Fréttablaðið - 04.01.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 04.01.2012, Blaðsíða 2
4. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR2 fólK „Við sáum bara að það var búið að brenna kanínuna og inni í kass- anum var allt brunnið,“ segir Helga Berglind Tómasdóttir, ellefu ára, sem var úti að ganga ásamt frænku sinni, Söru Hlín Bjarnadóttur, tólf ára, í hrauninu við Garðabæ í gær- dag. Stöllurnar voru að viðra hund Söru þegar þær gengu fram á lítinn kanínukassa sem kveikt hafði verið í. Skammt frá lá kanínan, brunnin á annarri hliðinni og frosin. „Það var ógeðslegt að sjá þetta. Við urðum smá hræddar,“ segir Helga. Stúlkurnar fóru rakleiðis heim og létu foreldra Söru vita. Þær hringdu í kjölfarið í Neyðar- línuna, sem gaf þeim samband við lögreglu. „Löggan vildi ekki gera neitt,“ segir Helga og tekur Sara undir það. „Það svaraði einhver kona og hún gaf mér samband við lögregluna. Þá svaraði maður og ég sagði honum að við hefðum fundið brunna kan- ínu,“ útskýrir Sara, sem sagði lög- reglunni hvað gerst hafði, hvað þær frænkur hétu og hvað þær væru gamlar, en fékk dræm viðbrögð. „Hann sagði bara að þeir gætu ekki farið að leita að þessu núna. Þetta væri úti í hrauni og líklega erfitt að finna,“ segir Sara. „Við hefðum samt alveg getað sýnt þeim hvar þetta var,“ segir Helga. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lögreglumanni hjá lögreglunni í Garðabæ í gærkvöld, var málið ekki fært til bókar í gær. Undir eðlilegum kringumstæðum hefðu verið sendir menn á vettvang þegar svona mál koma upp. „Við munum að sjálfsögðu kíkja á þetta,“ segir lögreglan. „Ég bendi stelpunum á að hafa samband við okkur í dagsbirtu og við munum þá kíkja á þetta.“ Að mati lögreglumannsins er afar erfitt að átta sig á því hver gerir svona lagað. Hann ítrekar þó að málið hafi ekki verið fært til bókar í gærdag. sunna@frettabladid.is Hann sagði bara að þeir gætu ekki farið að leita að þessu núna. Þetta væri úti í hrauni og líklega erfitt að finna. Sara Hlín Bjarnadóttir tólf ára VIÐsKIptI Heildverslunin Egilsson ehf. hefur keypt ritfangaverslana- keðjuna A4 af Björgu, eignarhalds- félagi í eigu Sparisjóðsbankans. Fyrir á og rekur Egilsson ritfanga- verslanirnar Office 1. Kaupverð er trúnaðarmál. Fjöldi ritfangaverslana í eigu Egilsson er nú átta. A4 rekur tvær verslanir; staðsettar í Reykjavík og á Akureyri og Office 1 rekur fjór- ar verslanir á höfuðborgarsvæð- inu og eina á Egilsstöðum og Sel- fossi. Rekstur verslananna verður óbreyttur fyrst um sinn, að því er segir í tilkynningu frá Egilsson. Báðar verslanakeðjurnar urðu gjaldþrota á árinu 2009. Var rekst- ur A4 settur inn í nýtt félag árið 2009 sem var svo selt til Bjargar. Hið nýja A4 tapaði 95,5 milljónum króna á árinu 2010 en eigið fé þess var 55 milljónir í upphafi árs 2011. Félagið sem átti Office 1 fór í greiðslustöðvun um mitt ár 2009 og var reksturinn þá settur inn í nýtt félag og seldur til Egilsson sem hafði áður átt fyrirtækið. Hið nýja félag hefur enn ekki gefið út ársreikning. Egilsson er ein helsta heildsala landsins á sviði verslunar með rit- föng, leikföng, gjafavörur og árs- tíðabundnar vörur. Fjöldi starfs- manna er nú um 80. - mþl Heildverslunin Egilsson hefur fest kaup á ritfangaverslanakeðjunni A4: A4 í eigu sömu aðila og Office 1 snjóflóÐ Sex manns lentu í hundrað metra breiðu snjóflóði í Fossdal á Barðaströnd seinni- part mánudags. Fólkið var að leita sjö kinda á svæðinu þegar flóðið fór af stað. Tvennt fór alveg á kaf í flóð- inu en öll bárust þau um 30 til 40 metra niður hlíðina. Ein stúlkan í hópnum fór alveg á kaf, en endaði þó með andlitið upp úr og náði að hrópa á hjálp svo félagar hennar gátu komið henni til bjargar. Allir sluppu ómeiddir úr hrakförunum. Ekki tókst þó að bjarga kindunum sjö, sem voru í sjálfheldu á Fugl- bergi í Fossdalnum. Snjóflóðið var mikið um sig, um hundrað metrar á breidd og um 130 sentimetrar á dýpt. - sv Betur fór en á horfðist: Sex manns í miklu snjóflóði Office 1 Egilsson á og rekur nú samtals tíu ritfangaverslanir víða um land. Spurning dagSinS ÚTSALA 38 ÞREP Laugavegi 49 / sími 561 5813 Bjarni, er stéttaskipting í snjómokstrinum? „Ískalt mat: fjölmennustu stéttir borgarinnar hafa algjöran forgang í þessum efnum.