Fréttablaðið - 04.01.2012, Blaðsíða 10
4. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR10
Ertu ekki örugglega
með Sjónvarp Síma
ns?
facebook.com/siminn.is
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Rvk
Akureyri
Reykjanesbæ
Húsavík
Vestmannaeyjum
Jólin í geymsluna
Gerð 002 með hjólum
52 lítra 58x42x34cm 1.890,-
Gerð 8858 með hjólum 35 lítra
80x39,5x16cm 1.599,-
Gerð B002 með hjólum 46 lítra 55,5x40,5x33cm 1.699,-
Gerð B003 með hjólum 28 lítra 49x36x28cm 1.299,-
MARC-LEO1 Leo hillueining.
75x30x135cm. 4 hillur
4.990,-
MARC-LEO5 Leo hillueining.
100x30x185cm. 5 hillur
6.990,-
Gerð 003 með hjólum
28 lítra 49x36x28cm 999,-
KópAVoGUR Skipulagsnefnd Kópa-
vogsbæjar hefur ekki fjallað nægj-
anlega um friðlýsingu Skerjafjarð-
ar innan sveitarfélagsins, að mati
Kristins Dags Gissurarsonar, full-
trúa Framsóknarflokksins í nefnd-
inni. Hann telur formann umhverf-
is- og samgöngunefndar bæjarins,
Margréti Júlíu Rafnsdóttur, hafa
fullyrt of mikið um málið, en hún
sagði í Fréttablaðinu á mánudag að
friðlýsingin gengi í gegn í janúar.
„Það er ekkert búið að kynna
þetta í skipulagsnefnd, það er
aðeins ein kynning komin. Ein-
hvern tímann um mitt árið í
fyrra var tæpt óformlega á
friðlýsingar-
málum,“ segir
Kristinn. Hann
telur óvíst að
meirihluti sé
fyrir málinu í
nefndinni, enda
séu fulltrúar
bæjarstjórnar-
meirihlutans
þar ekki á eitt
sáttir.
„Menn hafa
verið sammála um að það lægi
ekkert á því að fara í þessa frið-
lýsingu vegna þess að það er
bæjarvernd á svæðinu, sem er
ígildi friðlýsingar. Bærinn hefur
verið að standa sig mjög vel í
verndun svæðisins.“
Kristinn segist sjálfur efast um
að friðlýsingu þurfi. Færa þurfi
rök fyrir því að bæjarvernd dugi
ekki til. Þá þurfi að leggjast yfir
málið, hvað sé verið að friðlýsa,
hvað það þýði og hvað það kosti.
„Menn mega ekki fara í vin-
sældapólitík. Friðlýsing er fal-
legt orð og sumir vilja friðlýsa
sem mest,“ segir Kristinn. Hann
segir alla vilja passa upp á nátt-
úruna á svæðinu. Annað mál sé
hvort úr því þurfi að gera mikið
bákn með friðlýsingu. - kóp
Telur ekkert liggja á ákvörðun um friðlýsingu Skerjafjarðar í Kópavogi:
Friðlýsing Skerjafjarðar er ósamþykkt
kristinn dagur
gissurarson
TyRKlAnD, Ap Tyrknesk stjórnvöld
bjóða Kúrdum skaðabætur vegna
loftárásar sem kostaði 35 almenna
borgara lífið í síðustu viku. Þetta
er mesta mannfall sem orðið
hefur á einum degi í áratugalöng-
um átökum stjórnarhersins við
aðskilnaðarsinnaða kúrda.
„Þetta atvik var á engan hátt
vísvitað,“ sagði Bulent Arinc,
aðstoðarforsætisráðherra, en
hann tók jafnframt fram að
stjórnvöld meti það svo að her-
inn hafi farið að öllu rétt, þótt
rannsókn á atvikinu sé reyndar
ekki lokið: „Allar niðurstöðurnar
staðfesta það að aðgerðina átti að
heimila.“
Tyrkneskar herþotur og mann-
laus flugfarartæki voru notuð til
að gera loftárás á hóp Kúrda við
landamæri Íraks, þar sem þeir
voru að smygla vörum yfir landa-
mærin.
Kúrdar hafa áður gert árásir
á tyrknesk skotmörk frá þessu
sama landamærasvæði. Arinc
segir að herinn hafi skotið
viðvörunarskotum, en fólkið hafi
samt ekki numið staðar.
Mikil reiði hefur verið meðal
Kúrda vegna þessarar árás-
ar og hefur uppreisnarhreyfing
Kúrda hótað hefndum og hvatt til
mótmæla. - gb
Tyrknesk stjórnvöld reyna að bæta andrúmsloftið í kjölfar loftárásar:
Bjóða Kúrdum skaðabætur
Mikið Mannfall Þrjátíu og fimm
almennir borgarar létu lífið í loftárás á
Kúrda í síðustu viku. nordicphotos/AFp
HeIlbRIGÐIsMál Lyf sem innihalda
virka efnið atomoxetín geta aukið
hjartslátt og hækkað blóðþrýst-
ing meira en áður var talið.
„Vinnuhópur um lyfjagát á
vegum Lyfjastofnunar Evrópu,
PhVWP, hefur samþykkt hertar
varúðarreglur,“ segir á vef stofn-
unarinnar, en áréttað að ekki sé
vitað til þess að lyfið hafi valdið
alvarlegum aukaverkunum. Ekki
sé þó hægt að útiloka þær hjá
litlum hópi sjúklinga. Læknar
eiga að fylgjast sérstaklega vel
með lyfinu Strattera. - óká
Læknar haldi vöku sinni:
Áhrif lyfs meiri
en talin voru
Alla virka daga kl. 18.00
Disovery Channel er fáanleg í Allt FræðslA toppur lAndsbyggð
1. Frá hvaða fyrirtæki vill
skatturinn 800 til 1.800 milljónir í
ógreiddan skatt?
