Fréttablaðið - 04.01.2012, Síða 4
4. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR4
Guðmundur Andri Thorsson varð 54
ára á gamlársdag en ekki 57 eins og
sagt var frá á Tímamótasíðu Frétta-
blaðsins 31. desember.
Leiðrétt
GenGið 03.01.2012
GjAldmiðlAr kAup sAlA
Heimild: seðlabanki Íslands
217,4665
GenGisvísitala krónunnar
121,69 122,27
189,74 190,66
158,56 159,44
21,324 21,448
20,508 20,628
17,800 17,904
1,5854 1,5946
187,55 188,67
Bandaríkjadalur
sterlingspund
evra
dönsk króna
Norsk króna
sænsk króna
japanskt jen
sdr
AUGLÝSinGADeiLDir FréttABLAðSinS – AUGLÝSinGAStJÓri: jón laufdal jonl@frettabladid.is ALMennAr SÍMi 512-5401: einar davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur steingrímsson hlynurs@365.is, laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLt SÍMi 512-5402: jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, snorri snorrason snorris@365.is SérBLÖð SÍMi 512-5016: Benedikt jónsson benediktj@365.is, sigríður sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is rAðAUGLÝSinGAr /FASteiGnir SÍMi 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar pétursson vip@365.is ÞJÓnUStUAUGLÝSinGAr SÍMi 512-5407: sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYnninGArStJÓri: einar skúlason einar.skulason@365.is
DAnMöRK Stjórnarflokkarnir í
Danmörku vilja koma í veg fyrir
að sígarettur séu sýnilegar í
verslunum. Frumvarp um málið
mun líta dagsins ljós með vorinu.
Þótt útlit sé fyrir að frumvarp-
ið hafi stuðning meirihlutans í
þinginu er ekki búist við því að
það fari í gegn án vandkvæða.
Stjórnarandstaðan og verslunar-
rekendur hafa þegar hafið bar-
áttu gegn frumvarpinu og við-
skiptaráð segir breytingarnar
geta kostað verslunarmenn allt
að 500 milljónir danskra króna.
Stjórnarflokkarnir vísa hins
vegar til Noregs, þar sem svipuð
lög voru tekin í gildi árið 2009.
Reykingar minnkuðu í kjölfarið
um 4,8 prósent. Norðmenn hækk-
uðu verð á sígarettum talsvert á
sama tíma. Breytingarnar höfðu
ekki áhrif á þá sem þegar reyktu
en mun færri unglingar hófu
reykingar.
Danir hafa þegar ákveð-
ið hækkanir á sígarettuverði.
Hækkunin er hóflegri en annars
staðar, þrjár danskar krónur á
pakkann, eða sem samsvarar 64
íslenskum krónum.
- þeb
stjórnarflokkarnir í Danmörku undirbúa frumvarp um sýnileika sígaretta í búðum:
Fara að fordæmi Norðmanna
SÍGArettUr Búast má við átökum um
sýnileika sígaretta í danmörku á næst-
unni.
HeIlbRIGÐIsMál Sú hugmynd að
taka upp auðkenni í ökuskírteini
vilji handhafi þess vera líffæra-
gjafi er allrar skoðunar virði, að
mati Ögmundar Jónassonar inn-
anríkisráðherra.
„Ef vilji viðkomandi einstak-
lings er í þessa átt þá er fullkomn-
lega eðlilegt að hann sé sýnilegur
á örlagastundu,“ segir hann.
Margrét S. Sölvadóttir, fast-
eignasali og kennari í Seattle
í Bandaríkjunum, skrifaði 28.
desember grein í blaðið og vakti
athygli á að þessi háttur væri
meðal annars hafður á í Banda-
ríkjunum. - óká
skoða má nýjar merkingar:
Vilji fólks sjáist
á örlagastundu
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Glæný
Hrogn
og
Lifur
Glæný Línuýsa
löGReGlUMál Rannsókn lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu á
nauðgunarmáli, þar sem átján
ára stúlka kærði Egil Einarsson
og unnustu hans, er á lokastigi.
