Nesfréttir - jún. 2019, Blaðsíða 2

Nesfréttir - jún. 2019, Blaðsíða 2
ÚT GEF ANDI: Borgarblöð ehf, Eiðistorgi 13-15, 172 Seltjarnarnes, Pósthólf 171. S: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 RITSTJÓRI: Krist ján Jó hanns son • ÁBYRGÐAR MAÐUR: Krist ján Jó hanns son BLAÐAMAÐUR: Þórður Ingimarsson UM BROT: Valur Kristjánsson NETFANG: borgarblod@simnet.is • HEIMASÍÐA: borgarblod.is Nesfréttir koma út mánaðarlega og er dreift frítt í hvert hús á Seltjarnarnesi 2 Nesfrétt ir www.borgarblod.is Borgarlínan Bæjarstjórn Seltjarnarnarnesbæjar hefur samþykkt að taka þátt í undirbúningsverkefni vegna Borgarlínu. Með því hafa öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ákveðið að sameinast um verkefnið. Athygli vekur að meirihluti og minnihluti bæjarstjórnar tóku höndum saman um samþykkt þessarar þátttöku. Athygli vekur einnig að meirihlutinn klofnaði í málinu. Magnús Örn Guðmundsson forseti bæjarstjórnar greiddi einn bæjarfulltrúa atkvæði á móti. Magnús Örn hefur áður lýst sig andvígan borgarlínu og talið allar hugmyndir um þetta verkefni óljósar og geti átt eftir að kosta skattgreiðendur umtalsverðar fjárhæðir. Á hinn bóginn má benda á ýmsa ókosti þess fyrir Seltjarnarnesbæ að standa utan borgarlínunnar. Verði það að veruleika má gera ráð fyrir að þessi samgönguæð verði leidd hjá Nesinu. Slíkt getur í framtíðinni leitt til þess að fólk kjósi síður búa sér heimili þar. Erfiðara getur orðið að fá fólk utan bæjarfélagsins til vinnu á Seltjarnarnesi og að íbúðaverð kunni að lækka til lengri tíma litið. Skeri Steltjarnesbær sig frá að þessu leyti kann að verða spurt með meiri þunga en verið hefur hvort nokkur ástæða sé til þess að bærinn verði sjálfstætt sveitarfélag í framtíðinni. ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR www.husavidgerdir.is/hafa-samband info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070 Finndu okkur á Fegrun og lenging líftíma steyptra mannvirkja er okkar áhugamál. Við höfum náð góðum árangri í margs konar múr- og steypuviðgerðum, múrfiltun, steiningu og múrklæðningum. Hafðu samband Við skoðum og gerum tilboð! Leið ari Bjarna Pálssonar minnst á Seltjarnarnesi Þess var minnst á Seltjarnarnesi sunnudaginn 19. maí að 300 ár voru liðin frá fæðingu Bjarna Pálssonar landlæknis. Hann fæddist 12. maí árið 1719. Bjarni lét byggja Nesstofu og bjó þar í 16 ár. Hann lagði grunn að þeirri heilbrigðisþjónustu sem við njótum í dag. Alma D. Möller landlæknir og Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir lögðu blómsveig að minnismerkinu um Bjarna Pálsson í Nesi kl. 9.30 árdegis og séra Bjarni Þór Bjarnason sagði nokkur orð um Bjarna Pálsson. Fræðslumorgun var haldinn á neðri hæð Seltjarnarneskirkju kl. 10. Ágúst Einarsson, prófessor emeritus, flutti afar merkilegan og vandaðan fyrirlestur um brautryðjandann Bjarna Pálsson, landlækni. Guðsþjónusta hófst í Seltjarnarneskirkju kl. 11. Ræðu dagsins flutti Alma D. Möller. Sóknarprestur þjónaði fyrir altari. Viðar Hjartarson, læknir, las ritningarlestur og Erlingur Þorsteinsson las einnig ritningarlestur, en hann er afkomandi Bjarna Pálssonar. Seltjarnarnessókn bauð síðan öllum viðstöddum upp á veitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu. Séra Bjarni Þór Bjarnason, N.N., Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir og Alma Möller landlæknir. Alma Möller landlæknir flutti ræðu dagsins í Seltjarnarneskirkju. Ágúst Einarsson flutti fyrirlestur um Bjarna Pálsson.

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.