Nesfréttir - Jun 2019, Page 4
4 Nesfrétt ir
Endurskoðun á
Bygggarðasvæðinu
samþykkt
Tölvugerð mynd ASK arkitekta
af fyrirhuguðu byggingasvæði
við Bygggarða á Seltjarnarnesi.
Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar
hefur nú veitt samþykki fyrir
byggingaframkvæmdum.
Þetta mál á sér langan
aðdraganda og hefur verið til
umræðu nánast það sem af er
þessari öld. Málið stöðvaðist um
árabil eftir bankahrunið 2008 en
síðar var rykið dustað af því að
nýju. Bygggarðamálið hefur verið
nokkuð umdeilt á Seltjarnarnesi
þar sem sitt hefur hverjum sýnst
um fjölda bygginga, bílastæða
og þó einkum hæð þeirra. Eins
og sjá má á myndinni fellur hin
fyrirhugað byggð vel að nánasta
umhverfi. Skammt frá má sjá hið
nýja hjúkrunarheimili en þar að
baki er Nesstofa og einnig hið
óráðstafaða hús sem reist var
fyrir lækningaminjasafn. Á hina
höndina er býlið Ráðgerði, Snoppa
eða síðan Grótta.
Þá fór hópurinn út í Stórhöfða og vítt og breitt um Heimaey. Grétar
Guðni Guðmundsson og kona hans Anna Guðrún Hafsteinsdóttir eiga
hús í Eyjum sem er sumarhús þeirra hjóna. Grétar Guðni bauð hópnum
sem samanstóð af 18 kaffikörlum og bílstjóranum, Hilmari Hilmarssyni,
fyrrverandi sláturhússtjóra á Sauðárkróki. Grétar Guðni bauð hópnum upp
á frábærar veitingar, þrenns konar brauð, karfa- og laxabollur, plokkfisk,
rækjur, heimalagað remúlaði, heimalagaða kindakæfu, krækling, fýlsegg
og margt fleira. Allan þennan mat hafði Grétar Guðni útbúið sjálfur og
einnig bakað brauðið. Maturinn smakkaðist einstaklega vel og voru
móttökurnar konunglegar.
Hópurinn kom til baka á Nesið klukkan rúmlega tíu um kvöldið. Ferðin
var ógleymanleg og eru Grétari Guðna færðar innilegar þakkir fyrir
frábæran dag í Eyjum.
Ólafur Egilsson, Þorsteinn Stefánsson og séra Bjarni Þór Bjarnason í
Vestmannaeyjum.
Glæsilegt veisluborð beið hópsins í boði Grétars Guðna
Guðmundssonar.
Framhald af forsíðu.
Nesvegur 100
Símar 562-1070, 896-4243
Opið virka daga kl. 10 - 18:30
MIKIÐ ÚRVAL SPENNANDI FISKRÉTTA
VERIÐ VELKOMIN
FERSKUR FISKUR
DAGLEGA
Skeljagrandi 1 · 107 Reykjavík
Sími 899 3417 · www.tölvuland.is
PC og Apple
tölvuviðgerðir
Fullkomið tölvuverkstæði og margra
ára reynsla og þekking fagmanna
Erum á Óðinsgötu 1
Sjá nánar á facebook.com/Systrasamlagid
Netverslun: systrasamlagid.is