Fréttablaðið - 21.08.2019, Síða 57

Fréttablaðið - 21.08.2019, Síða 57
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Jónu Hrannar Bolladóttur BAKÞANKAR 990 KR/KG 1.990 Verð áður: LÍFIÐ ER GOTTERÍ 50% AFSLÁTTUR 990 KR/KG 1.990 Verð áður: Ný sýn með Hugrúnu Halldórs í Sjónvarpi Símans Premium Einlægir viðtalsþættir þar sem viðmælendur hafa tekist á við áskoranir sem breyttu lífi þeirra. Þorgerður Katrín, Sigvaldi Kaldalóns, Baldvin Z, Arna Sigríður og Vilborg Arna segja okkur sínar sögur. Öll þáttaröðin er nú aðgengileg í Sjónvarpi Símans Premium. siminn.is Ég hef leyft mér á þessum vett-vangi að ræða um aðstæður heilabilaðra og ástvina þeirra. Faðir minn, Bolli Gústavsson, glímdi við minnissjúkdóm í 12 ár sem rændi hann lífsgæðum hægt en örugglega. Það getur verið erfitt að vera nálægt þeim sem eru veikir. Ég man að sú djúpa og nærandi tilfinning að tilheyra og njóta umhyggju lifði með föður mínum þrátt fyrir minnisleysið. Það er mikilvægt að þau sem eru gleymin fái að njóta lífsgæða á meðan lífið varir. Eitt af því sem tilheyrir minnis- sjúkdómum er málstol og því þarf að finna skapandi leiðir til að vera í nándinni. Hægt er að horfa á eitt- hvað fallegt saman, njóta návistar dýra eða barna, hlusta á kunnug- lega tónlist eða lesa fallegan texta þar sem ekki þarf að halda löngu samhengi. Þrátt fyrir að margir veldu að heimsækja ekki föður minn á sínum tíma en vildu helst muna hann eins og hann var, man ég eftir þremur kollegum hans sem létu ekki vanmátt hans aftra sér. Einn þeirra var Sigurbjörn Einars- son biskup. Eitt sinn er pabbi var orðinn mjög veikur og dvaldi á Landa- kotsspítala, kominn í hjólastól og málstol hans var orðið algjört, kom vakthafandi hjúkrunarfræðingur á móti mér og sagði að Sigurbjörn biskup hefði komið í heimsókn. Ég spurði hvort hann hefði staldrað lengi við og hún játti því. Síðan spurði ég hvort hann hefði náð einhverju sambandi við pabba og hún sagði mér að þeir hefðu setið lengi við gluggann þar sem kirkjan í Landakoti blasir við og haldist í hendur. Málstol föður míns kom ekki í veg fyrir að þessir orðsins menn gætu átt samfélag í vináttu og blessað þannig hvor annan. Ég geymi þessa mynd í huga mér alla tíð. Hún veitir mér huggun. Nándin í veikindunum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.