Nesfréttir - okt. 2017, Síða 6
6 Nes frétt ir
Bílasmiðurinn hfBarnabílstólar í úrvali
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík - Sími: 567 2330 - www.bilasmidurinn.is
Höfundakynning verður haldin
í Bókasafni Seltjarnarness þriðju-
daginn 21. nóvember nk. Meðal
þeirra sem þar koma fram er Sólveig
Pálsdóttir rithöfundur en ný bók
eftir hana, Refurinn, er væntanleg
í verslanir um næstu mánaðamót.
Nesfréttir náðu tali af Sólveigu til að
forvitnast aðeins um nýju bókina.
Þú hefur búið lengi á Seltjarnarnesi
og tekið virkan þátt í menningarstarfi
hér. Kemur Nesið eitthvað við sögu?
„Reyndar ekki,“ svarar Sólveig
brosir út í annað. „Sögusviðið er
eins ólíkt sléttlendi Seltjarnarness
og hugsast getur. Hvassir tindar og
brattar skriður einkenna staðinn
sem gegnir lykilhlutverki í Refnum en
sögusviðið er austur í Lóni, á Höfn í
Hornafirði og í Reykjavík.
Líf Guðgeirs hefur breyst
Koma persónur úr fyrri bókunum
þínum við sögu?
„Já, þó nokkrar svo sem Guðgeir
og Særós en Guðgeir starfar nú
tímabundið sem öryggisvörður á Höfn
á meðan hann jafnar sig á áföllum í
starfi og einkalífi. Líf hans hefur tekið
algjörum stakkaskiptum á stuttum
tíma. Áður var hann hamingjusamlega
giftur fjölskyldufaðir og farsæll
yfirmaður í lögreglunni en nú reynir
hann að láta dagana líða og láta lítið
á sér bera. Hann dregst inn í óvænta
atburðarás þegar ung erlend kona
hverfur sporlaust þarna fyrir austan.
Þó að fólk segist hafa hitt konuna er
engu líkara en að hún hafi aldrei verið
til. Inni í Lóni, á bænum Bröttuskriður,
býr kona með fullorðnum syni sínum.
Bæði eiga þau sér sérstaka fortíð sem
er sveipuð dulúð líkt og umhverfið.
Líf þessa fólks fléttast saman með
óvæntum hætti.
Þetta er spennusaga
Er þetta glæpasaga líkt og fyrri
bækurnar?
„Ja, þetta er spennusaga. Mér þykir
gaman að skrifa slíkan texta, keyra
upp eigin hjartslátt og ég vona innilega
að mér takist að fá blóðið til að renna
hraðar í öðrum líka. Refurinn er með
nokkuð óvenjulega uppbyggingu og er
kannski ekki hefðbundin glæpasaga
heldur sálfræðileg spennusaga, eins
og einn þeirra sem las yfir handritið
orðaði það. Persónurnar mótuðust í
huga mér tiltölulega snemma en það
tók mig nokkurn tíma að finna réttan
tón fyrir söguna. Kannski vegna
þess að sögusviðið er að hluta til í
Lóninu og mér þykir vænt um þann
stað. Bröttuskriður eru þó ekki til í
alvörunni, sagan er skáldskapur frá
upphafi til enda, og persónur eiga sér
enga stoð i raunveruleikanum. Ég verð
að nefna þetta því þegar fyrsta bókin
mín, Leikarinn, kom út var ég spurð að
því í beinni útsendingu í útvarpi hvort
leikari sem kemur við sögu ætti sér
raunverulega fyrirmynd. Mér brá því
það er svo fjarri lagi. Svarið var nei og
aftur nei. Sama á við um Refinn sem
varð eingöngu til í kollinum á mér.“
Hvernig skrifar þú - byrjarðu á að
úthugsa plottið og hvernig vinnurðu?
„Ég hef óljósa hugmynd um plottið
þegar ég byrja en kveikjur að bókunum
mínum hafa hingað til verið persónur
og ákveðið andrúmsloft sem ég vil
fanga. Ég hef endalausan áhuga á
margbreytileika mannlífsins og hvað
það er sem mótar manneskjuna. Það
er stöðug áskorun að flétta saman
marga þræði svo úr verði heillegt verk.
Smám saman taka hugmyndirnar á sig
mynd sem styrkist við hverja yfirferð.
Þetta er mikil vinna því ekkert verður
til af engu og maður verður að temja
sér mikinn sjálfsaga til að endast við
tölvuna. En á meðan skrifin veita mér
ánægju og ég hitti glaða lesendur held
ég áfram.
Bækurnar þínar hafa fram að þessu
komið út á vorin en nú ertu komin í
jólabókaflóðið. Hvernig leggst það í þig?
Samkeppnin er hörð en ég vona
það besta. Satt að segja trúi ég því að
bóksala verið mikil og vona innilega
að landsmenn lesi sem allra mest um
jólin, já og bara alltaf. Áfram lestur
og áfram bækur.
Sólveig Pálsdóttir sendir nýja spennusögu frá sér
- verður kynnt á höfundakynningu 21. nóvember n.k.
Sólveig Pálsdóttir, rithöfundur,
Refurinn, ný bók eftir Seltirninginn
Sólveigu Pálsdóttur.