Fréttablaðið - 04.01.2012, Side 38

Fréttablaðið - 04.01.2012, Side 38
4. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR34MorgunMaturinn „Það má segja að ég sé að skrifa mig frá starfinu,“ segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn. Eins og fram hefur komið hætt- ir Geir Jón í lögreglunni í vor þegar hann fer á eftirlaun og flyt- ur til Vestmannaeyja. Fram að því hefur honum verið falið að sitja við skriftir meðfram öðrum störfum. „Ég á að ná á einn stað þeirri vitneskju sem er að finna innan lögreglunnar svo hún tapist ekki. Það er fljótt að fenna yfir.“ Geir Jón játar að búsáhalda- byltingin verði áberandi í skrifum hans, enda sé hún stærsta verk- efni sem lögregla á Íslandi hafi fengist við. „Ég skrifa um þessa stærri atburði út frá hlið lögregl- unnar. Hvað bjó að baki, hvers vegna, hvernig og allt það. Þann- ig að þegar sagnfræðingar fram- tíðarinnar fara að skoða þessa atburði þá verði til okkar hlið á málum.“ Aðspurður segist Geir Jón ekki vita hvað Stefán Eiríksson lög- reglustjóri ætli sér að gera með þessi skrif. Fólk þurfi alla vega ekki að búast við honum í jóla- bókaflóðinu þetta árið. „Ég er ekki rithöfundur, mitt er bara að koma þessari vitneskju í gott form.“ Yfirlögregluþjónninn góðkunni kveðst að lokum munu ganga sáttur frá borði þegar hann hætt- ir í vor. „Þegar maður er búinn að vera lengi í eldlínunni þá vill maður fara að huga að öðru. Maður á helst að gera hlutina meðan maður getur, ekki bíða eftir að missa heilsuna,“ segir Geir Jón sem er rétt sextugur. En fyrst þú ert farinn að rifja upp það sem liðið er, ertu ekki far- inn að huga að ævisögu þinni? „Það hefur aðeins verið ýtt við mér með það en ég vil klára mitt starf fyrst. Svo er maður kannski aðeins of ungur fyrir ævisögu.“ - hdm Geir Jón skrifar um búsáhaldabyltinguna „Manni finnst ótrúlegt þegar einhver velur sér hljómsveitarnafn og prófar ekki að gúggla það. Það tekur ekki langan tíma,“ segir Birgir Örn Steinarsson, eða Biggi Maus. Hollensk indípopphljómsveit með sama nafn og hin íslenska Maus hefur kveðið sér til hljóðs að undan förnu við dræmar undirtektir Bigga og félaga. Eru þeir að stela nafninu ykkar? „Annaðhvort eru þeir að stela því eða hafa skírt hljómsveitina án þess að vita af okkur,“ segir Biggi, sem reyndi að hafa samband við hina hollensku Maus á Facebook-síðu hennar. „Ég setti inn á síðuna þeirra tengil á heima- síðuna okkar og Wikipedia og þeir strokuðu það út eftir tvær mínútur. Það er eins og þeir hafi ekkert viljað vita af þessu,“ segir hann og hlær. „Þeir eru líka skírðir eftir sömu myndasögu og við,“ bætir hann við og á við Pulitzer-verðlaunaða myndasögu Arts Spiegelman. „Þetta er leiðinlegt því við erum ekkert hættir. Við höfum ekki gefið út dánartilkynninguna. Við erum búnir að gefa út plötur úti um allan heim í gegnum iTunes og í Þýskalandi. Núna eru þeir að spila mikið og eru komnir á þennan tónlistarhátíðar- rúnt. Það eru örugglega einhverjir sem halda að þeir séu að fara að sjá okkur,“ segir Biggi en Maus, sem gaf síðast út hljóðversplötu fyrir níu árum, átti eitt sinn vinsæl lög í Finnlandi og spilaði víða erlendis. Fari svo að hin hollenska Maus haldi áfram að hunsa Bigga segir hann koma til greina að fara með málið lengra. „Við eigum einkarétt á nafninu í Evrópu þannig að við gætum verið ógeðslega leiðin- legir og þvingað þá til að breyta um nafn. En mann langar það ekkert.“ - fb Biggi ósáttur við hollenska Maus Kveður sáttur Geir Jón Þórisson fékk þau skilaboð að hann mætti ekki taka vitið með sér þegar hann hættir í lög- reglunni. Fréttablaðið/SteFán á hollensKan nafna Hollensk hljómsveit ber sama nafn og hin íslenska Maus, sem hefur legið í dvala undanfarin ár. Leikkonan Michaela Conlin eyddi áramótunum á Íslandi, eins og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Conlin sækir landið heim en leikkonan og fyrrum knatt- spyrnuhetjan Arnar Gunnlaugs- son felldu hugi saman þegar leikkonan kom hingað fyrst í heimsókn í nóvember. Það var engin önnur er mágkona Arnars, Ásdís Rán Gunnarsdóttir, sem á heiðurinn að sambandinu. „Jú, það passar og þau hafa verið að hittast í nokkrar vikur,“ segir Ásdís Rán en Arnar og Conlin sáust saman við ýmis tækifæri yfir hátíðarnar. Ásdís Rán og Conlin eiga sam- eiginlega vini í Los Angeles þar sem leikkonan býr og starfar en Ásdís aðstoðaði Conlin þegar hún kom fyrst til landsins í haust. „Það er oft haft samband við mig þegar verið er að fara að heim- sækja Ísland og ég beðin um að mæla með hvað er best að gera og gerði ég það fyrir Michaelu,“ segir Ásdís, sem er stödd hér á landi í stuttu jólafríi en heldur aftur til Búlgaríu eftir nokkra daga. Conlin, sem á ættir sínar að rekja til Kína og Írlands, er hvað fræg- ust fyrir hlutverk sitt sem meina- tæknirinn Angela Montenegro í sjónvarpsþáttaröðinni Bones sem sýnd er á Stöð 2. Conlin hefur leikið í þáttunum frá því að þeir byrjuðu árið 2005. Einnig hefur hún farið með hlutverk í kvikmyndunum The Lincoln Lawyer, Enchanted og Open Window. Arnar Gunnlaugs er hins vegar þekktur fyrir færni sína á fótboltavellinum og sem einn af eigendum umboðsskrifstofunnar Total Football. Parið var einmitt saman í jóla- boði skrifstofunnar milli jóla og nýárs þar sem til dæmis Eiður Smári Guðjohnsen, Ásdís Rán og eiginmaður hennar Garðar Gunn- laugsson voru einnig gestir. Arnar vildi ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið í gær. alfrun@frettabladid.is áSdíS rán: Þau hafa verið að hittast í nokkrar vikur Arnar Gunnlaugs kolféll fyrir bandarískri leikkonu nýtt par arnar Gunnlaugs og leikkonan Michaela Conlin hafa verið saman í nokkra mánuði en það var fyrir tilstilli ásdísar ránar að parið kynntist. „Það er stór og feitur latté kaffibolli.“ Vera Sölvadóttir, kvikmyndagerðarmaður. STEINI PÉSI &GAUR Á TROMMU Laugardagur 07.01.2012 22:30 Föstudagur 13.01.2012 22:30 Föstudagur 27.01.2012 22:30 Miðasala á gamlabio.i s og midi.is. Símanúmer í miðasölu 563 4000. Opið mán.-mið. 14:00 -18:00 og m.-sun. 14:00-20: 00. MIÐAR Á 2012 SÝNINGAR KOMNIR Í SÖLU!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.