Nesfréttir - okt. 2017, Blaðsíða 16

Nesfréttir - okt. 2017, Blaðsíða 16
16 Nes ­frétt ir Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er Þann 28. október verður gengið til kosninga, aftur. Einn dag vantar þá uppá að nákvæmlega ár sé síðan kosið var síðast þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk 21 af 63 þingsætum. Í Kraganum fékk flokkurinn 34% atkvæða og Seltirningar létu ekki sitt eftir liggja enda eru þeir, ólíkt Reykvíkingum, vanir skynsamlegum opinberum rekstri sjálfstæðismanna frá stofnun bæjarfélagsins. Staðan nú að ári liðnu Fólk finnur hvernig laun og kaupmáttur hafa stóraukist, vöruverð lækkað samfara afnámi tolla og vörugjalda, efnahagstöðugleika og styrkingu krónu. Eignaverð og eigið fé heimila hefur rokið upp og sparnaður heimila stóraukist. Verðbólga mælist um 1,5% og flytja þarf inn vinnuafl því atvinnuleysi er undir 2%. Stýrivextir hafa lækkað í 4,25% og íbúðavextir aldrei verið lægri. Skuldir ríkisins fara hratt lækkandi. Meðallaun í landinu er 670.000 krónur á mánuði, ein þau hæstu í heimi. Á sama tíma er eigna- og tekjujöfnuður skv. alþjóðlegum mælikvörðum (GINI, OECD) einn sá mesti. Aðeins Sviss greiðir hærri tímalaun! Búið er í haginn fyrir aukin sóknartækifæri með niðurgreiðslu skulda í stað þess að eyða í vexti. Lánshæfismat hækkar. Arðgreiðslur úr ríkisbönkum (sem þarf að selja) og Landsvirkjun eru svo auka tugmilljarða bónus sem nota á í uppbyggingu innviða. En hvað vill Sjálfstæðisflokkurinn gera betur? Sjálfstæðisflokkurinn vill lækka tekjuskatt í 35% og lækka trygg- ingagjald sem er í engu samræmi við atvinnuleysi. Flokkurinn vill leiðrétta frítekjumark eldri borgara strax í 100.000 kr. á mánuði og stórauka framlög til hjúkrunarheimila, líkt og það sem nú rís á Nesinu. Sjálfstæðiflok- kurinn vill hækka greiðs- lur í Fæðin- garorlofssjóð til samræmis við meðallaun í landinu og taka upp náms- s t y r k j a k e r f i með 65.000 kr. styrk á mánuði. Flokkurinn vill auka fríverslun en ekki ganga í Evrópusambandið sem er í upplausn, ekki síst eftir útgöngu Breta. Framlög til heil- brigðismála hafa hækkað úr 133 milljörðum árið 2012 í 193 mil- ljarða í ár (45%). Stefnan er sett á að lækka kostnað sjúklinga enn frekar og efnahagur fólks má aldrei vera hindrun fyrir bata. Nýtt sjúkrahús rís og áhersla verður á tækninýjungar í heilbrigðiskerfinu og mun betra aðgengi verður að sálfræðiþjónustu. Sá á kvölina ... Eftir upphlaup sem á sér fá fordæmi í stjórnmálasögu landsins, og er þó af nægu skringilegu að taka, stendur fólk nú frammi fyrir því að kjósa sér framtíð til fjögurra ára (vonandi!) sem það vill vera sátt við og þurfa alls ekki að hafa áhyggjur af. Kjósum það sem hefur reynst okkur vel á síðustu misserum og reyndar áratugum, kjósum festuna en ekki sundrungu, kjósum Sjálfstæðisflokkinn – fyrir okkur öll. Magnús Örn Guðmundsson Viðskiptafræðingur og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins Fyrir okkur öll Magnús Örn Guðmundsson. Það er margt sem bendir til að börnin okkar muni verða betri en okkar kynslóð. Þau verða menntaðri, félagslega með- vitaðri og að því ég held betri við hvort annað. Það er líka ýmislegt sem bendir til að þó að þau hafi aldrei verið líkamlega heilbrigðari, drekki minna og reyki minna sem dæmi, þá sé eitthvað sem veldur því að kvíði og vanlíðan eykst meðal ungmenna. Samkvæmt tölum frá Trygginga- stofnun hefur fjöldi ungs fólks undir 30 ára á örorkulífeyri og endur- hæfingarlífeyri tvöfaldast frá árinu 2000. Algengasta orsök örorku eru geðraskanir. Aðrar birtingar- myndir vandans eru mikið brottfall úr framhaldsskólum, aukinn kvíði ungs fólks, vímuefnaneysla og svo eru ungu mennirnir okkar að deyja, sjálfsvíg ungra karla er sorglegasta birtingarmynd þessarar vanlíðunar. Ég sat ráðstefnu sem Geðhjálp stóð fyrir sem kallaðist Börnin okkar. Þar var fullt út úr dyrum og komust færri að en vildu. Ráð- stefnuna sátu allar þær fagstéttir sem með þessi mál fara. Það er augljóst að áhugi á geðheilsu barnanna okkar er gríðarlegur um þessar mundir. Það sem þarna kom fram er að atlæti barna og ungmenna skiptir höfuðmáli varðandi heilsu á seinni árum. Börn sem lenda í áföllum s.s. ofbeldi sem ekki er unnið með, eru mun líklegri til að hafa lakari lífsgæði á fullorðinsárum, líklegri til að þjást af vanheilsu, bæði líkam- legri og andlegri, líklegri til að verða fíkn að bráð og svo framvegis. Við sem samfélag höfum ekki náð að halda utan um þessi ungmenni og koma í veg fyrir þessar ömurlegu afleiðingar. Þetta er ekki mannauðs- vandamál. Ég hef persónulega reynslu með drenginn minn og í kjölfarið talað við ótalmarga aðstandendur en einnig fagfólk á þessum vettvangi. Ég veit að það er gríðarlega mikið af góðu fólki með mikla þekkingu og reynslu innan kerfis. Sál- fræðingar, hjúk- runarfræðing- ar, læknar, kennarar, iðju- þjálfar, félagsráðgjafar, námsráð- gjafar og fleiri leggja sig fram, vilja gera það allra besta. En uppbygg- ing kerfis, álag og fjárskortur auk skorts á samvinnu milli fagstétta og kerfa gerir það að verkum að ekki næst utan um vandamálin með heildstæðum hætti. Þetta er kerfisvandamál sem við í Samfylkingunni viljum svo sannarlega breyta og bæta. Við eigum innviðina, við eigum fagfólkið og við eigum peningana. Enda mun hver króna sem fer í slík verkefni skila sér margfalt til baka. Samfylkingin hefur lagt fram metnaðarfulla áætlun gegn ofbeldi hvers konar þar sem lagt er til stórátak í forvörnum en einnig að leggja fjármuni í að vinna með afleiðingar ofbeldis. Við viljum vinna markvisst að geðheilbrigðisstefnu til framtíðar og leggjum áherslu á að geðheilbrigði fari inn í starf skóla, sem dæmi viljum við að það verði sálfræðingar í öllum framhaldsskólum. Við erum kappsöm og bjartsýn á að það megi ná miklum árangri í að hlú betur að ungu kynslóðinni sem er framtíðin, okkur öllum til heilla. Sigurþóra Bergsdóttir er vinnusálfræðingur og situr í 5. sæti Samfylkingarinnar í Suðvestur kjördæmi. Börnin okkar Sigurþóra Bergsdóttir. BÍLAVIÐGERÐIR GRANDA FISKISLÓÐ 83 - 101 REYKJAVÍK S: 562 5999 S: 669 5999 www.borgarblod.is Nesfréttir

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.