Fréttablaðið - 07.12.2015, Blaðsíða 4
Heildarverðmæti vinninga í desember er 107 milljónir króna
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
D
AS
7
74
17
1
2/
15
dregið í hverri viku!
Verður 30 milljóna króna
íbúð í jólapakkanum?
Kauptu miða á www.das.is eða í síma 561 7757.
Alþingi Fjárlagafrumvarpið fyrir
næsta ár var tekið úr fjárlaganefnd
um helgina. Frumvarpið er því til-
búið til annarrar umræðu með
breytingartillögum og nefndaráliti.
Umræður fara fram á morgun,
þriðjudag. Með nýjustu breytingar-
tillögunum er gert ráð fyrir að
afgangur á rekstri ríkissjóðs verði
mun minni en þeir 15,3 milljarðar
sem gert var ráð fyrir í upphafi.
Lagðir eru nokkrir fjármunir í
eflingu innviða vítt og breitt um
landið. Breytingartillögur meiri-
hlutans eru á þriðja hundrað talsins
og því líklegast að umræður í þing-
inu verði fjörlegar og þær muni taka
nokkurn tíma.
Vigdís Hauksdóttir er ánægð
með þær breytingartillögur sem
meirihluti fjárlaganefndar leggur
til að þessu sinni. Í heildina leggur
nefndin til fjárútlát upp á 8,8 millj-
arða króna. „Mér líst vel á þessar
breytingar. Hér erum við að for-
gangsraða í grunnstoðir samfélags-
ins og ég tel að þingmenn geti verið
ánægðir með hvernig til hefur tekist.
Enn gerum við ráð fyrir hallalausum
fjárlögum sem skiptir sköpum í að
lækka skuldir ríkissjóðs,“ segir Vig-
dís en telur líklegt að frumvarpið
verði rætt í þaula. „Ég sem formaður
fjárlaganefndar vona að allir þing-
menn taki til máls í þessu mikil-
vægasta máli þingsins á hverju ári,
sem fjárlögin eru.“
Oddný Harðardóttir, sem situr í
minnihluta fjárlaganefndar, segir
sárvanta fjármagn til Landspítala og
til aldraðra. „Það sker í augu að ekki
er gert ráð fyrir hækkun á kjörum
eldri borgara frá 1. maí 2015 eins og
lægstu laun gerðu. Þannig sitja aldr-
aðir eftir. Það er líka áberandi að
það skorti fé til Landspítalans. Ekki
eru gerðar tillögur til að bæta við fé
vegna fjölgunar sjúklinga. Það þýðir
í raun niðurskurð sem því nemur.
Við þurfum engar greiningar til að
sýna okkur þá stöðu, hún er aug-
ljós,“ segir Oddný.
Í greinargerð meirihlutans er gerð
grein fyrir útgjaldaþróun nokkurra
eftirlitsstofnana. Kemur í ljós að
útgjaldaaukning stofnana frá árinu
2007 til 2016 er 60 prósent; var
rúmir 8,2 milljarðar árið 2007 en er
nú 13,1 milljarður króna.
sveinn@frettabladid.is
Breytingartillögur meirihlutans
eru á þriðja hundrað talsins
Meirihluti fjárlaganefndar hefur skilað breytingartillögum við frumvarp fjármálaráðherra til fjárlaga 2016.
Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingar, segir vanta fé til Landspítala og kjarabóta fyrir eldri borgara.
Dæmi um breytingatillögur:
Hér gefur að líta nokkrar af þeim
rúmlega 200 breytingartillögum við
fjárlagafrumvarp ársins 2016 sem
meirihluti fjárlaganefndar leggur
fram. Tölur sem á eftir koma vísa
ekki til heildarfjárhæðar í hverjum
málaflokki heldur er um að ræða
hækkun eða lækkun á þeim fjár-
veitingum sem lagðar voru til í fjár-
lagafrumvarpinu í september.
Lagt er til í breytingartillögunum að
Húsameistari ríkisins þurfi um 178
milljónir fyrir árið 2016
LÍN – lánasjóður
íslenskra námsmanna:
490 milljónir
Lagt er til að framlag til Lánasjóðs
íslenskra námsmanna lækki um 490
milljónir króna vegna endurmats á
fjárþörf sjóðsins.
RÚV:
94 milljónir
Lagt er til í breytingum meirihlutans
að Ríkisútvarpið fái 94 milljónum
meira en gert var ráð fyrir í upphaf
legri útgáfu frumvarpsins.
Þróunarhjálp:
500 milljónir
Lagt er til tímabundið framlag til
stuðnings við alþjóðastofnanir
og hjálparsamtök sem vinna með
flóttafólki erlendis.
Framkvæmdasjóður
ferðamannastaða:
490 milljónir
Lagt er til að Fram
kvæmdasjóður ferðamannastaða
fái tímabundna fjárheimild í eitt
ár til uppbyggingar á innviðum
ferðamannastaða. Ráðuneytið
taldi upphaflega þurfa mun meira
fjármagn en þær 490 milljónir sem
meirihluti fjárlaganefndar vill setja í
málaflokkinn.
Rannsóknir ferðamála:
150 milljónir
Tímabundið framlag í eitt ár til að efla
rannsóknir á sviði ferðamála. Gert er
ráð fyrir að gerðir verði samningar
um ráðstöfun þessara fjármuna til
samræmis við forgangsröðun Stjórn
stöðvar ferðamála.
Útlendingastofnun:
95 milljónir
Aukið framlag til að mæta auknum
fjölda hælisleitenda og uppfylla kröfur
um málshraða.
