Nesfréttir - Jun 2019, Page 9

Nesfréttir - Jun 2019, Page 9
Nesfrétt ir 9 þess að kenna þessi fræði. Hann kom í nokkur ár og kenndi mörgum sjóntækjafræðingum sjónmælingar. Walter segir að nokkuð hafi þurft að hafa mikið fyrir þessu. Rifja upp það sem maður hafi lært og bæta nýju við. Öll kennsla var á ensku og fagorðin var ekki að finna í neinum orðabókum. Walter tók próf í sjónmælingum og við sem fórum í gegnum þetta fengum réttindi til að skoða augun í fólki. Þetta breytta starfssvið sjóntækjafræðingana hefur reynst vel og verið flestum til góða. Árið 2000 seldi hann Gleraugnasöluna eftir 50 ára starf. Félagsstörf og ferðir Walter hefur verið lifandi í félagsstörfum. Hann var formaður sjóntækjafræðinga á Íslandi og átti sæti í stjórn Slippfélagsins um tíma. Var í fimm ár í stjórn Badmintonsambandsins og nú eru þau hjónin í Rotaryklúbbnum á Seltjarnarnesi sem Walter finnst lifandi og skemmtilegum félagsskapur. Hann segir þau reyna að láta gott af okkur leiða. Það tengi fólk andlega við lifið. Þau hafa líka ferðast talsvert eftir að hann hætti að vinna. Fórum alls í tíu heimsreisur með Ingólfi Guðbrandssyni. Þau hafa einnig farið í sigingaferðir og svo golfferðir. Ingólfur gat verið skemmtilegur en var dálítið sérstakur. Það þurfti eiginlega að læra á hann. En allt hafi þetta verið ánægjulegar ferðir. Hefur alltaf stundað íþróttir Walter snýr sér að öðru. Hann hefur alla tíð verið mikið fyrir íþróttir og útilíf og nú á golfið hug hans allan. Þess má geta að Walter sigraði í golfmót hjá Golfklúbbnum Oddi í Garðabæ nýlega og fékk í vinning golfferð til Búlgaríu. Hann byrjaði ungur að spila handbolta og fór síðan að spila badminton sem hann stundaði af lífi og sál um tíma. Hann fékk verðlaunapeninga þegar hann var 43 ára. Hann kveðst hafa byrjaði of seint að spila til þess að ná bestu töktunum. Til þess verði að byrja ungur. Walter keppti í öldungaflokki sem er 50 ára og eldri og varð nokkrum sinnum Íslandsmeistari í badminton. Walter hefur einnig stundað fleiri íþróttir og má þar nefna laxveiði, skíði og bridge. Reyndi á heilsuna Walter segist hafa reynt talsvert á heilsuna. Hann fékk brjósklos og þurfti síðar að fara í mjaðmaaðgerð ekki einu sinni heldur tvisvar á þriggja vikna tímabili. Hann varð einnig að fara í hjartaaðgerð. Hann var farinn að finna fyrir óþægindum. Hafði verið að spila golf eins og venjulega og búinn að fara hringinn. Fann þá fyrir óþægindum og fannst eins og hann væri að verða búinn. Fór að láta líta á þetta og bjóst við að það þyrfti að hreinsa æðar eða blása. En þegar búið var að skoða hann var talið að ekkert annað myndi duga en að skipta um æðar. Þær væru orðnar svo þröngar. Hann kveðst heppinn að lenda hjá góðum lækni. Tómasi Guðbjartssyni og tveimur vikum síðar var hann komin undir hnífinn. Þegar hann spurði hann hversu lengi svona aðgerð myndi duga var svarið að hún gæti alveg endst í tuttugu ár. Walter bendir á að fylgjast verði vel með sjálfum sér í ellinni og vita hvað gera megi til að lifa heilbrigðu lífi. Hann segir að konan passi upp á sig. Hann drekkur ekki kaffi en er orðinn fastur við teið. Fær sér eitt og eitt bjórglas öðru hvoru eða rauðvín með matnum. Falleg blóm við innganginn Walter er að vinna í garðinum heima. Falleg tré og blóm prýða innganginn að heimili þeirra hjóna. Walter vill hafa snyrtilegt í kringum sig. Hann segir að þegar maður flytji á milli landa sé nauðsynlegt að nýta það það fallega sem landið hafi að bjóða. Walter hefur örugglega tekist það vel. Hann tók í hendina á komumanni við rauðu túlipanana sem voru að blómstra við innganginn heima hjá honum og þakkaði fyrir komuna. Walter og Ragnheiður við golfbílinn sinn á golfvellinum á Seltjarnarnesi þangað sem þau aka á honum frá heimili sínu við Steinavörina. KOMDU MEÐ BÍLINN Í TJÓNASKOÐUN Vottað réttinga- og málningarverkstæði GB Tjónaviðgerðir er réttinga- og málningarverkstæði vottað af Bílgreinasambandinu. Við tryggjum hámarksgæði með því að nota fyrsta flokks tækjabúnað og efni. Styðjumst við tækniupplýsingar framleiðanda um hvernig skuli staðið að viðgerð. Rétting og málning Við vinnum eftir stöðlum framleiðenda og notum aðeins viðurkennd efni og tækjabúnað sem stenst ítrustu kröfur. Smáviðgerðir Samhliða viðgerðum getum við skoðað ástand helstu slitflata og öryggisþátta, s.s. bremsur. Tjónaskoðun Við skoðum bílinn og undirbúum tjónamatið sem sent er til tryggingafélaga. Framrúðuskipti Skiptum um framrúður og önnumst annars konar rúðuskipti. Sjáum um öll rúðutjón jafnt límdar rúður sem og aðrar, ásamt glerhreinsun á bíl. Dragháls 6-8 110 Reykjavík sími 567 0690 netfang tjon@tjon.is www.tjon.is

x

Nesfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.