2. Hvaða fyrirtæki hefur keypt út
varpsstöðina Kanann?
3. Hver lék Hildi Líf í Áramóta
skaupinu?
svör:
heildarkostnaður vegna hörpu og tengdra verkefna, að meðtöldum
afskrifuðum kostnaði, er áætlaður 27,7 milljarðar króna. Þegar samningar
um byggingu hússins voru upphaflega undirritaðir í apríl 2002 var áætlaður
kostnaður um sex milljarðar króna.
Fyrri eigendur hörpunnar höfðu ráðist í um 10 milljarða króna skuld-
bindingar þegar íslenska ríkið og reykjavíkurborg keyptu það á 1,6 milljarða
króna í mars 2009. ríki og borg tóku í kjölfarið að sér að klára byggingu
hörpunnar. Í janúar 2010 var ráðist í að taka sambankalán til að gera þau
verklok gerleg. Upphaflega átti að vera tæplega 17,1 milljarða króna þak á
því láni. Áætlaður heildarkostnaður vegna byggingar, rekstrar og kostnaðar
vegna annarra byggingareita á lóðinni er hins vegar hærri en sem því þaki
nemur. Því er áætluð skuldabréfaútgáfa upp á 18,3 milljarða króna.
langt umfram áætlaðan kostnað
VIÐsKIpTI Skuldabréfaútgáfa upp á
18,3 milljarða króna til að endur-
fjármagna lántökur vegna bygg-
ingar tónlistar- og ráðstefnuhúss-
ins Hörpu gæti orðið að veruleika
í janúarmánuði. Portus, sem held-
ur utan um eignarhald Hörpunn-
ar, hefur átt í viðræðum við banka
um að sjá um útgáfuna og eru þær
langt komnar. Þetta staðfestir
Pétur J. Eiríksson, stjórnarfor-
maður Portusar. Hann segist sann-
færður um að mikil eftirspurn
verði eftir bréfunum, sérstaklega
vegna þess að lítið er um fjárfest-
ingartækifæri á Íslandi fyrir stóra
fjárfesta á borð við lífeyrissjóði
um þessar mundir.
Portus er dótturfélag Austur-
hafnar-TR, sem er eigandi Hörpu.
Austurhöfn er í 54% eigu íslenska
ríkisins og 46% eigu Reykjavík-
urborgar. Félagið tók sambanka-
lán hjá Landsbanka, Arion banka
og Íslandsbanka í janúar 2010 til
að fjármagna byggingu hússins.
Það lán dugði þó ekki fyrir stofn-
kostnaði og því samþykktu eigend-
ur Austurhafnar, íslenska ríkið og
Reykjavíkurborg, að lána félaginu
730 milljónir króna til viðbótar í
lok síðasta árs. Til stendur að
endurgreiða bæði sambanka- og
eigendalánið þegar skuldabréfa-
útgáfan hefur verið seld.
Pétur segist telja útgáfuna vera
vel seljanlega. Ávöxtunarkrafan
sem verði í boði verði þó líklega
lægri en sú sem lífeyrissjóðir
horfa vanalega á. „Ég er sannfærð-
ur um að það verði mikil eftir-
spurn eftir þessum bréfum. Við
höfum fundið það á viðbrögðunum.
Sérstaklega hjá minni lífeyrissjóð-
um. Það eru ekki mörg kauptæki-
færi fyrir lífeyrissjóði í dag.“
Kostnaður eigenda Hörpunnar
vegna sambankalánsins er sem
stendur um 960 milljónir króna
á ári. Lánið ber breytilega vexti
og verður verðtryggt frá og með
lokum febrúar næstkomandi. Því
Mikill áhugi á að
kaupa bréf í Hörpu
Skuldabréfaútboð Hörpu gæti farið fram í þessum mánuði. Endurfjármagna
þarf 18,3 milljarða til að endurgreiða sambankalán og eigendalán sem ríki og
borg veittu. Stjórnarformaður Portusar segist finna fyrir mikilli eftirspurn.
Eldborg harpan var formlega opnuð 4. maí síðastliðinn með tónleikum
sinfóníuhljómsveitar Íslands. Íslenska ríkið og reykjavíkurborg ákváðu að klára
byggingu hússins eftir að fyrri eigendur þess gátu það ekki. FréttAblAðið/VAlli
ríkir ákveðinn óvissa um hver
endanlegur kostnaður ríkis og
borgar vegna byggingu Hörpunn-
ar verður á meðan það hefur ekki
verið endurfjármagnað.
Að sögn Péturs gæti útgáfan
orðið að veruleika núna í janúar.
Það fari eftir niðurstöðum úr við-
ræðum við banka sem standi yfir
um þessar mundir. Hann segir
þó ekkert liggja á. „Ef við förum
í útgáfu núna þá mun fjármagns-
kostnaður félagsins mögulega
hækka aðeins til að byrja með.
Við erum með mjög hagstæð kjör á
sambankaláninu en það eru breyti-
legir vextir á því sem verða verð-
tryggðir frá og með lokum febrú-
ar næstkomandi. Við erum því að
leita í öryggið.“ thordur@frettabladid.is
1. Skiptum. 2. Skjárinn. 3. Anna Gunndís
Guðmundsdóttir
vEistu svarið?