Fréttablaðið - 04.01.2012, Blaðsíða 6
4. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR6
Gjörhygli
Átta vikna námskeið í gjörhygli (Mindfulness
based cognitive therapy/stress reduction)
hefst 10. janúar í Menningarmiðstöðinni Gerðuberg.
Kennt er á þriðjudögum kl 16:30-18:30/19:00
Námskeið í gjörhygli tengir saman hugræna
atferlismeðferð og hugleiðsluæfingar.
Námskeiðið hjálpar þeim sem eru að fást við streitu,
kvíða, endurtekið þunglyndi eða langvinna verki.
Verð kr; 49.000.
Nánari upplýsingar:
www.gjorhygli.is - gjorhygli@gmail.com
Margrét Arnljótsdóttir sálfræðingur
Bridget (Bee) Ýr McEvoy RPN
Anna Dóra Frostadóttir sálfræðingur
VIÐsKIptI Gjaldabreytingar embætt-
is ríkisskattstjóra á félög og fyrir-
tæki námu sex milljörðum króna á
árinu 2011.
Þær hafa rúmlega tvöfaldast frá
því sem þær voru árið 2009. Þá
var yfirfæranlegt tap sem félög
eða fyrirtæki ætluðu að nýta til að
lækka skattgreiðslur sínar lækkað
um tæplega 47
milljarða króna
frá því sem sett
var fram í fram-
tölum þeirra,
samkvæmt upp-
lýsingum frá
embættinu.
Útstrikað yfir-
færanlegt tap
var 86 milljón-
ir króna á árinu
2010, eða 46.624
milljónum minna en í fyrra.
Á meðal þeirra mála sem leiða
til endurálagningar vegna gjalda-
breytingar er ólögmæt nýting á
tapi við samruna félaga, ólögmæt
úthlutun arðs og skuldsettar yfir-
tökur þar sem gjaldfærsla á vöxt-
um lána sem tekin voru til að fjár-
magna yfirtökuna var hafnað.
Fréttablaðið sagði frá því í gær
að Skipti, móðurfélag Símans,
þurfi að greiða 800 til 1.800 millj-
ónir króna samkvæmt væntan-
legri endurálagningu. Í desember
sagði blaðið frá endurálagningu
gjalda á Húsasmiðjuna seint á síð-
asta ári. Hún gæti numið allt að 700
milljónum. Í báðum tilfellum snýr
endurálagningin að stórum hluta að
skuldsettum yfirtökum.
Gjaldabreytingar sem eftirlits-
svið ríkisskattstjóra stóð að námu
liðlega 3,8 milljörðum króna á
árinu 2010 og 2,9 milljörðum króna
árið 2009. Samkvæmt upplýsingum
frá embættinu voru þær tæpir sex
milljarðar króna á árinu sem var að
líða og hafa því aukist um tæpa tvo
milljarða á milli ára. Gjaldabreyt-
ingarnar hafa rúmlega tvöfaldast
frá árinu 2009.
Ekki var hægt að nálgast upp-
lýsingar um hversu mörg mál eru
að baki gjaldabreytingunum. Skúli
Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri
segir þau þó skipta hundruðum. Öll
snúist um háar fjárhæðir og það telj-
ist til undantekninga ef gjaldabreyt-
ing sé undir tíu milljónum króna.
Lækkun á yfirfæranlegu tapi
sem félög eða fyrirtæki ætluðu að
nýta sér, en fengu ekki eftir skoðun
ríkisskattstjóra, nam 46,7 milljörð-
um króna í fyrra. Hún var 86 millj-
ónir árið 2010 og 1,3 milljarðar árið
áður.
Um er að ræða tap sem félög eða
fyrirtæki hafa, samkvæmt efna-
hagsreikningi sínum, ætlað að nýta
til frádráttar frá skattgreiðslum.
Þegar eftirlitssvið ríkisskattstjóra
fór að skoða reikninga þeirra og
framtalsskil nánar komst það að
þeirri niðurstöðu að færslan upp-
fyllti ekki skilyrði sem þarf til að
tap verði yfirfæranlegt.
Heimildir blaðsins herma að
ástæða þess að upphæðin er svo há
sé að fjölmörg félög og fyrirtæki
sem hafi farið illa út úr banka-
hruninu, en hafi síðan verið fjár-
hagslega endurskipulögð eða hald-
ið lifandi, þrátt fyrir að bera ekkert
nema tap, hafi ætlað að nýta tapið
til frádráttar. Því hafi ríkisskatt-
stjóri hafnað. thordur@frettabladid.is
Tvöfalt meira fer í skattinn
Ríkisskattstjóri stóð að gjaldabreytingum á félög og fyrirtæki upp á sex milljarða króna í fyrra. Upphæðin
er helmingi hærri en árið 2009. Yfirfæranlegt tap til skattafrádráttar var lækkað um 47 milljarða króna.
