Nesfréttir - okt 2017, Qupperneq 18
Jafnaðarmenn eru ekki á móti því að fólk verði
auðugt af dugnaði sínum og útsjónarsemi. Öðru nær.
Um að gera – það á að greiða götu lítilla og meðalstórra
fyrirtækja svo að þau vaxi og dafni, eigendum sínum,
starfsfólki og samfélaginu öllu til hagsbóta. Þess vegna
viljum við meðal annars lækka tryggingargjald.
Það er hins vegar ekki hugsjónamál okkar
jafnaðarmanna að menn geti orðið auðugir hvað sem
það kostar öll hin.
Okkur finnst ekki rétt fólk hagnist á því að vera
í einokunarstöðu við að selja okkur varning sem við
verðum að kaupa. Okkur finnst ekki sanngjarnt að menn fái úthlutað
ókeypis einkaaðgangi að sameiginlegum auðlindum og fari svo að selja
öðrum aðgang að þessum einkarétti – jafnvel að veðsetja hann fyrir
gríðarlegar fjárhæðir sem eru svo faldar í skattaskjólum. Við erum ekki
hrifin af skattaskjólum. Við erum ekki hrifin af kúlulánakapítalisma. Við
erum ekki hrifin af gervivaxtarbólum sem springa fyrr en varir með
hörmulegum afleiðingum fyrir aðra en þá sem blésu út bólurnar. Við erum
ekki hrifin af því að fólk raki saman auði á því að hagnast á veikindum
annarra, eða hinu að kenna forréttindabörnum forréttindafræði á meðan
hið almenna kerfi sé fjársvelt.
Fólk á að njóta sín
Okkur dreymir um heilbrigt atvinnulíf þar sem sníkjulífsóværan nær
ekki að þrífast og reglugerðir koma í veg fyrir einokun og fjárryksugur.
Við viljum að dafni bílaverkstæði og bókaútgáfur, forritun, ferðaþjónusta
og matvælagerð, blómabúðir, álfaleiðsögn og stjörnuskoðun – og yfirleitt
hvað það sem fólki hugkvæmist að nota hæfileika sína í. Því að hugsjón
jafnaðarmanna er sú að fólk njóti sín. Velferðarkerfið og vanrækta innviði
ætlum við að fjármagna með auðlindagjöldum, að norskri fyrirmynd. Við
ætlum að hækka skatta á stóreignafólk en lækka þá á venjulegt launafólk.
Um þetta meðal annars snýst pólitík: hvernig við skiptum gæðunum.
Guðmundur Andri Thorsson
Oddviti Samfylkingarinnar
í SV kjördæmi
18 Nes frétt ir
Opið virka daga 9 - 21 og helgar 10 - 21.
Eiðistorgi 15 (þar sem Blómastofan var áður)
facebook.com/arnaisogkaffi
Heilbrigt atvinnulíf
Guðmundur
Andri Thorsson.
María Björk Óskarsdóttir hefur verið
ráðin í starf sviðsstjóra menningar- og
samskiptasviðs hjá Seltjarnarnesbæ. María
Björk lauk cand.oecon prófi frá Háskóla
Íslands auk þess að ljúka námi í ACC
Markþjálfun og PMD stjórnendanámi frá
Háskólanum í Reykjavík.
María Björk starfaði í 12 ár á auglýsingastofu
sem markaðsstjóri og ráðgjafi og í 5 ár
hjá Landsbankanum sem sérfræðingur á
markaðssviði og sem framkvæmdastjóri sérverkefna.
Sviðsstjóri menningar- og samskiptasviðs ber ábyrgð á rekstrarlegum
og stjórnunarlegum þáttum sviðsins. Hún hefur yfirumsjón með
stefnumótunarvinnu og markmiðasetningu auk markaðs- og
kynningarmála og skipulagningu viðburða á vegum bæjarins.
María Björk er gift Þór Sigurgeirssyni og eiga þau fjögur börn á
aldrinum 7 ára til 19 ára.
Nýr sviðstjóri menningar-
og samskipta hjá
Seltjarnarnesbæ
Húsnæði til leigu
á Eiðistorgi, 2. hæð
Upplýsingar í s. 895 5457
gunnar@fjallatindar.is Auglýsingasími: 511 1188
Nesfréttir