Þetta sagði Björgvin
Björg vinsson, yfirmaður kyn-
ferðisbrotadeildar LRH, við
Fréttablaðið í gær.
Nauðgunin er sögð hafa átt sér
stað á heimili Egils aðfaranótt
föstudagsins 25. nóvember síðast-
liðins, eftir gleðskap sem fólkið
hafði sótt. Málið var kært til lög-
reglu 1. desember. Hin kærðu og
stúlkan hafa gefið skýrslur hjá
lögreglu, auk þess sem vitni hafa
verið yfirheyrð. - jss
kæran á egil og unnustu:
Rannsókn á
nauðgunarmáli
er á lokastigi
VísInDI Hópur franskra vísinda-
manna hefur hannað mælitæki
sem fest er í veðurbelgi og gerir
notendum kleift að fylgjast með
hreyfingum og eðli öskuskýja.
Tæknina prófaði hópurinn á
Íslandi síðasta sumar en hana er
einnig hægt að nota til að fylgj-
ast með annars konar ögnum í
andrúmsloftinu.
Mælitækin sem um ræðir
geta sent frá sér gögn úr allt að
30 kílómetra hæð. Svipuð tæki
hafa verið notuð í áratugi en
nýja mælitækið er nákvæmara
og einnig talsvert léttara en for-
verar þess. Er það svo létt að
ekki þarf að sækja um leyfi til að
koma því í loftið en víðast hvar
þarf að sækja um leyfi áður en
tæki þyngri en þrjú kíló eru sett
upp í loft vegna slysahættu. - mþl
Greinir agnir í andrúmslofti:
Nýtt mælitæki
prófað á Íslandi
ÖSKUSKÝ Nýja mælitækið gerir vísinda-
mönnum kleift að fylgjast með hreyf-
ingum öskuskýja af meiri nákvæmni en
áður. FréTTABlAðið/VilHelm
sVíþjóÐ Á rúmum mánuði hafa
fimm verið skotnir til bana í
Malmö í Svíþjóð. Lögregla segir
fjölda ólöglegra vopna eina af
ástæðunum.
Einn yfirmanna lögreglunnar,
Börje Sjöholm, segir dómstóla
líta of mildum augum á ólöglega
vopnaeign. Í Danmörku sé refs-
ing þyngd um 50 prósent finnist
vopnið hjá glæpagengi.
Fimmta morðið var framið í
gær þegar karlmaður var skotinn
úti á götu. Morðmálin fimm eru
öll óleyst. -ibs
Hrina morða í Malmö:
Fimm skotnir á
einum mánuði
Ungur ók á ljósastaur
Bíll valt við gatnamót laugavegs og
kringlumýrarbrautar í fyrrinótt. Við
stýrið var ungur piltur sem ók á ljósa-
staur með fyrrgreindum afleiðingum.
Bíllinn var fjarlægður af vettvangi
með dráttarbíl. meiðsli ökumannsins
virtust minni háttar.
LÖGreGLUMáL
MenntAMál Katrín Jakobsdóttir,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, hyggst kynna nýtt bráða-
birgðafyrirkomulag við innritun
í framhaldsskóla í febrúar. Strax
í kjölfar þess verður vinna hafin
við að endurskoða fyrirkomulagið
til frambúðar.
Ástæðan er álit sem umboðs-
maður Alþingis birti í gær, þar
sem komist er að þeirri niður-
stöðu að ekki hafi verið lagastoð
fyrir þeirri ákvörðun að taka 45
prósent framhaldsskólaplássa
frá fyrir forgangshópa, sem
jafnan komu úr grunnskólum í
grenndinni.
Tveir tilvonandi útskriftar-
nemar úr grunnskóla kvörtuðu
til umboðsmanns vegna ákvörð-
unarinnar. Þeir töldu að með
henni væri nemendum mismunað
eftir búsetu, enda stæði ekki sams
konar nám til boða í öllum fram-
haldsskólum og því væri frelsi
þeirra til náms að eigin vali skert.
