Fréttablaðið - 07.12.2015, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 07.12.2015, Blaðsíða 11
BOSCH Matvinnsluvél MCM 3110W 800 W. Tvær hraðastillingar og ein púlsstilling. Fullt verð: 14.900 kr. Jólaverð: 11.900 kr. Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is *fæst hjá: Jólaverð:BOSCH Blandari MMB 42G0B (svartur) Einstaklega hljóðlátur. 700 W. „Thermosafe“ hágæða-gler sem þolir heita og kalda drykki. Fullt verð: 17.900 kr. 13.900kr. Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is *fæst hjá: BOSCH Töfrasproti MSM 67170 Kraftmikill, 750 W. Hljóðlátur og laus við titring. Fullt verð: 14.900 kr. Jólaverð: 11.900kr. Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is *fæst hjá: Jólin nálgast. Dásamlegir dýrgripir í jólapakkann. Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is Hlíðasmára 3 . Sími 520 3090 www.bosch.is Gigaset Símtæki A510 Númeraminni fyrir 150 nöfn og símanúmer. Langur taltími, mikil hljómgæði. Fullt verð: 8.970 kr. Jólaverð: 7.625 Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is *fæst hjá: kr. Rommelsbacher Vöfflujárn WA 1000/E 1000 W. Úr burstuðu stáli. Viðloðunarfrítt yfirborð. Fullt verð: 14.700 kr. Jólaverð: 11.900kr. Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is *fæst hjá: BOSCH Hraðsuðukanna TWK 7809 Koparlituð. Tekur 1,7 lítra. 2200 W. Fullt verð: 16.900 kr. Jólaverð: 12.900 kr. Camry Eldhúsvogir CR 3151O Vigtar allt að 5 kg með 1 g nákvæmni. Fullt verð: 2.900 kr. Jólaverð: 2.300 kr. Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is *fæst hjá: ProfiCook Pottasett KTS 1051 Alls fjórir pottar, þar af þrír með glerloki. Fullt verð: 22.900 kr. Jólaverð: 17.900 kr. Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is *fæst hjá: Nóatúni 4 Sími 520 3000 www.sminor.is *fæst hjá: Viðskipti Sænska fyrirtækið IVF Sverige ætlar að opna nýja tækni­ frjóvgunardeild í Reykjavík. Deildin, sem mun heita IVF klín­ íkin Reykjavík, verður rekin í sam­ starfi við fæðingar­ og kvensjúk­ dómalæknana Snorra Einarsson og Ingunni Jónsdóttur, sem hafa bæði lært fagið og starfað við það í Svíþjóð, og Steinunni Þorsteins­ dóttur lífeindafræðing. Samhliða opnun nýju deildarinnar kaupir IVF Sverige ART Medica, sem er eina starfandi tæknifrjóvgunar­ deildin á Íslandi, og leggur niður starfsemina þar. „Við ætlum að reyna að opna um miðjan febrúar,“ segir Snorri Ein­ arsson í samtali við Fréttablaðið. Snorri verður yfirlæknir á nýju deildinni hér á Íslandi. Hann segir að IVF Sverige sé stærsti aðilinn í þjónustu og meðferð ófrjósemi á Norðurlöndunum og reki samtals átta deildir eftir opnunina á Íslandi. Snorri segir að stór hluti fólksins sem vann áður hjá Art Medica komi til með að starfa hjá nýju tækni­ frjóvgunardeildinni. „Við komum til með að taka meginþorra starfs­ fólksins sem er hér og nýta þá reynslu sem fyrir er og byggja ofan á það,“ segir hann. Að auki verði hluti af tækjum Art Medica nýttur. „Við tökum það sem hægt er að nýta en komum til með að bæta heilmiklu við af nýjum tækjum,“ segir Snorri. Snorri segir að á Íslandi séu gerðar um 450 glasa­ og smásjárfrjóvganir á ári. IVF klíníkin Reykjavík komi til með að bjóða upp á nýjustu aðferðir í ófrjósemismeðferðum eins og til dæmis eggjafrystingu, ræktun fóstur vísa í skápum tengdum myndavélum og kímblöðruræktun. Snorri segir að IVF Sverige sé lif­ andi fyrirtæki sem vilji sjálft þróa aðferðir og tækni og stunda rann­ sóknir í ríkum mæli. Samstarfið við fyrirtækið geri mögulegt að fylgjast með, þróa og taka upp nýjustu aðferðir til hagsbóta fyrir sjúkling­ ana. – jhh Sænska fyrirtækið IVF lætur til sín taka í tæknifrjóvgun á Íslandi Við ætlum að reyna að opna um miðjan febrúar. Snorri Einarsson fæðingar- og kven- sjúkdómalæknir Um tæknifrjóvganir Lögin um tæknifrjóvgun tóku gildi 1996. Þar er tæknifrjóvgun skilgreind sem getnaður í framhaldi af tækni- sæðingu eða glasafrjóvgun. Tækni- sæðingar með gjafasæði hófust 1977 og 1978. Fyrstu íslensku pörin fóru hins vegar í glasafrjóvgunar- meðferð í Englandi 10 árum síðar. Heilbrigðisyfirvöld höfðu þá gert samning um meðferð íslenskra para. Glasafrjóvgun hófst svo á Land- spítalanum í október 1991 og fyrsta barnið fæddist níu mánuðum síðar. hafnarfjörður Taka á  saman heildstætt yfirlit yfir alla hagsmuni Hafnarfjarðarbæjar af rekstri og staðsetningu álversins í Straums­ vík. Þetta var ákveðið í bæjarráði Hafnarfjarðar á fimmtudag. „Reynt verði að kortleggja bæði bein og óbein áhrif af rekstrinum. Jafnframt verði tekin saman ákvæði um réttindi og skyldur sem gilda um starfsemina,“ segir í samþykkt bæjarráðs. Ál hefur verið framleitt í bræðslu Rio Tinto Alcan í Hafnar­ firði frá árinu 1969. – gar Bærinn greinir hagsmuni sína af álverinu Nefnt hefur verið að Straumsvíkur­ álverinu verði lokað. Fréttablaðið/GVa Dómsmál Svanur Birkir Tryggva­ son hefur stefnt íslenska ríkinu og krefur það um tvær milljónir í skaðabætur eftir að hafa setið í gæsluvarðhaldi og einangrun í þrettán daga sumarið 2013 vegna Stokkseyrarmálsins. Svanur var ekki ákærður en var kallaður til sem vitni við aðalmeðferðina. Svanur var í október dæmdur í 14 mánaða fangelsi í Hæstarétti Íslands fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, vörslu þeirra, fjársvik, tilraun til fjársvika, þjófnað auk þess að hafa veist að þremur lögreglumönnum og hótað þeim líkamsmeiðingum. Stokkseyrarmálið vakti talsverða athygli  vegna ofbeldis sem þótti einkar hrottalegt. Í því voru Stefán Logi Sívarsson og Stefán Blackburn dæmdir í sex ára fangelsi í febrúar fyrir sérstaklega hættulega líkams­ árás og frelsissviptingu. – ih Vill bætur eftir 13 daga í haldi Efnahagsmál Á fyrstu tíu mánuð­ um ársins nemur fjöldi gistinátta á hótelum 2,43 milljónum. Þetta er 20 prósenta aukning miðað við sama tímabil árið 2014 þegar þær námu 2,02 milljónum. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru gistinætur á hótelum í október 238 þúsund talsins sem er 30 prósenta aukning miðað við október 2014. Gistinætur erlendra gesta voru 88 prósent af heildar­ fjölda gistinátta í mánuðinum, en þeim fjölgaði um 40 prósent frá sama tíma í fyrra á meðan gisti­ nóttum Íslendinga fækkaði um tólf prósent. – sg Gistinóttum á hótelum fjölgað um fimmtung f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 11m á n u D a g u r 7 . D E s E m B E r 2 0 1 5

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.