Fréttablaðið - 04.01.2012, Qupperneq 26
4. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR22
Bakþankar
ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
n Handan við hornið Eftir Tony Lopes
n Pondus Eftir Frode Overli
n Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
n Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁrÉTT
2. jurtatrefjar, 6. ógrynni, 8. svif, 9.
frjó, 11. tveir eins, 12. róun, 14. ríkis,
16. í röð, 17. umfram, 18. for, 20.
skóli, 21. skjótur.
LÓÐrÉTT
1. hróss, 3. í röð, 4. við og við, 5. efni,
7. lausn, 10. iðka, 13. kvk nafn, 15.
hrumur, 16. flan, 19. guð.
LaUSn
LÁrÉTT: 2. bast, 6. of, 8. áta, 9. fræ,
11. uu, 12. sefun, 14. lands, 16. rs, 17.
auk, 18. aur, 20. ma, 21. snar.
LÓÐrÉTT: 1. lofs, 3. aá, 4. stundum,
5. tau, 7. frelsun, 10. æfa, 13. una, 15.
skar, 16. ras, 19. ra.
Ekki
missa af
þessu!!
Partí í
sjöunda
himni!!
Partí í kvöld í
sjöunda himni...
Af hverju náðum við tvö
ekki saman Jói? Við áttum
alveg séns! Manstu
þegar þú vaknaðir
í fanginu á mér...
Hvað get ég sagt Járnfríður?
Þegar ég lá þar hlustaði
ég á hjartastrengina
mína.
Það var erfið uppgötvun
og sár, mér þykir það
leitt Járnfríður... en
þeir léku ekki
okkar lag!
Hann kann
þetta!
Þess vegna hljóp ég
öskrandi út, ég var
svo sorgmæddur!
Ó, Jói!
Palli, ég hætti í miðri
verslunarferð, aflýsti klipp-
ingunni og sleppti því að
sækja föt úr hreinsun til þess
að koma og hleypa þér inn.
En hvar ertu?
Ég fór yfir til
Stanislaws.
Má ég borða
hérna?
Við strákarnir fundum upp nýjan
leik sem heitir sláturbolti.
Hann er blanda af fótbolta,
ruðningi, júdó og glímu.
Mér finnst þetta ekki
hljóma skemmtilega.
Maður spilar ekki sláturbolta
til að skemmta sér, maður
spilar til að lifa af!
Sviptingar urðu í Stjórnarráðinu um ára-mótin og stokkað var upp í skipan ráðu-
neyta. Sjálfsagt eru þetta heilmikil tíðindi
en einhvern veginn kippti ég mér ekkert
upp við þetta. Forsetinn tilkynnti að hann
ætlaði ekki að bjóða sig fram aftur, en ég
kippti mér ekki heldur upp við það. Nennti
ekki að taka þátt í vangaveltum um hver
yrði næsti forseti né hvort von væri á
„ferskari“ vindum í stjórnmálunum með
nýjum framboðum. Hef hálfpartinn litla
trú á stjórnmálaafli sem hefur hvorki
stefnuskrá né nafn þegar það stígur
fram.
SÁ reyndar í fréttum í gær
að nýtt „þverpólitískt afl“ væri
í smíðum. En þá fór ég bara að
velta fyrir mér í hverra umboði
þingmaður starfar á þingi ef
hann segir sig úr flokknum sem
fólkið kaus. Og hvernig það
snúi að kjósendum ef
hann stofnar svo nýtt
stjórnmálaafl í fram-
haldinu, meðan hann
situr á þingi!
annarS grunar mig
hverjir munu taka við
stjórnartaumunum þegar
kosið verður á ný og að
þar muni gamalkunnug
andlit fara á stjá. Ég las það einmitt fyrir
stuttu hér í blaðinu að samkvæmt skoð-
anakönnunum treysti meirihluti þjóðar-
innar Sjálfstæðisflokknum best til að fara
með völdin, eins öfugsnúið og það nú er.
Sennilega hittu höfundar áramótaskaup-
sins naglann á höfuðið, þetta hljóta að vera
„djöfulsins snillingar“.
ÁHUGi minn á því hverjir stýra þjóðar-
skútunni hefur minnkað, ég viðurkenni
það bara. Ég veit svo sem ekki hverju ég
bjóst við af stjórninni sem tók við rústun-
um en ýmiss konar skattar, álögur og gjöld
hafa orðið til þess að það hefur dregið
niður í mér. Það er varla að ég geti æst mig
yfir Landsdómsmálinu, hvað þá annað,
enda tilgangurinn enginn að sækja aðeins
einn mann til saka. Ég held að ég hafi
bara ekki trú á nokkrum stjórnmálamanni
lengur, sama úr hvaða röðum hann kemur.
Hversdagslegt amstur hefur tekið yfir og
hver hugsar um sitt.
MUna eftir ullarnærskyrtunum á krakk-
ana svo þau kvefist ekki í þessum kulda,
muna eftir lýsinu til að hrista úr mér flens-
una og muna eftir að setja snjóblautu vett-
lingana á ofninn að kveldi svo allir eigi
þurrt daginn eftir. Muna eftir að henda í
vél, hendast í búð, henda ruslinu. Meðan ég
baksa þetta hugsa ég ekkert um það hver
verður næsti bóndi á Bessastöðum.
Amstrið tekur yfir
Sérblað um heilsu
kemur út þann 7. janúar.
BÓKIÐ AUGLÝSINGAR
TÍMANLEGA:
BENEDIKT FREYR JÓNSSON
benediktj@365.is
S.512 5411
HEILSUM
NÝJU ÁRI!
alla sunnudaga
klukkan 16.
Njótið vel
Hemmi Gunn
– og svaraðu nú!
Fjölbreyttur og fjörugur þáttur