Umboðsmaður fellst að miklu
leyti á umkvartanirnar. Ákvörð-
unin sé íþyngjandi fyrir nema,
jafnvel þótt menntamálaráðuneyt-
ið hafi borið því við að hún hafi
verið nauðsynleg til að unnt væri
að tryggja öllum skólavist, lögum
samkvæmt.
Vegna þess að ákvörðunin tak-
markaði aðgang borgaranna að
þjónustu hins opinbera hafi hún
þurft að byggja á mjög skýrri
lagastoð. Svo hafi hins vegar ekki
verið.
Þá gagnrýnir umboðsmaður
einnig að fyrirkomulagið hafi
ekki verið kynnt fyrr en skömmu
áður en inn-
ritunin hófst
vor ið 2 010 .
„Þessar nýju
reglur gátu því
að ýmsu leyti
raskað náms-
áformum sem
uppi voru hjá
þeim sem ætl-
uðu sér að
stunda nám í
framhaldsskóla,“ segir í álitinu.
„Við vorum bara í góðri trú og
töldum okkur hafa fullnægjandi
lagastoð með því að setja þetta
inn í samninga við skólana, en við
tökum það auðvitað alvarlega ef
hann kemst að annarri niðurstöðu
og munum þess vegna endurskoða
þetta fyrirkomulag,“ segir Katrín
Jakobsdóttir.
Stjórnvöld hafi tekið á sig nýjar
skyldur með lagabreytingu árið
2008, sem kvað á um rétt allra
undir átján ára aldri til fram-
haldsmenntunar. „Innritun 2009
gekk ekki sem skyldi, var ekki
lokið fyrr en skólar voru að hefj-
ast og það var ákveðið kaos.“ Því
hafi hverfaskiptingunni verið
komið á.
„Það liggur fyrir að við munum
þurfa að hafa hraðar hendur fyrir
innritun núna í vor. Við viljum
ekki að það sé nein lagaleg óvissa
þannig að við munum fara fyrst
yfir fyrirkomulagið núna í vor og
síðan horfa til lengri tíma,“ segir
hún. Bráðabirgðafyrirkomulagið
verði vonandi tilbúið í febrúar.
Í álitinu er ekki tekin afstaða til
stöðu og réttar einstakra nemenda
gagnvart ríkinu og segir umboðs-
maður að það verði að vera verk-
efni dómstóla. stigur@frettabladid.is
Hverfaskipting verður
endurskoðuð í snatri
Menntamálaráðherra mun endurskoða fyrirkomulag við innritun í framhalds-
skóla í kjölfar álits frá umboðsmanni Alþingis. Bráðabirgðafyrirkomulag kynnt
í febrúar. Umboðsmaður telur að ólöglega hafi verið staðið að hverfaskiptingu.
MenntASKÓLinn við HAMrAHLÍð sumum hefur þótt ósanngjarnt að ekki sé alfarið
horft til námsárangurs við val inn í vinsæla framhaldsskóla. FréTTABlAðið/pjeTur
KAtrÍn
JAKoBSDÓttir
VeÐURsPá
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
kaupmannahöfn
las palmas
london
mallorca
New York
Orlando
Ósló
parís
san Francisco
stokkhólmur
HeiMUrinn
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
9°
7°
6°
7°
4°
5°
5°
22°
8°
18°
-1°
13°
2°
9°
14°
4°á MorGUn
Vaxandi sA-átt
um kvöldið.
FÖStUDAGUr
Fremur hægur vindur
en stíf V-átt syðst.
-2
-6
-6
-6
-3
-3
2
-4
-5
0
-10
4
3
7
8
13
8
15
6
8
3
5
-2
-2
-4
-4
-6 3
4
2
0
-1
Gott UM StUnD
á MorGUn en
annað kvöld
gengur í allhvassa
eða hvassa suð-
austanátt með úr-
komu og hláku um
sunnan- og vestan-
vert landið. Vindur
verður orðinn víða
nokkuð hægur á
föstudag en þá
verður úrkoma um
allt land.
elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður