Fréttablaðið - 04.01.2012, Side 20
Síðar voru þau Helga Vilborg
og Kristján beðin um að halda til
Voító-dalsins í suðvesturhluta Eþí-
ópíu og settust þau að hjá Tsemai-
fólkinu í þorpinu Gisma. Þar
byggði föðurbróðir Helgu Vilborg-
ar upp kristniboðsstöð fyrir tutt-
ugu árum ásamt heilsugæslu og
grunnskóla. „Kirkjan á staðnum
er ung og var þörf á stuðningi,“
segir Helga Vilborg. „Okkar hlut-
verk var aðallega að vera til stað-
ar og sinnti Kristján meðal ann-
ars sjúkraflutningum, predikaði
í kirkjunni og kenndi börnunum
fótbolta og aðrar íþróttir. Við sett-
um meira að segja upp litla ólymp-
íuleika,“ minnist Helga Vilborg.
Hún leiddi sunnudagaskóla og
barnastarf þar sem börnin fengu
meðal annars að lita en það höfðu
þau aldrei gert áður. „Þá sóttum
við um styrk til að kaupa vatns-
dælur og kenndum heimamönnum
að dæla vatni úr ánni sem rennur
í gegnum dalinn en þar er hitinn
jafnan í kringum 38-42 stig og oft
miklir þurrkar.“
En hvernig er að ala upp börn
í Eþíópíu? „Það er frábært og á
meðan við bjuggum í höfuðborg-
inni vorum við svo heppin að hafa
bæði húshjálp og barnapíu sem
urðu strax hluti af fjölskyldunni. Í
Gisma lærðu börnin að reka geit-
urnar, mjólka kýrnar og smíða
boga og uppskáru allt aðra sýn á
heiminn en jafnaldrar þeirra hér
heima hafa. Vinir þeirra bjuggu í
strákofum og lifðu afar einföldu
lífi. Þau lærðu fljótt að ekkert
er sjálfsagt enda ekki einu sinni
víst að jafnaldrar þeirra kæmust
á legg. Við foreldrarnir vorum
vissulega stundum áhyggjufullir
enda þekktum við hætturnar.
Þarna geisa sjúkdómar auk þess
sem ýmis skrið- og skordýr eru
á ferð. Á Íslandi eru hins vegar
aðrar hættur og ég lít á þenn-
an tíma mjög jákvæðum augum.
Sjóndeildarhringurinn er víðari
og börnin sjá hlutina í öðru ljósi.
Þau urðu vitni að mikilli fátækt og
þó ekki hafi geisað hungursneyð
þá var oft mikill matarskortur og
vinir þeirra voru margir hverjir
vannærðir. Við lærðum að það er
ekki hægt að bjarga öllum en það
er vissulega hægt að hjálpa.“
Fjölskyldan kom heim fyrir einu
og hálfu ári og hér fæddist fimmta
barnið. En getið þið hugsað ykkur
að fara aftur? „Já og börnin tala
enn um Eþíópíu sem heima. Við
vildum hins vegar að þau myndu
festa einhverjar rætur á Íslandi.
Þau hafa þó góða aðlögunarhæfni
og þetta er vel hægt,“ segir Helga
Vilborg sem mælir eindregið með
kristniboðsstarfi. „Það hafa allir
gott af því að fara út fyrir kassann
og þessi vestræna kreppa blasir
öðruvísi við manni. Áhugasömum
er bent á heimasíðu Kristniboðs-
sambandsins www.sik.is.
vera@frettabladid.is
Margrét Helga, elsta dóttir Kristjáns og
Helgu, söng í kirkjukórnum í Gisma.
Kristján, eiginmaður Helgu Vilborgar, kenndi börnunum í Gisma fótbolta. Hér er
hann spilaður í 40 gráðu hita.
Davíð Ómar með vinum sínum. Setota, (til vinstri) átti að fórna til að blíðka anda
forfeðra Tsemai fólksins í Gisma. Kristin fjölskylda í þorpinu tók hann hins vegar að
sér og elur upp sem eigið barn. Nafnið Setota þýðir gjöf á amharísku. Fjölskyldan
óttast ekki andana því hún trúir á Jesú og telur hann öllu meiri.
Framhald af forsíðu
Flugrútan býður nú upp á þá þjón-
ustu að farþegar geta tengst þráðlausu
neti um borð. Aðgangurinn og niðurhal
er farþegunum að kostnaðarlausu.
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
ÚTSALAN
er hafin
15-50% afsláttur
Barnafataverslunin Róló Glæsibæ.
Sími 8948060 • www.rolo.is • Facebook
Útsalan hefst í dag kl: 12:00
30-70% afsláttur.
Laugaveg 53 • S. 552 3737 • Opið laugardag 10-10
Nýjar vörur,
haust 06
Skólaföt, náttföt, undirföt.
Sængurgjafir í miklu úrvali.
5 ára afmæl
10% afsláttur
föstudag og laugardag.
Laugavegi 53 • s. 552 3737
Opið mánudag til föstudag 10-18, laugardag 10-17
ÚTSALAN HAFIN
40-60%
af allri útsöluvöru
10% afsl. af annari vöru
Gleðilegt nýtt
ár