Fangelsismálastofnun:
30 milljónir
Gerð er tillaga um
hækkun á fjárheimild
Fangelsismálastofn
unar ríkisins til að
mæta veikleikum í
starfsemi fangelsa.
Vegagerðin:
100 milljónir
Hækkun framlags til að styrkja al
menningssamgöngur á höfuðborgar
svæðinu.
Fjarðarheiðargöng:
80 milljónir.
Tímabundið framlag til Vegagerðar
innar til áframhaldandi rannsókna á
jarðgöngum undir Fjarðarheiði.
Vegagerð í dreifðum byggðum:
235 milljónir
Tímabundið framlag til vegagerðar í
dreifðum byggðum. Víða á lands
byggðinni er brýnt vegna umferðar
öryggis og byggðamála að reyna að
hraða sem mest framkvæmdum á
tengivegum.
Uppbygging Hafna:
400 milljónir.
Tímabundið framlag í Hafnabóta
sjóð til endurnýjunar á
bryggjum og dýpkunar í
lönd
unar
höfnum.
Flugvellir á landsbyggðinni:
400 milljónir
Tímabundið framlag til að koma
til móts við uppsafnaða þörf fyrir
uppbyggingu á flugvöllum á lands
byggðinni og rekstur innanlands
flugs.
Fjarskiptauppbygging á
landsbyggðinni:
200 milljónir
Tímabundið framlag til Fjarskipta
sjóðs til viðbótar við þær 315,3
milljónir króna sem gert er ráð fyrir
í frumvarpinu til þess að hraða upp
byggingu fjarskiptainnviða.
Tannlækningar lífeyrisþega:
200 milljónir
Gerð er tillaga um við
bótarheimild til tann
lækninga. Mikil aukning
hefur verið í tannlækn
ingum lífeyrisþega milli ára og
fjölgaði þeim um 26 prósent á
fyrri helmingi ársins miðað við sama
tímabil 2014.
Grynnka á biðlistum eftir
aðgerðum: 840 milljónir.
Fjárheimild næstu þrjú ár vegna
átaks til að stytta biðlista eftir auga
steinsaðgerðum, gerviliðaaðgerðum
á hné, gerviliðaaðgerðum á mjöðm
og kransæðaþræðingum.
Fæðingarorlofssjóður:
360 milljónir.
Gerð er tillaga um 200 milljóna
króna hækkun á fjárheimild
Fæðingarorlofssjóðs til að mæta
áhrifum nýgerðra kjarasamninga.
Einnig 160 milljóna hækkun á fjár
heimild sjóðsins í ljósi endurskoð
aðrar áætlunar um útgjöld á árinu
2015.
Húsameistari
ríkisins:
178,7
milljónir
Löggæsla:
400 milljónir
Við greiningu á lög
regluembættum
landsins hafa komið
fram veikleikar í starfseminni
sem brýnt er sagt að mæta. Einn
þeirra er hlutverk lögreglu við að
tryggja öryggi ferðamanna.
þjóðgArðAr Þingvallanefnd hefur
samþykkt að hefja strax undirbúning
að veitinga- og móttökuhúsi á Hakinu.
„Í húsinu verði fullbúið og vandað
veitingahús þar sem í boði verði úrvals
matur og góð þjónusta, þar verði auk
þess salur til veislu- og fundarhalda.
Húsið rísi suðvestan við núverandi
gestastofu þar sem víðsýni og fegurð
Þingvalla og fjallahringsins nýtur sín,“
segir í fundargerð Þingvallanefndar
þar sem þessi ákvörðun er gerð kunn
og sagt að nú verði gerð „frumathugun
og þarfagreining“ í samstarfi við Fram-
kvæmdasýslu ríkisins.
Fram kemur að rekstur nýja húss-
ins og aðkoma gesta eigi að nýta bíla-
stæði og aðkomuleiðir sem þegar séu
fyrir hendi á Hakinu. „Göngustígar
og útsýnisstaðir í grenndinni tengist
kerfi gönguleiða fram á brún Haksins
og niður í Hestagjár, Hallsins, gamla
Valhallarplans og bakka Öxarár,“ segir
áfram um málið.
Með þessari ákvörðun virðist ljóst
að ekki verður byggð nýtt Hótel Val-
höll á reitnum þar sem hótelið stóð
þar til það gjöreyðilagðist í eldsvoða
í júlí 2009. – gar
Veitinghús á
Hakinu fær
samþykki
Á Hakinu er nú þegar þjónustuhús,
salernisaðstaða og starfsmannahús.
FRéTTabLaðið/PjeTUR
EfnAhAgsmál Heildarfjöldi erlendra
ferðamanna á þessu ári gæti farið í
1.307 þúsund, samkvæmt áætlun
Samtaka ferðaþjónustunnar. Fram
kemur í tilkynningu að það sem af
er ári hafi ferðamönnum fjölgað um
30 prósent frá fyrra ári.
Ferðir Íslendinga til útlanda eru
um þrefalt færri en útlendinga
hingað, eða 448 þúsund. Til saman-
burðar má nefna að á tíunda ára-
tugnum komu árlega að meðaltali
um 380 þúsund ferðamenn á sama
tíma og um 225 þúsund Íslendingar
lögðu land undir fót. Gert er ráð fyrir
að gjaldeyristekjur í ferðaþjónustu
haldi áfram að vaxa á síðasta árs-
fjórðungi ársins og nemi í ár um 368
milljörðum króna. – gló
Heildarfjöldi
ferðamanna um
1,3 milljónir
7 . d E s E m b E r 2 0 1 5 m á n U d A g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð