Nesfréttir - jun. 2019, Qupperneq 12
12 Nesfrétt ir
Frá útkomu síðustu Nesfrétta hefur ýmislegt verið brallað í
félagsstarfinu. Fimmtudaginn 16. maí var vorhátíð í aðstöðu
félagsstarfsins í salnum á Skólabraut. Kvöldið byrjaði með söng
nokkurra kvenna úr Kvennakór Reykjavíkur. Þá kom Grillvagninn og
boðið var upp á hamborgarapartý. Síðan mætti stúlknahljómsveitin
Konfekt og tók nokkur lög við góðar undirtektir.
Seinnipartinn í maí var farin sameiginleg ferð félagsstarfsins og
kirkjunnar. Byrjað var í morgunverði í safnaðarheimili Árbæjarkirkju.
Þaðan lá leiðin á hreppsskrifstofur Hvalfjarðarsveitar. Það var víða
komið við í sveitarfélaginu bæði til að fræðast og skoða, en einnig til að
nærast. Dagurinn var virkilega upplýsandi og vel heppnaður.
Síðasta skipulagða samverukvöld ungmennaráðs og eldri borgara
var svo miðvikudagskvöldið 22. maí á Skólabraut. Góð þátttaka var á
kvöldinu, en ungmennin buðu upp á keppni í kubb. Það voru margir sem
aldrei höfðu tekið þátt í kubbaleiknum og höfðu á orði að væri betra seint
en aldrei. Síðan var boðið upp á ís og spjall fram eftir kvöldi.
Hefðbundnu vetrarstarfi félags og tómstundastarfs eldri bæjarbúa á
Nesinu lauk með ákaflega fallegri handverkssýningu í salnum á Skólabraut
sem opnaði á uppstigningardag / dagur eldri borgara. Sýningin stóð yfir
í þrjá daga. Á sýningunni var margt fallegra muna sem unnir hafa verið á
námskeiðum í handverki í vetur. Á sýningunni voru listaverk unnin úr leir
og gleri, útsaumur, prjón og hekl ásamt fallega unnum bókbandsverkum
og verkum unnin í tré. Sýningin var vel sótt að venju.
Starfinu er þó hvergi nærri lokið þó hlé verði gert á námskeiðunum
í sumar. Búið er að skipuleggja næstu 2 mánuði með þeim Thelmu og
Jóhanni Þór, en Thelma sá einnig um sumarstarfið í fyrrasumar og Jóhann
Þór kemur ferskur inn.
Dagskráin verður fjölbreytt. Haldið verður snjallsíma- og
spjaldtölvunámskeið nú um miðjan júní. Fimmtudaginn 27. júní verður
sumargleði í salnum á Skólabraut þar boðið verður upp á skemmtun,
söng og gleði og seldar veitingar og drykkir. Einnig verður lögð áhersla
á útiveru þegar veður leyfir, útileikir og skemmtun. Alla virka daga er
kaffikrókurinn kl. 10.30. Leikfimi í salnum á Skólabraut kl. 11.00 á
mánudögum, fimmtudögum og föstudögum. Vatnsleikfimin verður á
sínum stað. Einnig verður púttað á golfvellinum einusinni í viku, botsía,
bingó og félagsvist svo eitthvað sé nefnt. Dagskrá sumarsins var dreift
í hús nú í byrjun júní og er þar að finna allar helstu upplýsingar um
sumarstarfið, en dagskráin er í gildi frá 11. júní - 16. ágúst. Hvetjum fólk til
að láta sjá sig og vera með.
FÉLAGS- OG TÓMSTUNDASTARF
ELDRI BÆJARBÚA
U M H V E R F I S H O R N I Ð
Útskrift 10. bekkjar Valhúsaskóla fór fram fimmtudaginn 6. júní
2019 við hátíðlega athöfn í Seltjarnarneskirkju. Umhverfisnefnd
veitti tveimur útskriftarnemum viðurkenningar. Daníel
Ólafur Stefánsson Spanó hlaut viðurkenningu fyrir árangur og
ástundun í náttúrufræðum og Andrea Irina Denisdóttir hlaut
hvatningarverðlaun í náttúrufræðum. Þá veitti menningarnefnd
tvær viðurkenningar fyrir framlag til menningar og lista á
Seltjarnarnesi. Viðurkenningar fengu Daníel Ingi Arason
og Júlía Óskarsdóttir.
Umhverfisnefnd og menningarnefnd Seltjarnarness óska þeim
og öðrum útskriftarnemum innilega til hamingju með áfangann.
Hannes Tryggvi Hafstein
Guðrún Jónsdóttir
Viðurkenningar 2019
Síðasta kyrrðarstund vetrarins í Seltjarnarneskirkju var haldin upp
í Borgarfirði 5. júní sl. í sumarbústað sem nefndur er Jaðar en hann
er í eigu Elínar Gissurardóttir og Barða Theódórssonar. Meðfylgjandi
mynd var tekin við það tilefni.
Kyrrðarstund
í Borgarfirði
Félagar í Rótarýklúbbi Seltjarnarness tóku þátt í gróðursetningu
í fallegu veðri í Bakkagarði nú nýlega. Meðal trjátegunda
sem plantað var voru gráölur, heggur, gljámistill, úlfareynir,
garðahlynur og japanskvistur.
Trausta leiðsögn veitti þeim þær Steinunn Árnadóttir
garðyrkjustjóri Seltjarnarness og aðstoðarkona hennar Karen
Sif Magnúsdóttir. Gaman er að sjá hve fallegt er orðið í Bakkagarði
og vonandi er þessi gróðursetning Rótarýfélaganna aðeins byrjun
á öðru og meira.
Rótarýfélagar
gróðursetja