Nesfréttir - okt. 2017, Blaðsíða 10
10 Nes frétt ir
Guðmundur Helgi Þor-steinsson skrifaði grein í Nesfréttir fyrir nokkru. Efni greinarinnar var
umfjöllun um hin svonefndu vestur-
svæði á Seltjarnarnesi og náttúrlegt
gildi þeirra. Í grein sinni vitnaði
hann m.a. í aðalskipulag Seltjarnar-
ness frá 2006 til 2024 þar sem segir
að skipulagssvæðið einkennist af ein-
stakri náttúru og athyglisverðu menn-
ingarlandslagi. Það hafi auk þess
mikið útvistar- og fræðslugildi. Enn
fremur segir að svæðið sé í skipulagi
höfuðborgarsvæðisins talið eitt af
mikilvægustu útivistarsvæðum þess.
Guðmundur Helgi hefur tengst
íþróttalífinu nánum böndum og er eini
Íslendingurinn sem að hefur gegnt
starfi í alþjóðaíþróttahreyfingunni en
hann var um árabil framkvæmdastjóri
tækni- og þróunarmála hjá FIVB,
alþjóðablaksambandinu í Lausanne í
Sviss þar sem hann hafði fasta búsetu.
Guðmundur Helgi var auk þess innri
endurskoðandi samtakanna 1999
til 2003, en fram að þeim tíma hafði
hann verið framkvæmdastjóri og vara-
formaður Blaksambands Íslands um
árabil. Það var því ekki ráðist á garðinn
þar sem hann var lægstur enda er
FIVB stærsta heimsíþróttasambandið
með 221 aðildarland innanborðs og
fleiri aðildarlönd á heimsvísu heldur
en FIFA sjálft. Guðmundur Helgi er úr
fótboltafjölskyldu og tengdafaðirinn
Einar Halldórsson var í Val og var
landsþekktur knattspyrnumaður á
árum áður og lék um árabil í lands-
liði Íslands, en blakið reyndist hins
vegar örlagavaldurinn.
Síðasta kynslóðin
sem gekk frjáls
Guðmundur Helgi er alinn upp
vestast í Vesturbænum í Reykjavík – á
Holtsgötunni en kveðst hafa kynnst
Nesinu fljótt sem drengur og tengst
því fyrir lífstíð. “Við vorum mikið út í
Ánanaustum, á Framnesvellinum og
Eiðsgrandanum. Þar voru leiksvæði
okkar strákanna og þetta var þá mikið
óbyggt svæði. Við vorum að spila
fótbolta og stunda ýmsa leiki sem
algengt var á þessum tíma. Við vorum
með fleka til þess að prufa sjóferðir
og þarna fórum við með kakómalt í
flöskum og nesti og vorum daglangt
í burtu. Þetta var veruleikinn þá. Ég
kem úr stórri fjölskyldu. Við erum tíu
systkinin og ég segi oft að við höfum
verið síðasta kynslóðin sem gekk
frjáls. Við vorum líka mikið í íþróttum
einkum við bræðurnir og Geir bróðir
var síðar formaður Knattspyrnu-
sambands Íslands. Íþróttasagan er
orðin löng.”
Hjá Guðbirni og Guðmundi G.
“Ég var í fótbolta með KR þar
sem Guðbjörn Jónsson sá ágæti
maður þjálfaði mig, náði að spila
einhverja leiki með meistaraflokki í
körfubolta líka. Þess utan hafði ég
líka verið í frjálsum íþróttum hjá ÍR
hjá Guðmundi G. Þórarinssyni í gamla
íþróttahúsinu við Landskotsskólann
sem að var helsta afreksmiðstöð ÍR
fyrr á árum. Ég sá hins vegar blak
fyrst í bakgarðinum hjá starfsmönnum
sovéska sendiráðsins í Garðastræti
og steig mínu fyrstu skref í skólablaki
í gamla ÍR húsinu en það átti eftir að
setja mark á líf mitt svo um munaði.
Blakið byrjað frekar seint hér á landi
og blaksambandið var stofnað 1972
þ.e. 10 árum eftir að ég fæddist. Eftir
að áhuginn kviknaði fyrir alvöru
þá kom ég fljótt inn í þetta og var
leikmaður um árabil með sigursælu
liði ÍS, gerðist framkvæmdastjóri og
varaformaður blaksambandsins og
starfaði í helstu nefndum. Þetta leiddi
mig á endanum til Lausanne í Sviss í
höfuðborg heimsíþróttanna þar sem
að Alþjóða Ólympíunefndin hefur
aðsetur sitt líka.”
