Fréttablaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 41
Hrefna Björk Sverris-dóttir hefur rekið veitingahúsið Rok á Frakkastíg í þrjú ár. Ári áður hófu Hrefna og unnusti hennar, Magnús Scheving, fram- kvæmdir til þess að breyta hús- næðinu í veitingahús. „Mín upplifun er sú að kerfið sé mjög f lókið, mikið regluverk sem oft stangast á og allt tekur mjög langan tíma. Þá er erfitt að fá skýr svör og fáir aðilar sem geta veitt þau sem eru með mjög takmarkaðan tíma til að sinna fyrirspurnum. Við lentum síðan í því að framkvæmda- leyfið okkar var afturkallað vegna mistaka sem borgin gerði sem varð til þess að við náðum ekki að opna staðinn fyrr en þremur mánuðum eftir áætlaðan opnunartíma. Það var lítill skilningur á aðstöðu okkar og tók töluverðan tíma að fá þá að borðinu til að leysa úr þessu með okkur. Maður hefði haldið að fyrstu viðbrögð borgarinnar væru að leysa úr slíkum mistökum á skjótan hátt þar sem þeir gerðu í raun mistök við afgreiðslu leyfisins,“ útskýrir Hrefna og segist hafa þurft að beita miklum þrýstingi til að fá úr sínum málum leyst. Hrefna gagnrýnir einnig afnám kvóta á veitingastöðum og skipu- lag borgarinnar. „Þegar við vorum að opna Rok þá var kvóti sem gerði það að verkum að ekki var hægt að starf- rækja of marga veitinga- staði innan ákveðinna reita en svo virðist sem hann hafi verið afnuminn á einhverjum tíma. Í kjölfarið hafa veitingastaðir og matarvagnar sprottið upp þannig að í dag er samkeppnin mjög mikil og hörð. Þá er borgin skipulögð þannig að í öllum nýbyggingum virðist eiga að vera rými fyrir veit- ingastaði svo að maður sér ekki fyrir endann á þessari fjölgun. Borgin hefur einnig ausið fé í mat- höllina og Braggann sem eru nátt- úrulega í harðri samkeppni við marga aðila í nágrenninu. Manni f innst þetta mjög einkennileg stefna og notkun á skattfé. Þó svo að það megi alveg setja spurningar- merki við hvort kvóti eigi að vera þá hefur borgin gríðarleg áhrif á fyrirtækin þegar slíkar skipulags- breytingar eru gerðar.“ Hún segir fasteignaskatta einn- ig hafa áhrif á rekstur sinn. Einnig innheimti borgin önnur gjöld, til að mynda fyrir heimsóknir eftir- litsaðila og leyfin í upphafi. „Það er umhugsunarvert hvort litlir staðir eigi að borga jafn mikið og þeir stóru fyrir úttektir, eftirlit, innsend- ar teikningar og annan kostnað sem borgin innheimtir. Það kostaði mig til dæmis jafn mikið að fá úttekt og risastórt hótel, þrátt fyrir að aug- ljóslega sé miklu meiri vinna fólgin í svo stórri úttekt en á mínum litla veitingastað.“ Hrefna segir endur- Maður þarf að klessa á alla veggi sjálfur Miðbærinn talaður niður Sindri Snær Jensson á og rekur fataverslunina Húrra Reykjavík á Hverfisgötu ásamt Jóni Davíð Davíðssyni. „Þá erum við einnig meðeigendur í Flatey Pizza sem er staðsett á Grandagarði og Hlemmi Mathöll. Núna erum við að fara af stað með nýtt veit- ingakonsept á Hverfisgötu 44 sem heitir Yuzu og verður opnað í september ef allt gengur að óskum,“ segir Sindri, en fata- verslun þeirra verður fimm ára í næsta mánuði. Þeir hafa ekki farið varhluta af þeirri röskun sem framkvæmdirnar á Hverfis- götu hafa haft á rekstur fyrir- tækja við götuna. „Varðandi Húrra Reykjavík þá tókum við ákveðna áhættu með að hefja rekstur á Hverfisgötu sem hafði ekki talist vænleg verslunargata, við sáum ákveðna möguleika og borgin hafði flotta sýn fyrir götuna. Nú fimm árum síðar eru enn framkvæmdir og það hefur verið mjög erfitt fyrir fótgangandi og reiðhjól að ferðast um götuna. Það hefði verið gott að sjá þessar umbætur ganga hraðar fyrir sig. Það er ekki spurning að Reykjavík hefur tekið miklum breytingum til hins betra undanfarin ár og við erum rosalega ánægð með miðbæinn þó við séum langeygð eftir að sjái fyrir endann á framkvæmdum við Hverfisgötuna,“ útskýrir Sindri. Engin samskipti Hann segir samskipti og upp- lýsingaflæði af hálfu borgarinnar ekkert gagnvart þeim. „Það hefur aldrei neinn frá borginni sett sig í samband við okkur varðandi framkvæmdir eða fyrirhug- aðar breytingar á nærumhverfi rekstrar okkar.“ Hann segir bagalegt hvað áfanginn neðst á Hverfisgötu hefur tekið langan tíma og það yfir hásumar, þegar umferð fótgangandi er hvað mest. „Nú hafa komið fram skýringar um vandamál varðandi hæðarmun á götunni, vandamál eru til að leysa þau og ég biðla til borgarinnar að drífa í þessu. Það væri farsælast fyrir alla að klára Hverfisgötuna að mestu leyti því umtalið um miðbæinn hefur verið alveg glatað undanfarin misseri. Að mínu viti hefur miðbærinn upp á svo svakalega margt að bjóða og þessar framkvæmdir verða okkur öllum til hagsbóta til lengri tíma litið, betri borg og meira mannlíf.“ Hálfgert völundarhús Sindri segir tvennt ólíkt að koma á fót fataverslun eða veitingastað. „Af okkar reynslu er ferlið varðandi leyfisveitingar til veitingastaða ansi snúið og þar af leiðandi getur verið erfitt að fóta sig og finna réttu leiðina í hálfgerðu völundarhúsi. Það sem helst hefur angrað okkur er seinagangur á afgreiðslu og þá sérstaklega yfir sumartímann, það hefur reynst seinlegt að fá svör. En á endanum hefur allt gengið nokkuð smurt fyrir sig og við höfum þannig séð yfir litlu að kvarta heilt yfir. Mín tilfinning og reynsla gagnvart borgaryfir- völdum er að allir séu að gera sitt besta en kerfið sé mögulega barn síns tíma og þurfi á uppfærslu að halda.“ Hefur aukin skattbyrði áhrif á rekstur þinn? Til að mynda fast- eignaskattur? „Hingað til höfum við ekki lent í hækkunum á leiguverði, og er það aðallega vegna lengdar samninga og þess góða samstarfs sem við eigum við leigusala. Hins vegar hafa átt sér stað viðræður um endurnýjun samninga og tíminn verður að leiða í ljós hvort hækk- anir verði á leiguverði, ef svo verður þurfum við að gera við- eigandi ráðstafanir. Það er ekkert leyndarmál að launakostnaður er sá liður sem hefur hækkað mest á undanförnum árum og haft mikil áhrif á reksturinn,“ segir Sindri. Eigandi veitingahússins Roks segir að skilningsleysi einkenni samskipti sín við borgaryfirvöld. Hún gagnrýnir einnig að borgin ausi fé í uppbyggingu mathalla og bragga sem séu í beinni samkeppni við aðra veitingahúsaeigendur sem fá ekkert niður- greitt. Hún segir fasteignaskatta og önnur gjöld sem borgin innheimtir hafa áhrif á reksturinn. skoðun á þessu geta rýmkað fyrir stofnun lítilla og meðalstórra fyrir- tækja í borginni. „Þá eru leyfin fyrir matarvagna og regluverkið í kring- um þá mun einfaldara ferli en hjá veitingastöðum – en þeir eru samt í beinni samkeppni við staðina. Þarna fer lítið fyrir samræmi.“ Hrefna segist ekki vita til þess að borgin láti vita af framkvæmdum eða fyrirhuguðum breytingum í nærumhverfi rekstursins. „Maður fær ekki tilkynningar þegar fram- kvæmdir hefjast eða um lokanir vegna viðburða í borginni. Við höfum þó ekki verið mjög nálægt stóru framkvæmdunum undan- farin ár hjá borginni. Mín upplifun er hins vegar sú að það sé erfitt að fá svör hjá borginni eða fá aðstoð, maður þarf svolítið að klessa á veggi sjálfur. Það virðist skorta á skilning á þeim tíma og þeim fjármunum fólks sem leggur oft á tíðum allt sitt undir í reksturinn. Manni finnst að borgin mætti hafa upplýsingar aðgengilegri og leiðbeinandi. Það fer mikill dýr- mætur tími í að leita sér upplýsinga varðandi framkvæmd- ir og leyfi og slíkt.“ segir Hrefna. Við erum rosalega ánægð með miðbæinn þó við séum langeygð eftir að sjái fyrir endann á framkvæmdum við Hverfisgötuna. Sindri Snær Jensson, eigandi Húrra Reykjavík Mín upplifun er sú að kerfið sé mjög flókið, mikið regluverk sem oft stangast á og allt tekur mjög langan tíma. Hrefna Björk Sverrisdóttir, eigandi Roks 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.