt að borgin geti hvatt fólk út í rekstur, veitt styrki í tengslum við hann og svo allt í einu bannað rekstur- inn. Björn Árnason, einn eigandi Skúla Craft Bar Framhald á síðu 8 MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.