Eins og að fara í rússíbana
“Já – ég flutti til Sviss árið
2003 til þess að hefja störf fyrir
Alþjóðablaksambandið. Blakíþróttin er
mikið útbreidd íþrótt og ein vinsælasta
greinin á Ólympíuleikunum. Fyrir mig
var þetta eins og að fara um borð í
rússíbana og ævintýri líkast. Mikið um
ferðalög og fundi víða um heim enda
hafði ég sex fagnefndir leiksins á mínu
verksviði sem að komu að stærstu
atriðunum í okkar sporti svo sem
lyfjamálum, tæknimálum og þróunar-
málum, menntun dómara og þjálfara
svo fátt eitt sé nefnt. Þess utan fór
drjúgur tími í samskipti og samninga-
gerð við framleiðendur íþróttavara auk
eftirlits með fjárhagsáætlunum auk
undirbúnings fyrir stórmótin. Það var
af nógu að taka.”
Annasamur dagur
Það hefur verið nóg að gera. “Já
- dagurinn var oft annasamur og oft
var það svo að ég hringdi í flestar
heimsálfur og stundum fannst mér ég
vera eins og þróunarbankastjóri að
hitta sendinefndir alls staðar að, frá
Afríku, Asíu, Eyjahafi og víðar að deila
út styrkjum og glíma við skortinn.
Þetta var ótrúlegt á köflum og það var
enginn dagur eins utan þess að maður
byrjaði snemma og kom oft seint heim
á kvöldin og lítið um frí. Hefði ég ekki
getað haft konuna heimavinnandi
til þess að sjá um heimilið og börnin
þá hefði þetta ekki getað gengið.” En
hvernig var með tungumálið. “Það var
nú eitt. Ég er breskmenntaður með
meistaragráðu í nýsköpunar og breyt-
ingarstjórnun frá York og talaði enga
frönsku áður en ég fluttist til Lausanne
sem er á frönskumælandi svæði í
Sviss rétt við landamæri Frakklands.
Þetta olli óþægindum fyrst en svo
leit maður aldrei til baka. Krakkarnir
voru ótrúlega fljót að ná henni og tala
hana eins og sitt móðurmál í dag. Og
ég tek eftir að þegar þau eru að tala
saman hér heima þá tala þau mikið
frönsku. Þetta sest svo fast í börnin ef
þau ná tungumáli á ákveðnum aldri.”
Guðmundur segir að það hafi verið
gott að búa í Lausanne næstum eins
og í málverki eins og hann kemst að
orði. “Íþróttirnar hafa gefið manni svo
margt og ég get verið þakklátur fyrir
það sem þær hafa fært mér. Þær ná að
brúa bil á milli fólksins og menn læra
að bera virðingu hver fyrir öðrum. Ég
hitti líka margt fólk á þessum tíma,
stjórnmálamenn, íþróttaleiðtoga
og fleiri skemmtilega karaktera. En
ég var líka feginn að komast heim –
heim í íslenska matinn, lambakjötið
og fiskinn. Við eigum svo mikil gæði
í hráefninu okkar.”
Vestursvæðin eru forréttindi
Nesbúa
En aftur að æskuslóðunum “
Já – þær eru mér mjög hugleiknar.
Leiðin lá oft út með fjörunni og út
á Seltjarnarnes. Þannig voru fyrstu
kynni mín af þessum fallega stað. Æska
mín átti sér einkum stað í fjörunum
við Naustin og vestur eftir allt út á
Seltjarnarnesið.” Guðmundur Helgi
segir vestursvæðin vera forréttindi
Nesbúa - griðarsvæði sem annast þurfi
um og varðveita. Grótta sé orðin eitt
af kennileitum landsins og margar
tilvísanir í hana samfélagsmiðlunum
erlendis. “Þess vegna hef ég áhyggjur
af umferðinni inn á þessi svæði. Eins
og ég komst að orði í nefndri greina
þá er hafin ákveðin útrás fólks úr
borgarsamfélögum sem er að leita
eftir öðru umhverfi. Náttúrlegu
umhverfi, sjávarilmi, frelsi og kyrrð.
Þessar væntingar fólks eru hluti af
því hversu Ísland er orðið áhugavert
ferðamannaland. Ég hef ekkert á móti
ferðamönnum en við verðum að
skipuleggja hvernig við viljum taka á
móti þeim og stýra ástandinu og vakna
Viðtal við Guðmund Helga Þorsteinsson
Guðmundur Helgi á Heimsþing FIVB í Anaheim Californiu árið 2012.
Áfram verður eftirsótt að
búa á Seltjarnarnesi