Vesturbæjarblaðið - júl. 2015, Blaðsíða 4
Heyr himnasmiður lag Þorkels Sigur -björ nssonar við 700 ára gamlan t e x t a K o l b e i n s
Tumasonar hljómar. Raddirnar
eru samhæfðar líkastar því
sem leikið sé á hljóðfæri.
Þegar lokanótan hefur verið
sungin tekur annað lag
við. Ég er kominn heim lag
Jimmie Rodgers við texta
Jóns Sigurðssonar eða Jóns
í bankanum eins og hann var
nefndur en hann starfaði í
Búnaðarbankanum gamla
samhliða textagerð og tónlis-
tarstörfum tekur við. Lagið sem
gerði Óðinn Valdimarsson frá
Akureyri kunnan á einni nóttu
með KK sextettinum forðum.
Lag sem ýmsir hafa lagt sig
eftir að túlka en fáum tekist að
ná. Óðinn var tenór en nú er
bassarödd Péturs Oddbergs
Heimissonar tekin við. Lagið
hentar ekki síður þjálfaðri
bassarödd en óbeisluðum tenór.
Pétur Oddbergur Heimisson
er einn af sönghópnum Olga
Vocale en hinir eru Bjarni
Guðmundsson tenór, Jonathan
Ploeg tenór, Gulian van Nierop
barritón og Philip Barkhudarov
bassi. Að sönnu alþjóðlegur
hópur sem í sumar mun bjóða
upp á kvöldverðartónleika í
samstarfi við Iðnó ásamt því
halda hefðbundna tónleika víðs
vegar um landið. Þeir lögðu
upp nú 21. júlí og verða á ferð
til 3. ágúst með viðkomu á
Hvolsvelli, Djúpavogi, Ólafsfirði,
Hvanneyri, Flatey á Breiðafirði
og síðast en ekki síst í Reykjavík.
Olgumennirnir fóru auk þess
til Frakklands í sumar og munu
halda til Bandaríkjanna í byrjun
næsta árs þar sem þeir ætla að
halda um tólf tónleika í samstarfi
við Baylin Artists Management.
Pétur Oddbergur Heimisson er
Vesturbæjarbarn. Fæddur og alin
upp á Vesturgötunni og hefur
búið þar samfellt ef undan eru
skilin námsári í Hollandi. Hann
spjallar við Vesturbæjarblaðið að
þessu sinni.
Hreinræktaður
Vesturbæingur
Pétur Oddbergur er hreinræk-
taður Vesturbæingur. Foreldrar
hans eru Heimir Sigurðsson og
Gróa Þóra Pétursdóttir og hann
hefur alla tíð búið á Vesturgötun-
ni utan námsáranna í Hollandi.
Hann segist ekki vera fluttur að
heiman. „Það má segja að ég sé
enn á „Hótel mömmu“. Ég er svo
stutt heima í hvert skipti. Ég bý
allt upp í tíu mánuði erlendis á
hverju ári og þá tekur því ekki
að vera að reyna að leigja. Verð
þar trúlega eitthvað enn á meðan
ég er á þessu flakki á milli landa
og foreldrar mínir hafa útbúið
mjög góða aðstöðu fyrir mig í
kjallaranum á Vesturgötunni. En
það styttist í að ég verði að finna
mér eitthvað annað. Kannski
kaupi ég mér hús í Vesturbænum
en það er ekki alveg komið að því.
Ekki enn þá.“
Af ætt Gróu
Langamma Péturs var Gróa
Pétursdóttir sem var mjög virk
í slysavarnarstarfi á árum áður
og Gróubúð á Grandagarði heitir
eftir. Pétur segir langömmu sína
hafa verið mjög sérstaka konu
og mörgum eftirminnileg. Hún
fæddist 1892 í Hvassahrauni
á Vatnsleysuströnd skammt frá
þeim stað sem hugmyndir eru nú
um að byggja flugvöll. Foreldrar
hennar voru Pétur Örnólfsson,
sjómaður í Reykjavík og kona
hans Oddbjörg Jónsdóttir.
Árið 1918 giftist Gróa Nikulási
K. Jónssyni skipstjóra og
vigtarmanni í Reykjavík um
langt skeið og hófu þau búskap í
Reykjavík. Gróa átti þrjú systkini
sem voru Jóhann, þekktur
togaraskipstjóri, Guðlaug sem
fylgdi Gróu alla tíð og sá lengst
af um heimili hennar og var
henni ómetanleg hjálparhella.
Yngst var svo Emilía sem var
gift Kristni Markússyni í Geysi.
Gróu hlotnuðust viðurkenningar
fyrir störf sín að slysavörnum.
Hún hlaut íslensku fálkaorðuna
og Gróa var sæmd æðstu
viðurkenningu Slysavarnafélags
Íslands, heiðurskrossi, sem
einungis þremur einstaklingum
hefur hlotnaðist í sögu félagsins.