Skúli EggErt
ÞórðarSon
1. Kaupréttir hlutabréfa þar sem tekist var á um hvernig
bæri að skattleggja hlunnindi sem fólust í samn-
ingum sem stjórnendur félaga fengu vegna starfs-
sambands síns um kaup á hlutabréfum í félögunum
á áhættu félaganna sjálfra.
2. Viðskipti með hlutabréf. Bönkum og fjármálafyrir-
tækjum var samkvæmt dómi gert að skila til ríkis-
skattstjóra upplýsingum um hlutabréfakaup og -sölu
viðskiptavina sinna á nokkurra ára tímabili og voru
þær upplýsingar bornar saman við skattframtöl.
3. Ólögmæt nýting á tapi við samruna. Fyrir liggur
niðurstaða yfirskattanefndar um að eignarhaldsfélag
sem keypt hefur hlutafé í rekstrarfélagi og tapað á
viðskiptunum getur ekki fært tapið með sér yfir í
rekstrarfélagið þótt félögin séu sameinuð.
4. Ólögmæt úthlutun arðs. Arður sem úthlutað var
til hluthafa umfram heimildir eigin fjár, og að öðru
leyti í ósamræmi við reglur laga um einkahlutafélög,
hlutafélög og lög um ársreikninga, var skattlagður hjá
einstaklingum eins og um laun væri að ræða og ekki
fallist á frádrátt hjá lögaðilum.
5. Frestaður söluhagnaður. Fylgst var með að lögaðilar
sem frestuðu skattskyldum söluhagnaði hefðu
endurfjárfest í hlutabréfum eða öðrum eignum eins
og áskilið er í lögum.
6. Staðgreiðsla fjármagnstekjuskatts. Aðallega var litið
til þess hvort endurkrafa lögaðila á útlögðum fjár-
magnstekjuskatti ætti við rök að styðjast.
7. Erlendar tekjur. Árlega berast upplýsingar frá
erlendum skattyfirvöldum um tekjur Íslendinga í
viðkomandi ríkjum. Slíkar upplýsingar voru bornar
saman við tekjur á framtölum.
8. Fasteignaviðskipti. Skoðuð var skattaleg meðferð á
söluhagnaði íbúðarhúsnæðis sem var yfir stærðar-
mörkunum 600 rúmmetrar hjá einstaklingum og
1.200 rúmmetrar hjá hjónum.
9. Skuldsettar yfirtökur. Á árinu fóru nokkur mál í
vinnslu þar sem hafnað var gjaldfærslu á vöxtum á
lánum sem tekin höfðu verið til að fjármagna yfir-
töku á sjálfu félaginu sem gjaldfærði vextina.
10. Aflandsfélög. Skattlagning á tekjum af íslenskum
hlutabréfum.
11. Tilfallandi. Önnur mál ýmiss konar, meðal annars
með afleiddum hætti vegna framangreindra efnis-
flokka.
Málaflokkar sem leiða til gjaldabreytinga
sVeItARstjóRnARMál Athafna-
maðurinn Jón Ólafsson, eigandi
vatnsverksmiðjunnar Icelandic
Water Holdings í Ölfusi, sér
ekki ástæðu fyrir fyrirtækið að
taka þátt í malbikunarkostnaði
bæjarfélagsins heim að verk-
smiðjunni. Bæjarstjórnin hyggst
óska eftir að fyrirtækið taki þátt
í kostnaðinum.
„Af hverju ætti þessi jörð – ein
í Ölfusi – að vera höndluð öðru-
vísi en allar aðrar jarðir þarna,
sem fengu heimreiðina malbik-
aða alveg upp að húsi?“ veltir
Jón fyrir sér.
Bæjarstjórnin
náði samkomu-
lagi við verk-
takann KNH
ehf., sem lagði
malbikið, um
3 , 5 mi l ljóna
greiðslu fyrir
verkið. Upphaf-
lega vildi KNH
ehf. fá fimm
milljónir króna fyrir verkið.
Í fundargerð bæjarstjórnar
Ölfuss frá því milli jóla og
nýárs er sú upphæð sögð óeðli-
lega há og vinnubrögð Ólafs
Áka Ragnarssonar, fyrrverandi
bæjarstjóra, sem tók ákvörð-
unina um að láta malbika heim-
reiðina, sögð vera ámælisverð.
„Við fengum einhvern örlítinn
spotta, þetta var gert frekar illa –
því miður – og ég get ekki séð að
það sé eitthvað sem ætti að koma
til okkar kasta þegar allir aðrir
fengu þetta án greiðslu,“ segir
Jón.
„Ef allir aðrir borga hluta af
sínu þá er ég til í að borga sömu
upphæð, en ég vil ekki að ég sé
höndlaður á annan hátt en aðrir
sveitungar okkar.“ - sh
Jón Ólafsson telur að Ölfusingar eigi að höndla hann eins og aðra sveitunga:
Vill ekki borga dýrt og lélegt malbik
Jón ólafSSon
Milljóna króna
yfirfæranlegu tapi
var hafnað fyrir
árið 2010. Nú er upphæðin
47 milljarðar króna.
UpplýSingar frá ríkiSSkattStJóra
86
sKáK Skáksamband Íslands og
Harpa hafa gert með sér sam-
komulag um að Alþjóðlega
Reykjavíkurskákmótið verði
haldið í Hörpunni næstu þrjú ár.
Ríflega 20 stórmeistarar eru
þegar skráðir til leiks á Reykja-
víkurmótinu 2012, en þekktastur
þeirra er tékkneski stórmeistar-
inn David Navara, en hann hefur
2.712 alþjóðleg skákstig. Þátttaka
er öllum opin.
Reykjavíkurskákmótið er eitt
elsta skákmót í heimi. Í fyrra
tóku þátt um 170 skákmenn víðs
vegar að úr heiminum. Stefna
móts- og styrktaraðila er að
stækka mótið enn á komandi
árum. Er þá sérstaklega horft
til ársins 2014 en þá verður hálf
öld liðin síðan fyrsta mótið var
haldið og hinn goðsagnakenndi
fyrrum heimsmeistari, Mikhaíl
Tal, kom, sá og sigraði með tólf
og hálfum vinningi af þrettán
mögulegum.
Teflt verður í Flóanum svo-
nefnda sem er rýmið fyrir aftan
veitingastaðinn Munnhörpuna.
Skákskýringar verða í sérstöku
rými sem er innangengt úr
skáksal. Stefnt er að því að risa-
skjár verði í veitingarýminu þar
sem skákmenn og áhugafólk geta
sest og skoðað skákirnar á sama
tíma og þær eru tefldar. - shá
Þegar hafa 20 stórmeistarar skráð sig til leiks á Reykjavíkurskákmótið 2012:
Reykjavíkurskákmótið í Hörpu
rEykJavíkUrSkákMótið 2011 Mótin hafa lengi gefið ungum íslenskum skákmönn-
um tækifæri til að reyna sig gegn sterkum alþjóðlegum meisturum. FréTTABlAðið/dAnÍEl
sjáVARútVeGUR Að jafnaði unnu
á milli 20 og 30 manns í Rækju-
vinnslu Ramma hf. á Siglufirði
í fyrra og framleiðsla í takt
við áætlanir, segir á heimasíðu
fyrirtækisins.
Verð á pillaðri rækju hækkaði
nokkuð á árinu og eftirspurn var
góð. Rækjuveiðar að vetri eru
erfiðar og hefur frosið hráefni
frá útlöndum verið notað til þess
að brúa bilið í vinnslunni. Lítið
framboð er af erlendri iðnaðar-
rækju og búast Siglfirðingar
við að einhverjir dagar falli úr
vinnslu í byrjun árs. - shá
Rammi hf. á Siglufirði:
Þrjátíu manns
vinna í rækju
í raMMa rækjan skapar tugi starfa á
Siglufirði. FréTTABlAðið/VilhElM
lÖGReGlUMál Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu dró karlmann
á þrítugsaldri upp úr snjó-
skafli í Háaleitishverfinu um
kvöldmatarleytið í fyrradag.
Manninum varð ekki meint
af dvölinni í skaflinum en eftir
„björgunina“ var hann handtek-
inn. Hann var í annarlegu ástandi
og hafði skömmu áður ekið fólks-
bifreið. Hann var í raun á flótta
undan lögreglu og hafði gripið
til þess ráðs að fela sig í skaflin-
um. Maðurinn hafði þegar verið
sviptur ökuleyfi. - jss
Gripinn í annarlegu ástandi:
Flóttamaður
faldi sig í skafli
BelGíA Veitingamenn í Belgíu saka
IKEA um undirboð og aka í mót-
mælaskyni heimilislausu fólki í
rútum að versluninni og bjóða í
mat. Formaður samtaka veitinga-
manna segir að með slíku verð-
lagi verði að líta á IKEA sem sam-
félagsþjónustu. Ráðstafanirnar
séu í samræmi við það. Samtökin
hafa kært IKEA og telja mat
seldan með tapi til þess að auka
húsgagnasöluna. - ibs
Belgískir veitingamenn ósáttir:
Heimilislausir
borða í IKEA
Líst þér vel á þær breytingar
sem gerðar voru á ríkisstjórn
um áramótin?
Já 29,5%
nEi 70,5%
SpUrning dagSinS í dag:
Ertu ánægð/ur með hvernig
snjómokstur hefur gengið í þínu
nágrenni?
Segðu þína skoðun á visir.is
kJörkaSSinn