Fréttablaðið - 04.01.2012, Qupperneq 28
4. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR24 24
menning@frettabladid.is
Kyrralíf og Pleaser Tvær nýjar sýningar verða opnaðar í Hafnarborg laugardaginn 7. janúar kl. 15. Í meginsal
safnsins er sýningin Kyrralíf þar sem sýnd eru málverk og teikningar af uppstillingum, meðal annars margar af perlum íslenskrar
myndlistar. Í Sverrissal er sýningin Pleaser þar sem sýnd eru ný og nýleg verk eftir Hörpu Björnsdóttur.
Tónlist HH
sönglög Vestur-íslendinga
Diddú og drengirnir. Stef.
Vestur-Íslendingar lögðu margir
fyrir sig tónlist. Lítið hefur farið
fyrir verkum þessara tónskálda
í tónlistarlífinu hér, það er helst
að maður heyri af og til sönglög
Björgvins Guðmundssonar.
Nú hefur tónlistarhópurinn
Diddú og drengirnir tekið upp eins
konar þverskurð af þessari tónlist.
Hún er eftir Gunnstein Eyjólfsson,
Steingrím K. Hall, Sigurð Helga-
son, Jón Friðfinnsson, Sigurð Bald-
vinsson og Elmu I. Gíslason, auk
Björgvins.
Drengirnir hennar Diddúar eru
blástursleikarar, og hefur hóp-
urinn haldið árlega jólatónleika
um nokkurt skeið. Þeir eru allir
meðlimir í Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Tónlistarflutningurinn á
geisladiskinum er líka í fremstu
röð, hreinn og samtaka. Og Diddú
syngur eins og engill.
Góðu fréttirnar eru þær að
geisladiskurinn er áhugaverð
heimild um tónlist Íslendinganna
sem fluttu búferlum vestur um haf
í kringum aldamótin 1900.
Slæmu fréttirnar eru að velflest
lögin á geisladiskinum eru einmitt
það: slæm. Þau eru óttalegur leir-
burður. Skáldskapurinn er lítið
annað en klisjur frá meginlandi
Evrópu. Það er ekki eitt einasta lag
á geisladiskinum sem mann lang-
ar til að heyra oftar en einu sinni.
Sennilega er það einmitt ástæð-
an fyrir því að maður hefur lítið
heyrt af þessari tónlist fyrr en nú.
Jónas sen
Niðurstaða: Sagnfræðilegt gildi
geisladisksins er mikið, en skemmti-
legur er hann ekki.
Góður flutningur,
en fátt annað
DiDDú og DreNgirNir „Það er ekki eitt einasta lag á geisladiskinum sem mann
langar til að heyra oftar en einu sinni,” segir í dóminum.
Þrjú íslensk verk verða
sýnd á kynningu á íslensk-
um sviðslistum í New York
um næstu helgi. Leiklistar-
samband Íslands stendur
fyrir kynningunni í sam-
starfi við hin Norðurlöndin.
„Þetta er mjög
spennandi tæki-
færi sem er
gaman að geta
nýtt í svona
ríku og góðu
samstarfi við
félaga okkar á
Norðurlöndun-
um,“ segir Ása
Richardsdótt-
ir, forseti Leik-
listarsambands
Íslands (LSÍ),
heildarsamtaka sviðslista hér á
landi. Sambandið stendur fyrir
kynningu á íslenskum sviðslistum
í New York um næstu helgi, dag-
ana 7. til 10. janúar.
Í New York verða þrjú íslensk
sviðsverk sýnd og íslenskar sviðs-
listir í heild kynntar á árlegu
þingi APAP (Association of Per-
forming Arts Presenters), sem
er hið stærsta sinnar tegundar
sem kaupendur sviðslistasýninga
sækja. „Von er á um 2.000 þátt-
takendum á þingið, flestum frá
Bandaríkjunum og Kanada, en
hin síðari ár eru kaupendur frá
Asíu, Suður-Ameríku, Evrópu
og víðar farnir að nýta sér þetta
þing. Þarna kemur fólk saman og
spjallar, sækir námskeið og sýn-
ingarviðburði víðs vegar um borg-
ina. Margir líta á þingið sem sinn
markað, þarna kaupa meðal ann-
arra leikhúss- og hátíðastjórnend-
ur sýningar fyrir næsta leikár og
sumir klára hreinlega skipulagn-
ingu heilu leikáranna á þessum
fjórum dögum í New York,“ segir
Ása.
Verkefnið markar upphaf nor-
ræna samstarfsverkefnisins
Nordics On Stage, sem stendur
yfir allt árið 2012 og inniheldur
meðal annars frekari kynningar
á sviðslistum frá Norðurlöndunum
í Þýskalandi, Danmörku, Kóreu,
Japan og fleiri löndum.
„Í raun höfðu félagar okkar á
Norðurlöndunum undirbúið jarð-
veginn, búið til heildarhugmynd
og safnað fé og vildu, í anda nor-
ræns systralags, endilega að
Ísland yrði með og þótti mikill
fengur í því,“ segir Ása og bætir
við að vissulega sé Norður-Amer-
íkumarkaðurinn risavaxinn. „Þótt
ýmis dæmi séu um að sviðslista-
menn frá Norðurlöndunum hafi
sótt á þennan markað með góðum
árangri er hann að vissu leyti
óplægður akur. Við höfum trú á
því að þetta norræna kynningar-
samstarf skili árangri, að saman
séum við sterkari en ella. Þetta
er tilraun, en þaulhugsuð tilraun
engu að síður.“
Fulltrúar Íslands í New York
verða Íslenski dansflokkurinn
með verkið Kvart eftir norska
danshöfundinn Jo Strömgren, sem
valið var úr 35 norrænum verkum,
Erna Ómarsdóttir, sem sýnir tón-
leikaverkið Lazyblood, og fram-
andverkaflokkurinn Kviss búmm
bang með verkið Safari. Vefsíðan
ice-storm-showcase.com hefur
verið opnuð utan um verkefnið
og eru sýningarnar í New York
haldnar í samstarfi við Cinars,
umfangs- og reynslumikið kynn-
ingarfyrirtæki fyrir kanadískar
sviðslistir. kjartan@frettabladid.is
Mikill fengur í þátttöku Íslands í New York
ása
richarDsDóttir
fréttablaðið/gva
KVart Íslenski dansflokkurinn sýnir verk norska danshöfundarins Jo Strömgren í
tvígang í gerald W. lynch-leikhúsinu í New York.
SOHO/MARKET
Á FACEBOOK
Grensásvegur 8, sími 553 7300
Opið mán–fös 12–18 og laugd 12–17
ÚTSALAN
HEFST Í DAG KL. 12
30 –50%
afsláttur af skarti og töskum
40 –70%
afsláttur af öllum fatnaði