“ Bjarni Brynjólfsson er upplýsinga- stjóri reykjavíkurborgar. Starfsmenn borgarinnar hafa unnið hörðum höndum við snjómokstur síðustu daga en götum og stígum er skipt í flokka eftir mikilvægi. EfnAhAGsMál Síðasti h luti lána Norðurlandaríkjanna til íslenskra stjórnvalda var greidd- ur til Íslands á föstudag. Um er að ræða lán sem veitt voru í tengslum við efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins sem lauk í haust. Þessi síðasta greiðsla lánanna var að upphæð 887,5 milljónir evra sem jafngildir 141 millj- arði króna á núverandi gengi. Af þessari fjárhæð tekur ríkissjóð- ur að láni 647,5 milljónir evra frá danska, finnska og sænska ríkinu. Þá tekur Seðlabanki Íslands 240 milljónir evra að láni frá Seðlabanka Noregs. Öll fjárhæðin bætist hins vegar við gjaldeyrisforða Seðlabankans. Samtals hefur íslenska ríkið þar með tekið lán að upphæð 753 milljarðar króna frá því í október 2008 til að styrkja gjaldeyris forða Seðlabankans. Nemur forðinn nú um 1.030 milljörðum krónum sem jafngildir tveimur þriðju of vergri landsframleiðslu. Er forð- inn þó í raun allur tekinn að láni og nema hreinar vaxtagreiðslur af gjaldeyrislánum ríkis sjóðs og Seðlabankans um 3 til 4 prósent- um af forðanum á ári. Að frádregnum gjaldeyrisinn- stæðum annarra en ríkissjóðs í Seðlabankanum og samnings- bundnum afborgunum lána á næstu tólf mánuðum nemur forð- inn um 40 prósentum af lands- framleiðslu. - mþl Gjaldeyrisforði Seðlabankans nemur tveimur þriðju af landsframleiðslu: Hinsti hluti Norðurlandalána greiddur gjaldeyrir Hreinar vaxtagreiðslur hins opinbera vegna gjaldeyrisforða Seðlabankans eru um 3 til 4 prósent af honum á ári. stjóRnMál Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort lögð verð- ur fram tillaga um vantraust á ríkisstjórnina, að sögn Bjarna Benediktsson- ar, formanns Sjálfstæðis- flokksins. Hann segir ríkisstjórnina veikari eftir breytingarnar um áramótin. „Þegar menn gera breytingar á ríkisstjórn er ekki verra að það sé einhver tilgangur með þeim, að menn sjái að breytingarnar miði að einhverju markmiði. Því fer fjarri að eitthvað slíkt sé hægt að tengja við þessar breytingar, annað en það að ryðja mönnum úr vegi.“ - kóp Segir ríkisstjórn veikari: Ekki ákveðið um vantraust Bjarni BenediktSSOn Brunnin kanína í Garðabæjarhrauni Tvær stúlkur fundu brunna kanínu og kanínubúr í hrauninu í Garðabæ í gær. Stúlkurnar létu lögreglu vita í gærdag, en fengu dræm viðbrögð. Vakthafandi lögregluþjónn sagði við Fréttablaðið í gærkvöld að svona mál ætti þó að skoða. ódæðiSverk Kveikt hafði verið í kanínukofanum og kanínunni, sem lá frosin skammt frá, þegar frænkurnar Söru Hlín Bjarnadóttur og Helgu Berglindi tómas- dóttur bar að. fréttaBlaðið/StEfán Brunnin til kaldra kOla Kanínan var ljósbrún að lit og brunnin á annarri hliðinni. fréttaBlaðið/StEfán AtVInnUMál Alls bárust Vinnu- málastofnun tilkynningar um 752 uppsagnir í 23 hópuppsögnum á árinu 2011. Flestar voru í mann- virkjagerð, eða 248, þá upplýs- ingastarfsemi 102 og í fjármála- þjónustu, 100 manns. Tæp 70 prósent hópuppsagna á árinu voru á höfuðborgarsvæð- inu, um níu prósent á Vestfjörð- um og sjö prósent á Suðurnesjum. Samtals hefur 8.357 manns verið sagt upp í hópuppsögnum á síðustu 4 árum, flestum árið 2009, eða 4.246 manns. - shá Hópuppsagnir 2011: 752 misstu starf í 23 uppsögnum stjóRnsýslA Nýr ráðherra sjáv- arútvegsmála, Steingrímur J. Sigfússon, frétti í gær að for- veri hans, Jón Bjarnason, hefði skipt út formanni Hafrann- sóknastofn- unar á síðustu dögum sínum í embætti. Stein- grímur segist hafa rætt við núverandi og fráfarandi for- mann og ekki sjá ástæðu til breytinga. Steingrími er ekki kunnugt um rökstuðning Jóns fyrir breytingunni, en vel sé skipað í stöðuna á hvorn veg- inn sem er. „Þetta er í góðu lagi. Öll stjórnin kemur til endurnýj- unar seinna í árinu og þá er í sjálfu sér hægt að skoða málin.“ Nýi stjórnarformaðurinn, Erla Kristinsdóttir, hefur verið gagnrýnin á störf Hafró. Stein- grímur segist ekki hafa neina ástæðu til að ætla annað en að hún taki faglega afstöðu til mála. - kóp Steingrímur J. Sigfússon: Vissi ekki um breytingarnar nEytEnDUR Sala á áfengi hefur dregist saman milli ára. Sam- kvæmt tölum frá Vínbúðinni hefur salan minnkað um 2,7 pró- sent á nýliðnu ári samanborið við árið 2010. Um 18,4 milljónir lítra af áfengi seldust í fyrra en um 18,9 milljónir lítra seldust árið á undan. Á heildina litið er aukning í sölu á léttvíni en samdráttur í bjór og sterku áfengi. Alls komu 4.181 þúsund við- skiptavinir í Vínbúðirnar á nýliðnu ári samanborið við 4.256 þúsund árið áður. - sv Munar um 500.000 lítra: Sala á áfengi dregst saman Steingrímur j. SigfúSSOn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.