„Já – nöfnin okkar mömmu eru
sterk í fjölskyldunni.“
Virk í íþróttalífinu
Fjölskylda Péturs hefur verið
mjög virk í íþróttalífinu og
einkum skíðaíþróttinni í gegnum
tíðina. Faðir hans var formaður
skíðadeildar KR um tíma og
sjálfur var Pétur á skíðum í
Skálafelli og víðar. Hann var líka
virkur í fótboltanum. „Ég átti
mjög góða æsku í Vesturbænum
og hef alltaf kunnað mjög
vel við mig þar. Ég er líka
hreinræktaður KR-ingur og var
einn af stofnendum KV eða
Knattspyrnufélags Vesturbæjar
sem var stofnað til þess að
gefa þeim sem ekki komust inn
í meistaraflokkinn tækifæri.
Ég var með þeim í stjórn í eitt
ár en starfaði ekki með KV eftir
það. Með KV gátu strákarnir
spilað í lægri deild. Þetta var
meira hugsað til gamans en
beinn undirbúningur fyrir
meistaraflokkinn en KV komst
upp í fyrstu deildina á síðasta ári.
Já – ég æfði með KR í fjölda ára.
Allt frá því að ég var lítill strákur.
Ég var á skíðum á veturna og
spilaði fótbolta á sumrin. Ég
missti svolítið af undirbúningi
á veturna en náði að spila á
Shellmótum og fleiri mótum og
spilaði á Íslandsmótinu alveg upp
í annan flokk. Ein tenging mín við
Vesturbæinn tengist bæði KR og
söngnum þótt með óbeinu móti
sé. Ég er alin upp í sama húsi og
Pétur Jónsson söngvari bjó á
sínum tíma en hann var einn af
stofnendum KR.“
Jón Þorsteinsson flottur
kennari
En að söngnum. Hefur Pétur
alltaf sungið. „Já - ég hef alltaf
haft gaman af að syngja. Ég var
í kór í Hagaskóla og í kórstarfi
á framhaldsskólaárunum. Ég
fór í söngnám meðal annars hjá
Guðmundi heitnum Jónssyni
óperusöngvara. Ég náði tveimur
árum hjá honum áður en að
starfsævi hans lauk. Ég horfði
þó ekki um tíma eingöngu á
sönginn því ég fór eitt ár í nám
í viðskiptafræði við Háskóla
Íslands. Ég fann þó að söngurinn
togaði stöðugt í mig. Ég hafði
verið hjá góðum kennurum og
auk Guðmundar og má nefna
menn á borð við Eið Ágúst
Gunnarson og Bergþór Pálsson
í því efni. Þetta reyndist mér
mjög góður undirbúningur fyrir
söngnámið sem ég hef stundað
í Hollandi undanfarin ár.“ Pétur
flutti til Hollands árið 2009
til þess að stunda tónlistar- og
söngnám. Þar hefur hann
meðal annars lært hjá Jóni
Þorsteinssyni óperusöngvara
sem er ættaður úr Ólafsfirði en
hefur búið og starfað í Hollandi í
um þrjá áratugi. „Jón er ótrúlega
flottur kennari og gott að vera
hjá honum í námi. Þegar ég var
hjá honum var hann að kenna 13
Íslendingum.“
The Good Old Days
En hvernig varð Olga Vocal
Ensemble t i l . Pétur segir
hugmyndina hafa fæðst með
kynnum sem hófust í náminu
þar sem allir voru að læra söng.
"Þetta þróaðist smám saman. Í
fyrstu vorum við þrír Íslendingar,
einn rússi og píanóleikari. Þetta
var fyrsta útgáfan af Olgu. Svo
hætti píanistinn og þá fórum við
að þróa sönginn án undirleiks.
Á árinu 2013 bættust tveir
Hollendingar í hópinn og þá
vorum við orðnir fimm. Lagavalið
breyttist einnig. Það breyttist frá
lögum sem söfnuðust að okkur
ef svo má segja og við lærðum
og kunnum yfir í að móta okkur
stefnu í lagavali. Við fóru að
syngja tónlist frá 20ustu öldinni
– einkum miðbiki hennar. Nokkuð
sem við kölluðum „The Good Old
Days“ eða gömlu góðu dagana.
Við tókum þetta svo smám saman
af aukinni alvöru. Hópurinn er
líka orðin þéttari en hann var.
Sigurður Rúnar Jónsson eða
Diddi fiðla eins og hann er oftast
kallaður og býr í Lúxemborg
tók upp fyrstu sex lögin sem
við festum niður. Annars erum
við ekki með neinn stjórnanda.
Við stjórnum hver öðrum. Við
æfum saman og finnum saman út
hvernig við viljum flytja lögin. Við
leggjum ekki alla línur fyrir fram
eða skrifum alveg niður hvernig
við viljum hafa þetta. Sumt gerist
4 Vesturbæjarblaðið JÚLÍ 2015
Fjölþjóðlegur sönghópur
gerir víðreist
Hugmyndin um að tengja söng og matarlist saman sem þeir Olgufélagar ætla að gera í Iðnó í sumar er
óvenjuleg. Þarna eru þeir félagarnir á fullri ferð í eldhúsinu. Pétur Oddbergur er fyrir miðju.
... einn þeirra Vesturbæingurinn Pétur Oddbergur Heimisson spjallar við Vesturbæjarblaðið
Olgufélagarnir hafa verið að túra um Ísland. Þarna eru þeir staddir í Ólafsfirði ásamt tveimur heimamanna.
Olga Vocal Ensemble: