Fréttablaðið - 07.12.2015, Blaðsíða 13
CRÉATIVE TECHNOLOGIE
Frábær vinnuaðstaða með góðu aðgengi fyrir farm og farþega. 180° opnun á afturhurðum, rennihurð, þægileg hleðsluhæð, há sætisstaða og fjöldi geymslu-
hólfa. Öflug en sparneytin 90 hestafla dísilvél ásamt spólvörn og ESP stöðugleikakerfi gera Berlingo Van að öruggum og hagkvæmum kosti fyrir þinn rekstur.
Veldu traust umboð með einstöku þjónustuframboði fyrir bíla- og tækjaflota.
KOMDU OG PRÓFAÐU CITROËN BERLINGO VAN - NÚNA Á LÆGRA VERÐI
citroen.is
• 3,3 M - 4,1 M HLEÐSLURÝMI • 850 KG BURÐARGETA • 3JA MANNA • SPARNEYTINN •3 3
Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
BETRI REKSTUR OG AUKIN ÞÆGINDI
CITROËN BERLINGO VAN 1,6 HDi 90 hö dísil
FRÁ: 2.950.000 KR. MEÐ VSK
FRÁ: 2.850.000 KR. MEÐ VSK
FRÁ: 2.379.032 KR. ÁN VSK
FRÁ: 2.298.387 KR. ÁN VSK
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
15á
ra afmæli
Citroënhjá Brimborg
Citroen_Berlingo_5x20_20150923_END.indd 1 24.9.2015 10:49:47
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag Er þetta frétt? Er þetta list? Þessar spurningar koma aftur og aftur og yfirleitt virðist
svarið vera nú á okkar lýðræðis-
tímum: Ef einhverjum finnst að svo
sé – þá er það svo. List? Frétt? Hvað
finnst þér? Það er sem er.
Og alltaf verið að reyna að færa
út mörkin: segja fréttir af því ófrétt-
næma; búa til list úr því ólistuga.
Og nú fléttast þessar tvær spurn-
ingar saman í nýja kassastykkinu:
listneminn Almar húkir ber í kassa
og lætur umheiminn fylgjast með sér.
Einsemd í beinni. Er það frétt hvort
þetta sé list? Er það list hvort þetta sé
frétt? Og er það þá frétt? Og þar með
list?
Í listum er þetta helst
Listfréttalist. Fréttalistafrétt. Sam-
kvæmt þessum hugsunarhætti er
aðeins ein leið eftir til að skera úr
um listgildi verka: að láta fara fram
megindlega (eða var það eigindlega?)
rannsókn eða skoðanakönnun þar
sem fólk er beðið að segja til um það
hvort því finnist tiltekið verk vera list
eður ei, þumall upp eða þumall niður,
og svo ráði einfaldur meirihluti þessu;
jafnvel mætti hugsa sér að slíkar
spurningar yrðu partur af mánaðar-
legum þjóðaratkvæðagreiðsluvagni
um hvaðeina, sem útlit er fyrir að
komi í staðinn fyrir löggjafann þegar
fram líða stundir, þegar einfaldur
meirihluti úrskurðar um stórt og
smátt. Raunar má segja að kominn
sé vísir að slíkum listúrskurðum, nú
þegar listgildi er æ meira talið ráðast
af því hversu mikið fréttum af listvið-
burðunum er deilt á netinu og hversu
mörg læk viðburðirnir fá. Það má líka
hugsa sér raunveruleikaþátt þar sem
fjórir listfræðingar sitja og dæma um
það hvort afurðir sem fólk ber fyrir þá
sé list …
Okkur sem komin erum á léttasta
skeið, um og yfir miðjan aldur, okkur
finnst stundum að við höfum séð
þetta allt áður. Okkur finnst nútíma-
list vera eins og ómurinn eftir spreng-
inguna. Okkur þykja flest nútímalista-
verk eins og hvít jörð eftir bylinn.
Við teljum okkur muna þá tíð þegar
listaverk vöktu aðdáun eða viðbjóð,
hneykslun, ást, hatur – kenndir. Þegar
listin var gullgerðarlist. Nú er ekki
einu sinni lengur frumlegt að vera
ófrumlegur, segjum við þá, og mörk
hins sanna og logna, fallega og ljóta,
lága og háa, merkilega og ómerkilega,
svo vendilega út þurrkuð að við blasir
berangur og auðn. Nú er póst-póst-
tími, segjum við. Okkur finnst listin
handan við það sem var handan við,
komin hinumegin – úr augsýn; vera
þara einhvers staðar úti í kófinu.
Svona tölum við stundum, á góðri
stundu. Kannski er það rétt sem þau
segja sum: að listin sé dauð. En það
merkilega er, að löngu eftir dauða
listarinnar er enn verið að búa til list.
Þegar maður tuðar yfir einhverju
býr maður til vegg milli þess og sín;
tuðið varnar því að maður hugsi;
tuð er kalviður sem fyllir heilann ef
maður passar ekki að fjarlægja það
jafnóðum. Nýnæmi listaverka, erindi
þeirra, ræðst af samhengi í tíma
og rúmi og þetta samhengi er ekki
endanlega hægt að sjá berum augum;
þetta er andrúmsloft, hugarástand
samfélagsins, þjóðfélagsskipanin,
umræðuhættir. Ber maður í kassa
fyrir allra augum er allt annað verk
árið 1966 en það er árið 2015; fjallar
um eitthvað allt annað.
Listin á tímum lækóhólismans
En það er kannski rétt sem þau segja:
listgildi verka virðist æ meira komið
undir því að talað sé um það á Face-
book og Twitter, helst að deilt sé um
það, og veki andúð – og já: tuð; gildið
ræðst af því hvort listaverkið kemst
í „umræðuna“ og snýst þá umræðan
gjarnan um að listaverkið sé „umrætt“
(er þetta list? er það frétt?). Listamenn
lifa og starfa á tímum samfélags-
miðlanna þar sem við sviðsetjum
okkur, hvert og eitt í sínum kassa,
og hver og ein manneskja nakin á
sinn hátt. Sjálft tíðindaleysið hjá
Almari þarna í kassanum er eins og
langdreginn og syfjulegur Facebook-
status. Hin stöðuga frásögn okkar af
ófréttnæmum atburðum í lífi okkar
sem svo rennur saman við líkams-
starfsemi og blygðunarstörf innan
tíðar, eins og Eiríkur Örn rekur í nýrri
skáldsögu sinni, Heimsku, sem sumir
af viðtökustjórum bókmenntalífsins
virðast vera andvígir af því að hún er
látin gerast á Ísafirði í framtíðinni,
sem eru víst ósennilegri aðstæður en
hægt er að bjóða upp á. Smám saman
kemst listamaðurinn í beint samband
við áhorfanda sinn – og læktakkann
hjá honum. Í hverjum listamanni býr
lækóhólisti.
Við hugsum of þröngt. Það er ekki
kallinn í kassanum sem er áhyggju-
efni heldur kassinn í kallinum: við
erum of ferköntuð. Við sjáum of
sjaldan listaverk, hugsum of sjaldan
um list, þyrftum ekki svona oft að
spyrja okkur hvort eitthvað sé list ef
listin væri snarari þáttur í lífi okkar.
Það er tilvalin leið til að gera okkur
þröngsýn, hleypidómafull og hrædd,
að fjarlægja listina úr daglegu lífi.
Við þurfum samhengi í listum-
fjöllun og listnautn, ekki upphlaup
eftir dyntum blaðamanna og smelli-
dólga þar sem við klórum okkur öll
í hausnum – og hvert öðru – yfir því
hvað þetta sé nú eiginlega aftur, þetta
list.
Kassastykki
Það er ekki kallinn í kassanum
sem er áhyggjuefni heldur
kassinn í kallinum: við erum of
ferköntuð. Við sjáum of sjaldan
listaverk, hugsum of sjaldan um
list, þyrftum ekki svona oft að
spyrja okkur hvort eitthvað sé
list ef listin væri snarari þáttur í
lífi okkar. Það er tilvalin leið til
að gera okkur þröngsýn, hleypi-
dómafull og hrædd, að fjarlægja
listina úr daglegu lífi.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13M Á n u d a g u R 7 . d e s e M B e R 2 0 1 5