Fréttablaðið - 21.08.2019, Page 45

Fréttablaðið - 21.08.2019, Page 45
Stjórnar- maðurinn 19.08.2019 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 21. ágúst 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Jafnlaunavottun Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar PwC býður upp á heildstæða þjónustu í launamálum og jafnlaunavottun. Við búum yfir áralangri reynslu og lausnum sem virka. Sanngjörn laun fyrir jafnverðmæt störf 2019 Líftæknifyrirtækið Orf hagnaðist um 161 milljón króna á síðasta ári en það er um fjór- falt meiri hagnaður en árið á undan þegar hann nam 38 milljónum króna. Tekjur félagsins námu 1,6 milljörðum króna og jukust um 30 prósent á milli ára. Um 80 prósent teknanna komu að utan. Rekstrarkostnaður jókst um 20 prósent yfir sama tímabil. Eignir Orfs námu 1.960 milljónum króna í lok 2018 og eigið féð 1.300 milljónum. Hluthafar í félaginu eru 123 talsins. Stærstu hluthafarnir eru FIVE Invest með 35,6 pró- senta hlut, Zimsen með 13,8 prósenta hlut og Torka með 9,9 prósenta hlut. Í byrjun árs gekk Orf frá 520 milljóna króna langtímafjármögnun frá Arion banka í samstarfi við Evrópska fjárfesting- arsjóðinn. Verður fjármagnið meðal ann- ars nýtt til að sækja inn á Asíumarkað og Bandaríkjamarkað. Helsta tekjulind Orfs er húðvöru línan Bioeffect. – þfh Hagnaður Orfs líftækni fjórfaldast Mér hefur þótt áberandi hvað margir hafa fjallað um [orku- pakka]málið í sumar án þess að gera sér grein fyrir því hvaða lög gilda í landinu. Birgir Tjörvi Pétursson, hæstaréttarlögmaður   Frosti Ólafs- son, forstjóri Orfs Nýverið var skipt um æðstu stjórnendur í Arion banka. Aug­ ljóslega er um kaf laskipti í lífi bankans að ræða. Fráfarandi forstjóri var við störf allt að því frá hruni. Við taka menn sem getið hafa sér gott orð í fjármálageir­ anum á eftirhrunsárunum. Nýir vendir sópa best, hugsa stjórnar­ menn vafalaust. Ekki veitir af. Ríf lega fjögur þúsund manns starfa hjá fjármálafyrirtækjum á Íslandi, rétt um 20% færri en þegar mest var árið 2007. Stærð bankakerfisins er einungis brot af því sem það var á árunum fyrir hrun. Auðvitað voru ástæður fyrir því að bankastarfsmönnum fækkaði ekki hraðar en raun bar vitni strax eftir hrun. Bankarnir voru allir skyndilega í ríkiseigu og hagsmunir hins nýja eiganda ekki einungis þeir að skila ábata­ sömum rekstri. Stórkostlegt atvinnuleysi í fjármálageiranum hefði beinlínis haft skaðleg áhrif á efnahagsbata eftir áfallið 2008. Nú er staðan önnur. Tveir bankar eru enn í ríkiseigu, Landsbankinn og Íslandsbanki. Arion er eini einkarekni viðskiptabankinn, þótt stundum sé erfitt að greina það þegar litið er til umfangs starf­ seminnar og þess sem kostað er til. Raunar mætti halda að Lands­ bankinn væri einkabankinn sé litið til rekstrarkostnaðar. Við þessa, að mörgu leyti skiljan­ legu, bankaoffitu bætast svo hraðar tækninýjungar í geiranum. Fjártæknibyltingin hefur þegar gert marga starfsmenn óþarfa. Sú þróun mun halda áfram og áger­ ast. Í því samhengi hljóma áform um nýjar höfuðstöðvar Lands­ bankans hjákátlegar. Hvaða fólk eiga þessi húsakynni að hýsa? Hjá Arion einum starfa um átta hundruð manns. Samkvæmt öllum mælikvörðum er það allt of mikið. Bankinn glímir sömu­ leiðis við menningarvanda sem ekki verður leystur á einni nóttu. Nýir stjórnendur eru fengnir til að leysa úr þessum viðfangsefnum og vissulega eru þau ærin. Þeir hafa erft fitubita sem ekki er ákjósan­ legur til annars en djúpsteik­ ingar. Skera þarf þá fitu af og gera bankann tilbúinn til að takast á við verkefni samtíðarinnar. Nauðsynlegt er að þeir, og aðrir í bankageiranum, fái vinnufrið til nauðsynlegra aðgerða. Þær verða ekki sársaukalausar, en viðskipta­ lífi og samfélagi til bóta þegar öllu er á botninn hvolft.   Bankaoffita

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.